Kolibri Borgartún 26, Reykjavík
Þjónustu- og markaðsstjórnun,
Undanfarin misseri hefur Kolibri unnið náið með TM að þróa stafrænar lausnir í þjónustu. Ein útkoman er TM appið þar sem kosið var að fara óhefðbundnar leiðir til að veita betri þjónustu og auka hagræðingu í að vinna úr tjónstilkynningum.
Steinar, hönnuður hjá Kolibri, mun fjalla almennt um áskoranir og aðferðir til að þjónusta kúnna vel á stafræna vegu og svo munu Hugi, forritari hjá Kolibri, ásamt Björk, framkvæmdastjóra tjónaþjónustu, fara yfir TM appið og skoða árangurinn sem það hefur skilað.