Fjármál fyrirtækja: Horfur framundan - ögrandi verkefni

Þann 29.október mun faghópur um Fjármál fyrirtækja halda fund hjá Viðskiptaráði Íslands.
Fundurinn verður frá kl.08:30 - 09:30
Fundarstaður:  Viðskiptaráð Íslands, Kringlunni 7, Hús verslunarinnar 7.hæð
Fundarefni:  Horfur framundan - ögrandi verkefni
Fjallað um brýnasta úrlausnarefnið sem blasir við, sem er að laga skuldastöðu fyrirtækja (og heimila) að raunverulegri greiðslugetu til að koma þeim úr því millibilsástandi sem svo mörg eru í og engum er til gagns.
Einnig verður farið yfir horfur, eftirspurn, hagvöxt, o.fl.
Fyrirlesari: Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
 Hámarksfjöldi 30 manns

ISO hópur: Raðstefna í samstarfi við Endurmenntun HÍ: Þekking er mesta verðmæti þjóðarinnar. Tryggju

Ráðstefna ISO hóps Stjórnvísi í samstarfi við Endurmenntun HÍ
haldin:  föstudaginn 29.október 2010 frá kl.13:00 - 16:00.
Þekking er mesta verðmæti þjóðarinnar.  Tryggjum gæði í skólastarfinu með stjórnunarstöðlum.
Frítt er inn á ráðstefnuna sem er haldin í Endurmenntun HÍ
Dagskrá:

  1. Mat og úttektir á skólastarfi: Védís Grönvold, sérfræðingur, Menntamálaráðuneyti
  2. Úttektir á grunnskólum: Birna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri, Menntasviði Reykjavíkurborgar
  3. Hlutverk skólastjóra í gæðamálum: Helgi Grímsson skólastjóri Sjálandsskóla
  4. Af hverju gæðastjórnun í leikskóla? Ída Jensdóttir, leikskólastjóri Sjálandi
  5. Vottun samkvæmt ISO-9001 í framhaldsskóla. Helgi Kristjánsson, skólameistari MK
  6. Stjórnun gæðamála við Háskólann í Reykjavík: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR
  7. Hvernig er þjónusta HÍ? Viðhorf nemenda
  8. Hvernig er að kenna í ISO vottuðum skóla: Jóhanna Hinriksdóttir, dönskukennari
    Fundarstjóri: Jón Sigurðsson rekstrarhagfræðingur, formaður starfsgreinanefndar Mennta-og menningarmálaráðuneytisins.
    Ráðstefnan verður í húsakynnum Endurmenntunar HÍ
     

Sameiginlegur fundur Umhverfis-og Mannauðshóps: Líður þér vel í vinnunni?

Umhverfis-og öryggishópur ásamt Mannauðshóp standa saman að fundinum:
Líður þér vel í vinunni þinni?
Guðrún Adolfsdóttir matvælafræðingur Rannsóknaþjónustunni Sýni ehf, fjallar um "Að líða vel í eigin skinni - heilsufarsmælingar.  Maturinn er málið - að hlúa að kokkinum í sér og að gleðin gagnast alltaf best.
Guðrún Jónsdóttir, fjármálastjóri hjá Héðni.  Að hlúa vel að fólkinu sínu - reynslusaga
Elín Þorbergsdóttir, yfirmaður mötuneytis Marel mun fjalla um: Mötuneytið - hjarta fyrirtækisins.
Fundurinn verður haldinn hjá Rannsóknarþjónustunni Sýni ehf
Lynghálsi 3 (gengið inn að austanverðu)
fimmtudaginn 11.nóvember.

Markþjálfun stjórnenda og samskipti

Markþjálfun stjórnenda og samskipti
Sigrún Þorleifsdóttir segir frá rannsókn sinni á árangursríkum samskiptaleiðum í fyrirtækjum.  Í framhaldi af því munu Sigrún og Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna Háskólans, fjalla um hvernig fyrirtæki geta bætt árangur í samskiptum innan fyrirtækja með markþjálfun stjórnenda og með því að nýta hugmyndafræði markþjálfunar við stjórnun.
Fundurinn verður þann 15.nóvember 2010
kl.08:30 - 10:00
Staðsetning:  Opni Háskólinn í Reykjavík, Nauðhólsvík

Fjármál fyrirtækja: Áhættugreining- mikilvægt eftirlitstæki stjórnandans

Fundarefni: Áhættugreining - mikilvægt eftirlitstæki stjórnandans
Fjallað verður um úrbætur í áhættugreinngu á sviðum fyrirtækja-,markaðs-og skuldaráhættu.  Greiningaraðgerðir kynntar og farið yfir hvernig unnt er að setja fram áhættu fyrirtækisins á einfaldan og myndrænan hátt.
Fyrirlesari: Sigurvin Bárður Sigurjónsson, sérfræðingur á fyrirtækjasviði KPMG
Fundarstaður: KPMG, Borgartúni 27, kl.08:30 - 09:30

Þjónustuhópur: Ráðstefna: Sigurvegarar ánægjukannanna

Ráðstefnuheiti:  Sigurvegarar í ángægjukönnunum - Eru tengsl milli ánægju starfsmanna og viðskiptavina?

Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 18.nóvember í Háskólanum í Reykjavík: M.2.09 Herkúles 5 (Mars, önnur hæð)  kl. 08:30-11:00.
Ráðstefnustjóri er Sólveig Hjaltadóttir framkvæmdastjóri Réttindasviðs TR
Dagskrá:
Morgunkaffi í boði Íslenska gámafélagsins
Setning ráðstefnunnar
Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri sölu-og þjónustusviðs ÁTVR  " Þjónustumenning og ánægja viðskiptavina"
Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar  trygginga hf. " 3-2-1"
Ragnar Þór Jónsson, forstjóri  Öryggismiðstöðvarinnar  "Ánægðir starfsmenn, betri afkoma"
Jón Þór Frantzson forstjóri Íslenska gámafélagsins  " Græn gleði"
Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir,  lektor við HÍ.  "Hvern á maður að hlusta á?" Forysta og ánægja viðskiptavina og starfsmanna
 

Viðskiptagreindarhópur - heimsókn í Össur

Viðskiptagreindarhópur Stjórnvísi heimsækir Össur, en fyrir þá sem ekki vita þá er Össur alþjóðlegt fyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. 
Hjá fyrirtækinu starfa um 1600 starfsmenn á 14 starfsstöðvum í fjórum heimsálfum.  Össur er annar stærsti stoðtækjaframleiðandi í heiminum í dag.  Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi þar sem starfa um 270 manns við þróun, framleiðslu, þjónustu og stjórnun, en þangað er okkur boðið fimmtudaginn 18.nóvember n.k. til að heyra hvernig Össur hefur nýtt sér viðskiptagreind.
Á móti okkur tekur Kjartan Friðriksson sem mun fara yfir innleiðingarferlið og hvernig Össur nýtir sér BI lausnir í daglegum rekstri.
Kjartan útskrifaðist sem tölvunarfræðingur frá Háskóla íslands vorið 1999.  Hann starfaði við hugbúnaðarþróun árin 1998 til 2005 innanlands sem erlendis.  Árið 2005 réð hann sig til Össurar til þess að leiða uppbyggingu BI lausna fyrirtækisins.
Fundurinn hefst stundvíslega kl.15:30
Staðsetning:  Össur - Grjóthálsi 5,
18.nóvember kl.15:30

EFQM - Sjálfsmat í mannauðsmálum

EFQM mun halda einkar áhugaverðan fund um Sjálfsmat í mannauðsmálum.
Fundurinn verður haldinn 22.nóvember nk. frá kl.08:30 - 10:00
 
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík SSR, Síðumúla 39, gengið inn að neðanverðu.
Efni fundarins:  Norkun EFQM líkansins til að meta stöðu fyrirtækis/stofnunar í Mannauðsmálum.  Bæði verður farið í hvernig nota eigi líkanið og dæmi tekin um hvernig notagildið hafi verið.
 

Stofnfundur faghóps um Sköpunargleði

Stofnfundur faghóps um sköpunargleði verður haldin 23. nóvember 2010, kl. 8:30 – 9:30 í höfuðstöðvum Landsbanka Íslands, Hafnarstræti 5, 3. hæð.
 
Dagskrá fundar felst að mestu í umræðu um hvað sköpunargleði sé, tilganginum með stofnun sérstaks faghóps og helstu markmiðum. Til þess að koma uppsprettum sköpunarkraftarins af stað mætir þekktur yoga kennari og ætlar að kenna okkur jakkafata-yoga. Fulltrúar Landsbankans ætla líka að segja frá spennandi hugmyndum og verkefnum.
 
 

Lean - VMS-töflur

Á síðustu kynningu í Nóa-Síríus var áhugi fundarmanna svo mikill á VMS-töflum fyrirtækisins að ákveðið hefur verið að halda sérstaka kynningu einungis um þær.
VMS stendur fyrir Visual Management System en sýnileg stjórnun er einn af grundvallarþáttum straumlínustjórnunar.  Töflurnar eru mjög öflugt verkefnastjórnunartól og hægt er að nýta sér þær einar og sér, óháð öðrum aðferðum straumlínustjórnunar.
Kynningin verður 24.nóvember í Nóa-Síríus, Hesthálsi 2-4
Boðið verður upp á morgunbrauð kl.08:30, kynningin verður milli 08:40-09:40

ISO-hópur Hádegisverðarfundur: Á gæðastjórnun að vera hluti almenns náms

Hádegisverðarfundur ISO hópsins fimmtudaginn 25.11.2010 frá 12-13
Staðsetning: Landsvirkjun 

Hrun og hraun
Á gæðastjórnun að vera hluti almenns náms?

1) Ætti gæðastjórnun að vera hluti almenns náms í háskóla?
Fyrirlesari: Sigurður Óli Guðmundsson, BS í umhverfis-og byggingarfræði frá HÍ 2010.  Er núna í kennsluréttindanámi við Háskólann á Akureyri.  Sigurður vinnur í hlutastarfi hjá umhverfisstjóra LV en þeir eru m.a. með ISO 14000 vottun
2) Er grundvöllur fyrir skyldumenntun í gæðastjórnun í fögum eins og viðskiptafræði, endurskoðun og lögfræði.
Betri vitund og vinnubrögð í fjármálageiranum
Fyrirlesari: Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands

3) Hefði gæðastjórnun nýst í fyrstu viðbrögðum og vöktun Jarðvísindastofnunar í Eyjafjallagosinu.
 Ábyrgð, verkstjórn, skjölun, skráningar, áætlanir.
Fyrirlesari: Ármann Höskuldsson, fræðimaður við Jarðvísindastofnun Háskólans

4) Umræður

 

Lean - VMS Töflur fundur II

Uppbókað er á töflufundinn og hefur því verið settur upp annar fundur þann 1.desember kl.08:40 - 09:40
Á síðustu kynningu í Nóa-Síríus var áhugi fundarmanna svo mikill á VMS-töflum fyrirtækisins að ákveðið hefur verið að halda sérstaka kynningu einungis um þær.
VMS stendur fyrir Visual Management System en sýnileg stjórnun er einn af grundvallarþáttum straumlínustjórnunar.  Töflurnar eru mjög öflugt verkefnastjórnunartól og hægt er að nýta sér þær einar og sér, óháð öðrum aðferðum straumlínustjórnunar.
Kynningin verður 1.desember í Nóa-Síríus, Hesthálsi 2-4
Boðið verður upp á morgunbrauð kl.08:30, kynningin verður milli 08:40-09:40U

Gæðastjórnunarhópur: Ferlar fyrirtækja sem tengjast viðskiptavini

Fundur hjá Gæðastjórnunarhópi Stjórnvísi haldinn 6.desember kl.08:30 - 09:30
Staðsetning:  Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68.
Fyrirlesari:  Guðmundur S. Pétursson, gæða og öryggismálastjóri Landsvirkjunar
"Ferlar fyrirtækja sem tengjast viðskiptavini"
Fjallað verður um þá þætti í starfsemi fyrirtækja sem varðar afhenta vöru eða veitta þjónustu. 
Hvað segja kröfur ISO 9001 staðalsins um vöru og meðhöndlun henntar m.t.t. mismunandi gerða fyrirtækja?
Hvernig eiga tengsl  fyrirtækja og viðskiptavina þeirra að vera samkvæmt kröfum ISO 9001?
Hvernig er árangur mældur og hvernig eiga fyrirtæki að vinna með endurgjöf viðskiptavinar samkvæmt
kröfum ISO 9001?

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?