Hlutverk áætlanagerðar í framkvæmd stefnu + aðalfundur stefnuhóps

Fundur á vegum faghóps um mótun og framkvæmd stefnu
Hlutverk áætlanagerðar í framkvæmd stefnu + aðalfundur

Eggert Oddur Birgisson, ráðgjafi hjá Capacent, ræðir um ýmis hagnýt atriði varðandi áætlanagerð og hlutverk áætlana í markvissri framkvæmd stefnu. Hann fjallar um tegundir áætlana, kosti þess að útbúa ítarlegar áætlanir (margvíðar áætlanir byggðar á kostnaðarvöldum), og helstu annmarkar á hefðbundinni áætlanagerð fyrirtækja og stofnana. Farið yfir helstu úrræði með áherslu á hlutverk áætlunar í markvissri framkvæmd stefnu fyrirtækisins.
 
Um kl. 9:45 verður örstuttur aðalfundur þar sem kosin verður ný stjórn hópsins.
 
Fundarstaður
Háskóli Íslands, Gimli, stofa 102 (Gimli er á milli Háskólatorgs, Lögbergs og Odda).
 
 
 

Þjónustan er fjöreggið

Morgunverðarráðstefna
ÞJÓNUSTAN ER FJÖREGGIÐ

 
 

Vanskilaupplýsingar um fyrirtæki, aðgangur og notkun á þeim - fjármálahópur

Fundur á vegum faghóps um fjármál fyrirtækja

Hvernig er hægt að lágmarka tap af viðskiptakröfum.? Vanskilaupplýsingar fyrirtækja, aðgangur og notkun á þeim.
Fundarstaður
CreditInfo, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
 

Með ánægju! Þjónustuhópur hjá TM

Fundur á vegum faghóps um þjónustustjórnun

Með ánægju!

Hvers virði eru ánægðir viðskiptavinir hjá TM?
Hvernig hefur TM byggt upp þjónustumenningu?
Hvaða leiðir hefur TM farið til að viðhalda ánægju viðskiptavina?

Fyrirlesari
Ragnheiður Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri samskiptasviðs og einstaklingsþjónustu TM

Fundarstaður
Tryggingamiðstöðin, Síðumúla 24, 108 Reykjavík.

 

Innleiðing stefnumiðaðs árangursmats hjá Álftamýraskóla og Kársnesskóla

Fundur á vegum faghóps um stefnumiðað árangursmat

Innleiðing stefnumiðaðs árangursmats hjá Álftamýraskóla og Kársnesskóla

Framsögumenn
Brynhildur Ólafsdóttir skólastjóri Álftamýraskóla og Guðrún Pétursdóttir skólastjóri Kársnesskóla

Fundarstaður
Álftamýraskóli, Álftamýri 79, 108 Reykjavík
 
 
 

Nýjar ógnir Internetsins: Árásir sem mest eru notaðar í dag og varnir gegn þeim

Fundur á vegum faghóps um upplýsingaöryggi
Fundarefni
Nýjar ógnir Internetsins og þær árásir sem mest eru notaðar í dag
og varnir gegn þeim. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
· Hvað hefur breyst?
· Hvar stöndum við í dag?
· Hvað er til ráða?
Framsögumaður
Joakim Sandstrøm frá nSense en hann hefur kennt námskeið í öruggri
forritun (e. secure coding), fyrir Sensa, við góðar undirtektir. Joakim er einn
stofnenda nSense og hefur tekið þátt í yfir 600 verkefnum tengdum öryggismálum og
haldið fyrirlestra um öryggismál um allan heim.
Fundarstaður
Sensa, Kletthálsi 1
 

Rýni stjórnenda hjá Vífilfelli.

Fundur á vegum ISO hópsins

Að fundarefni loknu hefst aðalfundur hópsins.
Fundarefni
Rýni stjórnenda en Vífilfell viðheldur m.a. vottuðu gæðakerfi yfir þær kröfur sem
settar eru fram í staðlinum The Coca-Cola Quality System.
Framsaga
Pétur Helgason Gæðastjóri
Fundarstaður
Vífilfell
Stuðlahálsi 1
110 Reykjavík
 

,,Leiðin að silfrinu": Hugarfar starfsmanna skiptir máli: Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfari

Fundur á vegum faghóps um mannauðsstjórnun
Fundarefni
"Leiðin að silfrinu"
Hugarfar starfsmanna skiptir máli. Hvernig geta stjórnendur haft áhrif á hugarfar starfsmanna og virkjað þannig styrkleika þeirra og jákvæða hugsun?
 
Framsögumaður
Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfari karlalandsliðsins í handbolta miðlar af sinni reynslu og sýn á hlutina og hvernig hann leiddi handboltalandsliðið að silfrinu á Ólympíuleikunum. Guðmundur hefur einnig gegnt stöðu verkefnastjóra hjá Kaupþingi. Í erindinu fjallar hann m.a. um markmiðasetningu, skipulag liðsheildar og ákveðna tegund af frammistöðumati.

Fundarstaður
Fundurinn er haldinn hjá Íslandsbanka Kirkjusandi, 5. hæð (matsalur).
 
ATH! Þetta er síðasti fundur mannauðshópsins í vetur og samkvæmt reglum hópsins ganga 3 úr stjórn. Við óskum því eftir framboðum í stjórnina fyrir næsta vetur, en stjórnarseta miðast við 2 ár. Áhugasamir sendi tölvupóst á Ingibjörgu Óðinsdóttur, formann hópsins (io@skyrr.is).
 

 

Aðalfundur Stjórnvísi 2009

Aðalfundur STJÓRNVÍSI 2009
Aðalfundur Stjórnvísi 2009 verður haldinn fimmtudaginn 28. maí kl. 16.00 til 18.00.
Fundurinn verður haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum er ætlunin að slá á létta strengi og bjóða félagsmönnum upp á grín og léttar veitingar. Stjórnin hvetur félagsmenn til að mæta, efla tengslanetið og skemmta sér saman. Sérstaklega hvetjum við stjórnir allra faghópa til að mæta og taka þátt í fundinum og hafa þannig áhrif á framgang Stjórnvísi.
 
Dagskrá aðalfundarins
Venjuleg aðalfundarstörf

  1. Kjör fundarstjóra og ritara
  2. Lýst eftir málum
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Reikningar félagsins
  5. Kjör stjórnar, fagráðs og skoðunarmanna reikninga
  6. Viðurkenningar Stjórnvísi
  7. Önnur mál
    Að loknum aðalfundarstörfum sem taka ca. 30 mín. verður tekið upp léttara hjal og gestir njóta góðra veitinga, snilldarhúmors og góðs félagsskapar.
    Gestur fundarins að þessu sinni er hinn alkunni grínari Þorsteinn Guðmundsson sem mun flytja okkur erindi sem hann kallar “Hugsum júkvætt” og er víst drepfyndið að hætti Þorsteins!
    Fundarstjóri Ólafur Finnbogason fræðslustjóri Íslandspósts.
    Léttar veitingar í boði Stjórnvísi.
    Stjórnin
     
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?