Húsið opnar kl 08:00, boðið er upp á léttar veitingar frá kl. 08:15
Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn
Á fundinum fjöllum við um ofbeldi í nánum samböndum og hvernig stuðningur atvinnurekenda getur skipt sköpum fyrir starfsfólk sitt. Vinnustaðurinn er oft eina tenging þolanda við samfélagið og einn af fáum stöðum þar sem þolandi kemst undan eftirliti geranda. Styðjandi viðbrögð stjórnanda eða samstarfsfólks geta brotið þá einangrun.
Kynnt verður ný tryggingavernd, stuðningsleyfi, sem er nú hluti af slysatryggingum fyrirtækja. Stuðningsleyfið auðveldar atvinnurekendum að veita launað leyfi í allt að tvær vikur, svo starfsmaður geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap. Einnig verður fjallað um reynslu af innleiðingu aðgerðaráætlana fyrirtækja og mikilvægi þess að þolendur upplifi öryggi, stuðning og valdeflingu.
Fram koma
- Jenný Kristín Valberg – Teymisstýra Bjarkarhlíðar
- Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir – Forstjóri Varðar
- Adriana Karolina Pétursdóttir Framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto á Íslandi og formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
- Helga Halldórsdóttir Forstöðumaður Mannauðs Arion Banka
Fundarstjóri er Ólafur Kári Júlíusson - Vinnusálfræðingur hjá Vinnuvís
ernig geta vinnustaðir stutt við starfsfólk sem verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi