Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2021 - í beinu streymi

Hátíðin hefur verið sett aftur á dagskrá þann 26.apríl nk. kl.16:00 og verður í beinu streymi. 
Tengill á streymið er hér.
Stjórnvísi óskar öllum þeim sem eru tilnefndir til Stjórnunarverðlaunanna 2021 innilega til hamingju.
Smelltu hér til að sjá nöfn þeirra sem eru tilnefndir 2021

Í tilefni afhendingar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2021 þann 26. apríl nk. býður Stjórnvísi til hátíðarmóttöku á Grand hótel, Háteig, kl. 16.00 til 17:15.  Sökum fjöldatakmarkana er ekki hægt að bjóða öllum þeim sem eru tilnefndir til hátíðarinnar eins og áður hefur verið gert en við hvetjum alla eindregið til að bóka sig og fylgjast með hátíðinni í beinu streymi. Þeir sem mæta á Grand hótel hafa verið boðaðir þangað sérstaklega s.s. forseti Íslands, hátíðarstjóri, formaður Stjórnvísi, dómnefnd o.fl.)

Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp.

Veitt verða verðlaun í þremur flokkum.  

Dagskrá:
Setning hátíðar: Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Stjórnvísi. 
Hátíðarstjóri: Kristinn Tryggvi Gunnarsson, breytingastjóri hjá HMS. 

Viðurkenning veitt heiðursfélaga Stjórnvísi 2021
Borghildur Erlingsdóttir formaður dómnefndar gerir grein fyrir vali dómnefndar á stjórnendum ársins 2021

Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp.
Félagsmenn Stjórnvísi eru sérstaklega hvattir til að fylgjast með hátíðinni ásamt öllu fag- og áhugafólki um stjórnun.

Dómnefnd 2021 skipa eftirtaldir:
Borghildur Erlingsdóttir, formaður dómnefndar og forstjóri Hugverkastofunnar.
Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Viss ehf.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs.
Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Festi og fyrrverandi forstjóri Icepharma hf.
Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri  Icelandic Startups.
Þröstur Olaf Sigurjónsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi.

Nánari upplýsingar um Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi er að finna hér.

Með kærri kveðju,
Gunnhildur Arnardóttir
Framkvæmdastjóri Stjórnvísi

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Undirbúningsfundur stjórnar Stjórnvísi 2026-2027 (lokaður fundur)

Undirbúningsfundur stjórnar fyrir starfsárið 2026-2027 verður haldinn fimmtudaginn 28.maí kl.10:00-13:00 í Marel. Meginmarkmiðið er að kynnast betur, skerpa á stefnu félagsins, mælaborði og ákveða þema starfsársins og áhersluverkefni í framhaldi af niðurstöðum nýjustu könnunar. Einnig verður farið yfir aðganga stjórnar að hinum ýmsu kerfum og ákveðinn fundartími stjórnar.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.

Dagskrá fundar:

  1. Samskiptasáttmáli.
  2. Yfirferð á framtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum.
  3. Áætlun og lykilmælikvarðar.
  4. Farið yfir aðganga stjórnar að SharePoint, Teams, Facebook og að skrá sig í faghópinn “Stjórn Stjórnvísi
  5. Þem a ársins ákveðið og útfærsla rædd.
  6. Kynning á fyrrum áhersuverkefnum stjórnar – áhersluverkefni starfsársins ákveðin.
  • Tímasetningar ákveðnar á helstu viðburðum starfsársins.
  • Settar niður hugmyndir að haustráðstefnu (fundarstjóra og fyrirlesurum) Stjórnunarverðlaunum (verða þau með sama móti?).
  • Fundartími stjórnar og staðsetningar á fundum ákveðnar.
    • Leggjum til fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 11:00-12:00 ýmist á Teams eða á vinnustöðum hvors annars. Val um að borða saman að loknum stjórnarfundi.
  • Kosning varaformanns og ritara næsta starfsárs.

Aðalfundur faghóps Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi

Aðalfundur faghóps um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi verður haldinn þriðjudaginn 26. maí 2026 kl. 13:00 að Bæjarhálsi 1 og á Teams.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Stjórnarkjör
  3. Kosning formanns
  4. Önnur mál

Lower Costs, Higher Satisfaction: What Iceland Can Learn from Saga

Hlekkur á fundinn er hér.

Short description

Many organisations struggle with rising costs, changing work patterns, underused office space, and increasing pressure on employee wellbeing.

At the University of Iceland, the transformation of the former Hotel Saga became much more than a building project. It evolved into a broader journey around workplace quality, wellbeing, collaboration, and organisational performance.

In this session, Kristinn Jóhannesson and Tim de Vos-Donkers will share practical lessons from the Saga project and explore how organisations can use space more intelligently while improving employee satisfaction, flexibility, collaboration, and overall workplace quality.

The session will focus not only on physical space, but on the relationship between environment, behaviour, leadership, health, and organisational performance.

Speakers

Kristinn Jóhannesson

Director of Operations and Resources at the University of Iceland. Kristinn has led the transformation of the Saga project and has played a key role in introducing new workplace concepts within Icelandic organizations.

 

Tim de Vos-Donkers

Senior Consultant and Global Culture & Change Lead at Veldhoen + Company (The Netherlands), an international consultancy specialized in workplace strategy, organizational change, and workplace performance. Tim has supported organizations all around the world in connecting workplace design, behavior, wellbeing, and organizational performance.

Aðalfundur faghóps um gæðastjórnun og ISO staðla - 2026

Aðalfundur faghópsins Gæðastjórnun og ISO staðlar, fyrir árið 2026, verður haldinn 22. maí kl. 12.00-13:30.
Staðsetning: VOX Brasseria, Suðurlandsbraut 2.

Þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið sigarnar@live.com


Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Gæðastjórnun og ISO staðlar:
  • Framsaga formans - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

     

---
F.h. faghópsins

Sigurður Arnar Ólafsson

 

Aðalfundur Öryggishóps Stjórnvísi

Aðalfundur faghópsins Öryggishóps Stjórnvísi verður haldinn þann 21 maí nk. Þetta er staðarfundur og þeir sem hafa áhuga á að mæta vinsamlegast sendið tölvupóst á formann (fjola.gudjonsdottir@kaldvik.is).
Vakin er athygli á því að ein staða laus í stjórn félagsins.
Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á formann faghópsins með upplýsingum um sig og ástæðum þess að viðkomandi gefur kost á sér í stjórn faghópsins. 

Dagskrá: 

  • Framsaga formanns - yfirlit yfir starfsemi ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar
  • Ákvörðun um fyrsta fund 2026-2027
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?