Stjórn Stjórnvísi og stjórnir allra faghópa Stjórnvísi munu kynna hvað er framundan hjá þeim í vetur. Einnig mun fara fram stutt kynning á uppfærðri heimasíðu félagsins. Fundurinn er öllum opinn og félagar hvattir til að koma og kynna sér spennandi dagskrá vetrarins á 25 ára afmæli Stjórnvísi.
Dagskrá:
kl.15:30 Jón G. Hauksson, formaður stjórnar Stjórnvísi
kl.15:35 isProject kynnir nýja heimasíðu félagsins
kl.15:45 Balanced Scorecard
kl.15:50 EFQM
kl.15:55 Fjármál fyrirtækja
kl.16:00 Gæðastjórnun
kl.16:05 Heilbrigðissvið
kl.16:10 ISO-hópur
kl.16:15 Lean-Straumlínustjórnun
kaffihlé
kl.16:25 Mannauðsstjórnun
kl.16:30 Markþjálfun
kl.16:35 Matvælasvið
kl.16:40 Opinber stjórnsýsla
kl.16:45 Sköpunargleði
kl.16:50 Stefna, mótun og framkvæmd
kl.16:55 Umhverfi-og öryggi
kl.17:00 Upplýsingaöryggi
kl.16:05Viðskiptagreind
kl.17:10 Þjónustustjórnun
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur |
|
29
|
30
|
31
|
01 |
02
|
03
|
04
|
|
05
|
06 |
07
|
08
|
09
|
10
|
11
|
|
12
|
13 |
14
|
15
|
16
|
17
|
18
|
|
19
|
20
|
21
|
22
|
23
|
24
|
25
|
| 26 |
27
|
28 |
29
|
30
|
01
|
02
|
Framtíðarsýn framleiðslu Marel og það nýjasta í Lean málum í Marel Garðabæ
Fyrsti viðburðurinn á vegum Lean faghópsins þetta starfsárið er afar spennandi heimsókn í Marel:
Dagskrá:
8:30-9:15 Pétur Arason segir frá nýrri framtíðarsýn framleiðslu Marel og nýstárlegri leið til að kynna þá framtíðarsýn fyrir starfsfólki, en hún sameinar 15 verksmiðjur í 10 löndum
9:15-9:30 Axel Jóhannsson segir frá því helsta sem framleiðsluferli Marel í Garðabæ hefur verið að vinna að varðandi straumlínustjórnun
9:30-9:45 Rósa Björg Ólafsdóttir segir frá því helsta sem vöruþróunarferli Marel í Garðabæ hefur verið að vinna að í Agile/lean málum.
Allir sem hafa áhuga á Lean eru hvattir til að mæta
Áhrif gæðastjórnunar á mannvirkjagerð
Anna Hulda Ólafsdóttir heldur fyrirlestur um 60 eininga verkefni sitt til meistaraprófs í iðnaðarverkfræði frá IVT deild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Markmið verkefnisins er að skoða áhrif gæðastjórnunar á mannvirkjagerð. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig áhrif gæðastjórnunar eru á verkkaupa og þá sérstaklega hvort marktækur munur sé á ánægju verkkaupa með framkvæmd verka hjá verktökum sem starfa eftir gæðastjórnunarkerfi miðað við verktaka sem starfa ekki eftir því. Einnig er kannað hvort marktækur munur sé á vinnubrögðum verktaka sem kveðast vinna eftir gæðastjórnunarkerfi miðað við þá sem starfa ekki eftir slíku og að lokum er staða gæðastjórnunar í mannvirkjagerð á Íslandi könnuð. Spurningalistar voru lagðir fyrir verkkaupa og verktaka og voru niðurstöður greindar fyrir hvern spurningalista ásamt því að svör verkkaupa voru tengd við svör viðkomandi verktaka og fylgni milli þátta úr báðum könnunum reiknuð.
Leiðbeinendur Önnu Huldu voru þeir Dr. Helgi Þór Ingason, dósent í iðnaðarverkfræði og Páll Jensson, prófessor í iðnaðarverkfræði.
Sjálfstýrði kafbáturinn Freyja
Stefán Freyr Stefánsson mun kynna kafbátaverkefni sem unnið var við Háskólann í Reykjavík. Sjálfstýrði kafbáturinn Freyja var þátttakandi í alþjóðlegri kafbátakeppni sem haldin var í San Diego í Bandaríkjunum. Stefán mun fjalla um uppbyggingu verkefnisins, mekaníska hönnun og rafeindabúnað bátsins (rafhlöður, skynjara, mótora o.s.frv.). Einnig mun hann fjalla um hugbúnað bátsins, hönnun, útfærslu og prófanir.
Annað: Eftir fyrirlestur verður aðalfundur HugPró haldinn. Ný stjórn verður kosin og einnig verður kosið um það hvort HugPró verði hér eftir hjá Stjórnvísi eða Dokkunni. Félagar eru hvattir til þess að láta sig HugPró varða, taka þátt og koma með tillögur og ábendingar.
Léttar veitingar verða í boði frá 8:45 - 09:00
Aðalfundur ISO hópsins
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt verklagi um aðalfund faghópa. Einnig verður fjallað um starfsemi faghópsins framundan og efnistök ákveðin hvað varðar fyrirhugaða morgunfundi, hádegisverðarfundi og ráðstefnur í vetur.
Innleiðing straumlínureksturs (Lean) í Rio Tinto Alcan, Straumsvík
Á fundinum verður kynnt hvernig Rio Tinto Alcan á Íslandi hefur undanfarið ár unnið að innleiðingu Straumlínusreksturs (Lean) í Steypuskála og Skautvinnslu. Einnig verður farið í þá hugmyndafræði sem innleiðingin byggist á sem og þá vinnu sem farið var í áður en innleiðing byrjaði.
08:15-08:30 - Morgunkaffi
08:30-08:45 - Kynning á þeirri hugmyndafræði sem innleiðingin byggir á
08:45-09:00 - Gefin innsýn í þá vinnu sem unnin var áður en farið var í innleiðingu
09:00-09:30 - Farið yfir ferli innleiðingar í Steypuskála og Skautvinnslu
Allir eru hvattir til að mæta því það er ekki á hverjum degi sem sagt er frá jafn viðamiklum Lean innleiðingum hér á landi sem að auki voru unnar undir leiðsögn frá erlendum Lean sérfræðingum.
Stjörnufundur: Að stjórna stjörnum
Mannauðshópur Stjórnvísi heldur fund þann 5.október sem ber yfirskriftina "Að stjórna stjörnum". Fundurinn verður haldinn í Borgarleikhúsinu frá kl.08:30-09:50 og meðal fyrirlesara er Magnús Geir leikhússtjóri Borgarleikhússins og Þórhallur Gunnarsson dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.
Upplýsingar um fyrirlesara munu birtast fljótlega á vefnum.
Fjöldtakmörkun er á fundinn
Hver er ávinningur umhverfisvottunar í prentiðnaði -heimsókn til Odda-aðalfundur umhverfis- og örygg
Farið er er yfir forsögu þess að farið var út í það að umhverfisvotta stærstu prentsmiðju á Íslandi og verða þar með fyrsta prentsmiðjan í heiminum til að fá Svansvottun á allt framleiðslu ferli sitt að meðtalinni bylgjukassa framleiðslunni. Hver er ávinningurinn, hverju þurfti að breyta og er eitthvað sem hefði mátt gera öðruvísi?Aðeins er fjallað um pappír og þátt hans í vottunarferlinu.
Arnar Árnason, Markaðsstjóri Odda og Þóra Hirst, Gæðastjóri Odda munu halda kynninguna.
Fundarmönnum gefst kostur á að ganga um prentsmiðjuna í lok fundar.
Aðalfundur umhverfis- og öryggishóps verður haldinn í upphafi fundar.