Gæðastjórnunarhópur: Innleiðing ISO 9001 gæðastaðalsins hjá Þjóðskrá Íslands

Fundur á vegum gæðstjórnunarhóps:

Innleiðing ISO 9001 gæðastaðalsins hjá Þjóðskrá Íslands
Fundarefni - nánar:
Fasteignaskrá Íslands og Þjóðskrá sameinuðust í eina stofnun Þjóðskrá Íslands í júlí 2010. Hjá stofnuninni vinna nú rúmlega 90 manns á þremur starfsstöðvum. Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að halda fasteignaskrá og þjóðskrá, ákveða brunabótamat og fasteignamat og annast rannsóknir á fasteignamarkaðinum. Stofnunin sér einnig um rekstur starfs- og upplýsingakerfa fyrir sýslumenn og sveitarfélög og gefur út vegabréf. Þjóðskrá Íslands leggur áherslu á rafræna stjórnsýslu og rekur meðal annars upplýsinga- og þjónustuveituna Ísland.is.
Á fundinum verður rætt hvernig innleiðing á sameiginlegu stjórnkerfi gæðamála verður notað sem tæki til þess að aðvelda yfirsýn yfir margvísleg og flókin verkefni nýrrar stofnunar. Sameiginleg framtíðarsýn, gildi og gæðamarkmið verða kynnt ásamt nýju gæðaumsýslukerfi sem verður tekið í notkun samhliða innleiðingunni.
Framsögumenn
Sólveig J Guðmundsdóttir, forstöðumaður þjóðskrár-og gæðasviðs
Þorvarður Kári Ólafsson, gæða-og öryggisstjóri

Fundarstaður
Þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, Reykjavík
Fundurinn verður í fundarsal Ríkissáttasemjara, á 4.hæð.

Íslensk fyrirtæki í fyrsta sinn með í Global Security Survey

Faghópur um Upplýsingaöryggi boðar til fundar þann 29.nóvember nk. Á þeim fundi mun Tryggvi R. Jónsson, áhættuþjónustu Deloitte kynna áhugaverðar niðurstöður „Global Security Survey 2010“ þar sem tóku í fyrsta skiptið þátt íslensk fyrirtæki

Þetta er fundur sem allir þeir sem bera ábyrgð á upplýsingaöryggi í sínum fyrirtækjum ættu að hafa áhuga á .

Jafnframt verður kosin ný stjórn faghópsins og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Stjórnvísi.

Landspítali, félagsstofnun til fyrirtækis með félagslega ábyrgð

Hvernig er stjórnað á Landspítalanum? Björn Zoega forstjóri LSH mun leiða okkur í allan sannleikann um stefnumótunarvinnu LSH.
Björn nefnir fyrirlesturinn: "Landspítali, félagsstofnun til fyrirtækis með félagslega ábyrgð". Í honum mun hann fjalla um hvernig stefnumótunarvinnan er unnin, hvernig hún er nýtt og að lokum hvernig stjórnað er eftir henni.
hann verður í fundarsalnum á 4B, Eiríksgötu 5,

Hvernig er stjórnað á Landspítalanum? Landspítali, félagsstofnun til fyrirtækis með félagslega ábyr

  1. November 2011 | 08:30 - 09:45

Landspítali, félagsstofnun til fyrirtækis með félagslega ábyrgð

Faghópur um Stefnumótun og Balanced Scorecard

Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík

Hvernig er stjórnað á Landspítalanum? Björn Zoega forstjóri LSH mun leiða okkur í allan sannleikann um stefnumótunarvinnu LSH.
Björn nefnir fyrirlesturinn: "Landspítali, félagsstofnun til fyrirtækis með félagslega ábyrgð". Í honum mun hann fjalla um hvernig stefnumótunarvinnan er unnin, hvernig hún er nýtt og að lokum hvernig stjórnað er eftir henni.
hann verður í fundarsalnum á 4B, Eiríksgötu 5,

FRESTAÐ - Markþjálfun fyrir nýja stjórnendur

ATHUGIÐ !

Af óviðráðanlegum ástæðum þurfum við að fresta fundinum hjá Íslandsbanka sem halda átti 1. desember n.k. fram í janúar. Nánari tímasetning verður auglýst síðar.

Nýir stjórnendur sem fá tækifæri til að vinna með markþjálfa geta aukið mjög líkur sínar á að ná góðum árangri. Íris Ösp Bergþórsdóttir, mannauðsráðgjafi og stjórnendamarkþjálfi, segir frá því hvernig Íslandsbanki hefur nýtt markþjálfun fyrir nýja stjórnendur til að auðvelda þeim að takast á við nýtt hlutverk og ná auknum árangri.

Kynning á grunnatriðum Lean

Um þessar mundir er mikill áhugi á Lean (straumlínustjórnun/ umbótavinnu), margir að velta fyrir sér hvað Lean er og hvort það sé satt að fyrirtæki geti náð eins miklum árangri með þessum aðferðum og sögur ganga af.

Á kynningunni mun Þórunn M. Óðinsdóttir stjórnunarráðgjafi fjalla á mannamáli um grunnatriði Lean og flétta inn nokkrum dæmum um hvernig fyrirtæki hérlendis hafa verið að nýta sér umbótavinnuna.

Allir sem eru að velta fyrir sér hvað Lean er eða eru aðeins byrjaðir að skoða þessar aðferðir eru sérstaklega hvattir til að koma. Aðrir sem eru lengra komnir í fræðunum eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir líka.

Boðið verður upp á kaffi og súkkulaði.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7, kl. 12.00-13.00

Er stefnan og framkvæmdin lykillinn að velgengni Össurar ?

Kynning á stefnumótunarferli og framkvæmd stefnunnar hjá Össuri

  • Grjótháls 5, 14. desember kl: 8:20 - 9:30.

Össur hefur farið í gegnum umrót undanfarinna ára.
Það verður því spennandi að heyra Margréti Láru Friðriksdóttur aðstoðarmann forstjóra Össurar og "director of strategic management" fara yfir stefnumótunarferlið og hvernig starfsmönnum Össurar hefur gengið að framkvæma stefnuna.

Athugið Takmarkaður fjöldi.
Mætið tímanlega. Það verður kaffi og með því frá 8:20.

Indlandsævintýri og matur sem kætir

Indlandsævintýri og matur sem kætir

Birna Dröfn Birgisdóttir mun segja frá reynslu sinni sem hún öðlaðist í jógasetri í Indlandi síðastliðið sumar. Rannsóknir hafa sýnt að þessi aðferð sem hún lærði þar getur:
• Aukið sköpunargleði starfsmanna
• Bætt heilabylgju starfsemi
• Aukið innsæi
• Bætt einbeitingu
• Minnkað verki sem plága starfsmenn hvað mest

Elísabet Reynisdóttir, sjálfstætt starfandi næringaþerapisti í Baðhúsinu, mun svo fjalla um mat sem kætir og ýtir þannig undir sköpunargleði.

Fundargerð stjórnar faghóps 15.desember 2011

Fundargerð stjórnar faghóps 15.desember 2011

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?