Streymi
Stjórnvísisviðburður
Hér er linkur á viðburðinn: https://www.youtube.com/watch?v=xLfBTZZhCs0
Nova hlaut nafnbótina Markaðsfyrirtæki ársins 2020 á vegum ÍMARK og langar að því tilefni að bjóða meðlimum Stjórnvísis í heimsókn í netheimum þann 18. mars klukkan 12. Þar mun Nova fara yfir það hvernig markaðsstarfið, þjónustan og helstu þættir starfseminnar tvinnast saman með ánægjuna að leiðarljósi. Slóð á streymið verður bætt inn í aðdraganda dagsins.
Í kjölfar heimsóknarinnar hefst ráðstefnan Hraðleið að ánægju á vegum Nova - sem fer fram í netheimum. Ráðstefnan skartar meðal annars fyrirlesurum og sérfræðingum frá Disney Institute og Joseph Michelli, metsöluhöfundi og einum vinsælasta þjónustufyrirlesara heims. Úrvalslið fyrirlesara mun jafnframt stíga á stokk sem öll eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli þekkingu og reynslu í að skapa og veita framúrskarandi þjónustuupplifun!
Meðlimum Stjórnvísis býðst að kaupa miða á ráðstefnuna á sérkjörum eða 19.990kr með því að setja inn kóðann stjórnvísi í kaupferlinu.
Viðskiptavinir í fyrirtækjaþjónustu hjá Nova fá frían miða á ráðstefnuna með því að skrá sig hér.