Human-Centered Design - Define to Understand. Haldinn í Reykjavík Excursions

A workshop tailored around human-centered design applied to uplift customer experience.

During the workshop, you will learn the theory behind Human-Centered Design including where, how and why it is used. Dive into activities helping you to define the specific problem your customers have, ensuring you’re solving the right problem.

Lara Husselbee
will join us here in Reykjavik for two workshops from Australia. She has worked as a Service & Experience Designer in the Australian Financial Sector and Tech Industry coming close to 10 years. She has used Human-Centered Design, Design Thinking and Agile methodologies to help brands uplift and deliver exceptional client, customer and employee experiences. 

Human-Centered Design allows you to find solutions that are right for your clients, your customers and your people. 

Design Thinking is the perfect collection of tools and techniques to drive innovation.

And Agile is a framework to enhance how you deliver, optimize and maximize your effort, learning and adapting as you go. 

All are aligned in empathy.

Maximum of 40 participants.

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Hvernig sköpum við aðstæður þar sem starfsfólk fær raunverulegt svigrúm til að þróa nýjar hugmyndir, prófa lausnir og hugsa þjónustu upp á nýtt?

Í þessari kynningu segjum við frá Afleggjaranum, nýsköpunarhraðli Reykjavíkurborgar, þar sem starfsfólk fær tækifæri til að stíga út úr daglegum verkefnum og vinna markvisst að áskorunum í þjónustu borgarinnar með aðferðum þjónustuhönnunar.

Við förum yfir hvernig hugmyndin að Afleggjaranum kviknaði og hvernig reynsla úr fyrri þróunar- og nýsköpunarverkefnum lagði grunninn að þeirri nálgun sem notuð er í dag.

Þátttakendur fá líka að líta á bak við tjöldin. Við segjum frá því hvernig við hönnum ekki aðeins ferli og vinnustofur heldur heildstæða upplifun fyrir þátttakendur. Hvaða áhrif hafa rýmið, umgjörðin, menningin og leiðin sem fólk vinnur saman á sköpunarkraft, samstarf og árangur? Og hvað gerist þegar starfsfólki er gefinn tími, traust og réttu verkfærin til að takast á við áskoranir á nýjan hátt?

Að lokum skoðum við nokkur verkefni sem hafa farið í gegnum Afleggjarann, hvað hefur sprottið upp úr þeim og hvaða lærdóm við höfum dregið af vegferðinni hingað til.

Um fyrirlesara

Eva Jakobsdóttir, þjónustuhönnuður, og Valý Þórsteinsdóttir, sérfræðingur í þjónustuupplifun, starfa á þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Þær vinna að þróun og umbótum á þjónustu borgarinnar með aðferðum þjónustuhönnunar, leiða Afleggjarann í sameiningu og styðja við innleiðingu þjónustustefnu Reykjavíkurborgar. Í starfi sínu leggja þær áherslu á að þróa þjónustu út frá þörfum og upplifun þeirra sem nota hana, jafnt íbúa sem starfsfólks.

 

Viðburðurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu M220. Honum verður ekki streymt. 

Nóg af bílastæðum 

 

Hlökkum til að sjá ykkur 

Aðalfundur faghóps þjónustu- og markaðsstjórnun

Faghópur þjónustu- og markaðsstjórn boðar hér með til aðalfundar 4. maí kl. 16:30.

Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 27, jarðhæð, í húsakynnum KPMG.

Dagskrá fundar

  • Uppgjör starfsárs
  • Kosning stjórnar
  • Áherslur og verkefni næsta starfsárs
  • Önnur mál

Öll sem vilja taka þátt eru hjartanlega velkomin. Núverandi stjórn er skipuð, en við tökum ávallt vel á móti öflugu og drífandi fólki sem vill leggja starfinu lið. Þau sem hafa áhuga á að koma að starfinu, endilega sendið línu á maria.agustsdottir@outlook.com.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Þjónustumenning sem lykill að árangri

Viðburðurinn Þjónustumenning sem lykill að árangri er samstarf faghóps í þjónustu- og markaðsstjórnun hjá Stjórnvísi og Rannsóknamiðstöðvar um markaðs- og þjónustufræði við Viðskiptafræðideild HÍ á ráðstefnunni Viðskipti og vísindi 2026. Markmiðið er að draga fram mikilvægi þjónustumenningar fyrir árangur skipulagsheilda en rannsóknir hafa sýnt að tiltekin fyrirtækjamenning leggur gjarnan grunninn að þeim árangri sem stefnt er að.
 
Fyrirlesararnir hafa öll yfirgripsmikla þekkingu á þjónustustjórnun en dagskrá er eftirfarandi:
  • Magnús Haukur Ásgeirsson, Þjónustumenning, forsendur og ávinningur: Magnús er aðjúnkt við Háskóla Íslands og hefur áralanga reynslu af rekstri og stjórnun þjónustufyrirtækja. Í fyrirlestrinum fjallar hann um tilurð þjónustumenningar, hvernig slík menning myndast og hvernig skilgreiningar á henni hafa þróast. Einnig verður sýnt hvernig markviss uppbygging þjónustumenningar getur skilað betri frammistöðu, ánægðara starfsfólki, sterkari þjónustuupplifun gesta og auknum þjónustugæðum.
  • Anna Margrét Steingrímsdóttir, Þjónustumenning – áhrifaþáttur í árangri: Anna Margrét er framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga og fjallar í erindi sínu um hvernig þjónustumenning mótar árangur skipulagsheilda og hvernig innri markaðssetning spilar lykilhlutverk. Sjónum verður beint að því hvernig stjórnendur geta markvisst byggt upp menningu sem styður við jákvæða þjónustuhegðun sem skilar sér í aukinni starfsánægju og árangri.
  • Andri Geirsson, Að gera þjónustu áþreifanlega: Andri er teymisstjóri þjónustuhönnunar hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. Í erindi sínu fjallar hann um hvað þjónusta er og hvernig hægt er að setja hana fram með myndrænum hætti. Dregið er fram af hverju þjónustumenning skiptir máli og hvernig hægt er að bjóða notendum „upp í dans.“
  • Guðrún Finnsdóttir, Hvort kom á undan, kúltúrinn eða þjónustan? Guðrún leiðir kúltúr og fræðslumál hjá Nova. Í erindi sínu fer hún beint í kjarnann; fólk, liðsheild og þau ósýnilegu öfl sem skapa upplifun. Undirstrikar að áður en viðskiptavinurinn upplifir þjónustu, upplifir starfsfólkið vinnustaðinn.
 
Viðburðurinn verði haldinn á Háskólatorgi í stofu HT-103 í Háskóla Íslands miðvikudaginn 18. mars og hefst kl. 16.30 og lýkur eigi síðar en kl. 18.00. Fundarstjóri er Unnur Líndal Karlsdóttir sem situr í stjórn faghóps í þjónustu og markaðsstjórnun hjá Stjórnvísi. Viðburðurinn er opinn öllum og hann gefur tækifæri til að kynnast faglegri nálgun og reynslu af þjónustustjórnun.

Staða og framtíð CX á Íslandi – niðurstöður nýrrar könnunar og reynsla Samskipa

Kári Þór fer yfir niðurstöður glænýrrar könnunar sem skoðaði stöðu CX (customer experience) á Íslandi, þar sem yfir 150 sérfræðingar sem starfa við CX á Íslandi tóku þátt. Skýrslan dregur fram í sviðsljósið viðhorf sérfræðinga sem og stjórnenda, mikilvægi CX mála innan fyrirtækja og möguleg sóknartækifæri. Að auki kemur Kári inn á mikilvægi þess að huga að CX málum með markvissum og gagnadrifnum hætti, bæði til aðgreiningar við önnur fyrirtæki sem og til að ná forskoti á samkeppnismarkaði.

Ágústa Hrund, frá Samskipum, deilir með áheyrendum hvernig Samskip setja áherslu á ánægju og upplifun viðskiptavina í sínu starfi og hvernig það spilar hlutverk í Better Samskip hugmyndafræðinni innanhúss.

Fyrirlesarar:

Kári Þór Rúnarsson, stofnandi Brilliant.is

Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa

Viðburðurinn fer fram í húsakynnum Opna háskólans í HR, stofa M216 á 2. hæð. 

Frá notanda til viðskiptavinar

Þjónusta í fyrsta sæti. 
 
Á örfáum árum hafa Veitur ohf. breytt starfsemi sinni og viðhorfi og sett viðskiptavini í forgrunn alls sem gert er. Veitur eru fyrirtæki í sérleyfisstarfssemi og viðskiptavinir hafa ekki val um að fara annað og þess vegna er sérstaklega mikilvægt að þjónusta sé í fyrsta sæti.
 
Brynja Ragnarsdóttir, fyrrum forstöðukona Þjónustu hjá Veitum, segir frá því hvernig Veitur breyttu menningu innan fyrirtækisins með markvissum hætti.
 
Veitur hlutu bronsverðlaun í stærstu þjónustukeppni í Evrópu árið 2024 og eru nú aftur komin í úrslit fyrir þjónustu við viðskiptavini.
 
Fundurinn fer fram í Rímu á jarðhæð Hörpu. Næg bílastæði í bílakjallara Hörpu. Ekki verður boðið upp á streymi á vef.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?