Verðlaunahafar í Nýsköpunarsamkeppni ríkisstofnana

Faghópur um Nýsköpun heldur sérstakan fund í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana þar sem kynnt verða þau verkefni sem nýlega fengu verðlaun og viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberum rekstri. Fundurinn verður haldinn hjá Vinnumálastofnun og mun Eyþór Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks stjórna fundinum.

Markmið fundarins er að vekja athygli á nýsköpun í opinberum rektri, ekki síst fyrir þeim sem starfa á einkamarkaði.

Þeir sem hlutu verðlaun og viðurkenningar og munu kynna verkefni sín eru:
Lögreglustjórinn á Hvolsvelli,
Landmælingar Íslands; Eydís Líndal kynnir verkefnið
Blindrabókasafn Íslands; Þóra Ingólfsdóttir forstöðumaður
og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu: Stefán Eiríksson, lögreglustjóri

Nýsköpun með raforku - Northern Light Energy

Gísli Gíslason stjórnarformaður kynnir fyrir okkur starfssemi Northern Light Energy og verkefni á þeirra vegum

  • Rafbílavæðing Íslands
  • Fleiri verkefni á döfinni

Rafbílar verða til sýnis fyrir gesti fundarins.

Kynning á vordagskrá Stjórnvísi

Kynning á vordagskrá Stjórnvísi

Haldin á Nauthól bistró

Stjórn Stjórnvísi og stjórnir allra faghópa Stjórnvísi munu kynna áhugaverða vordagskrá. Einnig mun fara fram stutt kynning á uppfærðri heimasíðu félagsins. Fundurinn er öllum opinn og félagar hvattir til að koma með hugmyndir og kynna sér spennandi dagskrá vorsins.
Dagskrá:
kl.15:30 Jón G. Hauksson, formaður stjórnar Stjórnvísi
kl.15:35 isProject kynnir nýjungar á heimasíðu félagsins
kl.15:45 CAF/EFQM
kl.15:50 Fjármál fyrirtækja
kl.15:55 Gæðastjórnun
kl.16:00 Hugbúnaðarprófanir
kl.16:05 ISO-hópur
kl.16:10 Lean-Straumlínustjórnun
kl.16:15 Mannauðsstjórnun
kl.16:20 Markþjálfun
kl.16:25 Nýsköpun
kl.16:30 Sköpunargleði
kl.16:35 Stefnumótun og Balanced Scorecard
kl.16:40 Umhverfi-og öryggi
kl.16:45 Upplýsingaöryggi
kl.16:50Viðskiptagreind
kl.16:55Þjónustustjórnun

Fullbókað á Hrós sem stjórntæki: Örn Árnason, leikari

Gerum betur ehf. www.gerumbetur.is býður þér á fyrirlestur um Hrós með Erni Árnasyni leikara.

Það vilja allir vera metnir að verðleikum og fá umbun fyrir það sem þeir gera vel. Okkur er ekki tamt að hrósa og eigum oft erfitt með að taka hrósi. Kúnstin er að kunna að hrósa á réttan hátt fyrir það sem vel er gert.

Stefnumótunarferli innan stjórnsýslunnar - stefnumótun um starfshætti og verklag velferðarráðuneytis

Velferðarráðuneytið var stofnað 1. janúar 2011 þegar heilbrigðisráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið voru sameinuð. Ráðuneytið fór í stefnumótunarvinnu í framhaldi sameiningarinnar um starfshætti og verklag ráðuneytisins.

Fyrirlesari: Fjóla María Ágústsdóttir, sérfræðingur í stefnumótun og þróun hjá velferðarráðuneytinu

Umræðufundur

Opin umræða fundarmanna um markmið með gæðastjórnun og mikilvægi krafna í stjórnun fyrirtækja.

Framsögu hefur Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri Landsvirkjunar

Fagleg og hagnýt umfjöllun um starfsmannaskemmtanir og uppákomur á vinnustöðum

Sigurlaug Jónsdóttir fjallar um niðurstöður óbirtrar meistararitgerðar sinnar sem fjallar um starfsmannaskemmtanir og vinnustaðagleði.
Helga Fjóla Sæmundsdóttir gestgjafi og mannauðsstjóri hjá Íslenska Gámafélaginu lýsir vinnustaðnum og því hvernig gleðin fer þar fram.

Fundurinn er haldinn í Íslenska gámafélaginu, Gufunesi

Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?

Gæðastjórnunarhópur og CAF / EFQM hópur Stjórnvísi standa fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi um Íslensku gæðaverðlaunin þriðjudaginn 31. janúar nk. frá kl. 08:30 - 10:00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Landsvirkjunar og er yfirskrift fundarins: Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?

Dagskrá

08:30 Íslensku gæðaverðlaunin - lærir sem lifir. Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur á skrifstofu velferðarþjónustu hjá Velferðarráðuneytinu.

08:45 CAF/EFQM matslíkön - kynning. Sigurjón Þór Árnason, gæða- og öryggisstjóri hjá Tryggingastofnun.

09:05 Íslensku gæðaverðlaunin - Ávinningur frá sjónarhóli viðurkenningarhafa. Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri hjá Landsvirkjun.

09:30 Pallborðumræður „Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?“

10:00 Fundarlok

Fundarstjóri: Linda Rut Benediktsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og gæðamála hjá Tollstjóra.

Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?

Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?
Gæðastjórnunarhópur og CAF / EFQM hópur Stjórnvísi standa fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi um Íslensku gæðaverðlaunin þriðjudaginn 31. janúar nk. frá kl. 08:30 - 10:00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Landsvirkjunar og er yfirskrift fundarins: Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?

Fjallað verður um CAF og EFQM sjálfsmatslíkönin, Íslensku gæðaverðlaunin og ávinning af því að hljóta slíka viðurkenningu. Þá verður rætt um gildi þess að Íslensku gæðaverðlaununum verði aftur komið á. Fyrirlesarar koma frá velferðarráðuneytinu, Landsvirkjun og Tryggingastofnun.

Dagskrá:

08:30 Íslensku gæðaverðlaunin - lærir sem lifir. Þór G. Þórarinsson,
sérfræðingur á skrifstofu velferðarþjónustu hjá Velferðarráðuneytinu.

08:45 CAF/EFQM matslíkön - kynning. Sigurjón Þór Árnason, gæða- og
öryggisstjóri hjá Tryggingastofnun.

09:05 Íslensku gæðaverðlaunin - Ávinningur frá sjónarhóli
viðurkenningarhafa. Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri hjá
Landsvirkjun.

09:30 Umræður „Þarf að endurvekja Íslensku gæðaverðlaunin?“

10:00 Fundarlok

Fundarstjóri: Linda Rut Benediktsdóttir, forstöðumaður þjónustu- og gæðamála hjá Tollstjóra.

Straumlínulögun verkefnastjórnunar

Straumlínustjórnun

  1. janúar kl. 12.00 - 13.00 í HR stofu M1-22
    Straumlínulögun verkefnastjórnunar
    Verkefnastjórnun er í stöðugri þróun og sífellt bætast við nýjar aðferðir við stýringu verkefna. Á kynningunni mun Björk Grétarsdóttir verkefnastjóri í Landsbankanum segja frá lokaverkefni sínu við MPM námið. Í verkefninu var leitast við að bera verkefnastjórnun og straumlínustjórnunn saman út frá hæfniauga hugtakalykilsins og 25 helstu einkennum straumlínustjórnunar, og skoðað hvernig kortlagning virðisstrauma og sjónræn stjórnum (VMS töflur) falla að verkefnastjórnun. Þá mun hún einnig segja frá því hvernig þessar aðferðir nýtast henni í störfum sínum sem verkefnastjóri.
    Allir sem hafa áhuga á verkefnastjórnun eða notkun á þessum aðferðum eru hvattir til að mæta
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?