Sigurður Ólafsson, starfsmannastjóri og stjórnendaþjálfari Isavia ohf. mun kynna fyrirtækið sem nýverið fór í gegnum miklar skipulagsbreytingar og segja frá því hvernig Isavia hefur nýtt sér markþjálfun fyrir sína stjórnendur.
Sigrún Þorleifsdóttir, stjórnendaþjálfari hjá Vendum – stjórnendaþjálfun, mun fjalla um markþjálfun í hópum (Group Coaching) en aðferðir markþjálfunar henta vel fyrir liðsheildir og hópa sem vilja ná auknum árangri.
Fundurinn verður þann 30. mars 2011
hjá Isavia, Reykjavíkurflugvelli við hlið flugturnsins
kl.08:30 - 10:00
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur |
|
28
|
29
|
30 |
31
|
01
|
02
|
03
|
|
04
|
05 | 06 | 07 |
08
|
09
|
10
|
|
11
|
12
|
13 | 14 |
15
|
16
|
17
|
|
18
|
19
|
20
|
21
|
22
|
23
|
24
|
|
25
|
26
|
27
|
28
|
29
|
30
|
01
|
ISO-hópurinn heldur fund þann 5.4.2011 frá kl.08:30 - 10:00.
Staður: Stafir lífeyrissjóður, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Efni: Samþætting skjala-og gæðastjórnunar
Fyrirlesarar
· Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs
Efni: Innleiðing skjala- og gæðastjórnunar skv. ISO 9001
· Ásgerður Kjartansdóttir, deildarstjóri upplýsingadeildar á upplýsinga- og fjármálasviði mennta- og menningamálaráðuneytisins
Efni: Aðlögun skjalamála að gæðstjórnun skv. ISO 9001
· Margrét Eva Árnadóttir, ráðgjafi hjá Gagnavörslunni
Efni: Þrenningin ISO 15489, ISO 27001 og ISO 9001
Balanced Scorecard: Reynsla af stefnumiðuðu árangursmati hjá Upplýsingatæknimiðstöð
· UTM Upplýsingatæknimiðstöð
· Staður: Borgartúni 12-14, 7. hæð
· Efni: Reynsla af stefnumiðuðu árangursmati hjá Upplýsingatæknimiðstöð.
· Fyrirlesari: Hjörtur Grétarsson
· Dags: 6. apríl
· Kl. 8:30-10:00
Faghópur um Þjónustustjórnun boðar til fundar þann 6.apríl nk.
Fundarstaður: Marel
Boðið verður upp á morgunkaffi frá kl.08:15
Fundartími : 08:30 - 09:30/09:45
Fyrirlesarar:
Halldór Magnússon framkvæmdastjóri " Þjónustufyrirtækið Marel"
Ingólfur Gauti Arnarson hópstjóri hugbúnaðarþjónustu "Verkefnastjórnun í hugbúnaðarþjónustu með Kanban"
kl.09:15 verður boðið upp á leiðsögn um fyrirtækið sem áætlað er að ljúki kl.09:30 - 09:45
Umhverfis-og öryggishópur auglýsir:
Fundur haldinn 7.apríl nk. í Reykjanesvirkjun frá kl.08:15-09:45.
Leiðarlýsing: Frá Reykjavík keyrt eftir Reykjanesbraut, síðan beygt áleiðis til Grindavíkur, rétt áður en komið er til Grindavíkur er vegvísir til Reykjaness, síðan sést virkjunin vel eftir að keyrt er fram hjá Gunnuhversssvæðinu
Fyrirlesarar eru:
Þorgrímur Stefán Árnason, öryggis-heilbrigðis-og umhverfisstjóri HS Orku hf.
Heiti á erindi: Kynning á öryggismálum við beislun jarðhita og vettvangsferð um virkjunarsvæði Reykjanesvirkjunar
Víðir S. Jónsson, verkefna-og kynningarstjóri HS Orku hf.
Lean menning Fjarðaáls
Magnús Þór Ásmundsson, framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar Fjarðaáls segir frá menningu Fjarðaáls og hvernig hún hefur verið þróuð innan fyrirtækisins m.t.t. ferlaskipulags og stjórnkerfa Alcoa. Um sérlega áhugaverðan fyrirlestur er að ræða þar sem starfsemi Fjarðaáls var frá upphafi skipulögð með hliðsjón af hugmyndafræði Lean.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7, kl. 08:30-09:45.
Faghópur um opinbera stjórnsýslu heldur fund þann 14.apríl nk. kl.08:30 - 10:00
Fundurinn verður haldinn í Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála Háskóli Íslands Gimli við Sæmundargötu
Fyrirlesari:
Ásta Möller, forstöðumaður fjallar um Stofnun stjórnsýslufræða, meginverkefni stofnunarinnar, helstu samstarfsaðila o.s.fr.v
Umhverfisstjórnun á Umhverfis-og samgöngusviði Reykjavíkurborgar í samræmi við ISO 14001 staðalinn
Dagsetning: 5.maí kl.08:15-09:30
Staðsetning: Borgartúni 12-14, 7.hæð fundarsalur Hof
Heiti fyrirlesturs: Umhverfisstjórnun á Umhverfis-og samgöngusviði Reykjavíkurborgar í samræmi við ISO 14001 staðalinn.
Fyrirlesari: Guðmundur B. Friðriksson gæðastjóri Umhverfis-og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar
Efni: Megin áherslan verður á umhverfisstjórnun á Umhverfis-og samgöngusivði Reykjavíkurborgar í samræmi við ISO 14001 staðalinn- innleiðing og reynsla. Einnig verður farið yfir umhverfisstarf hjá Reykjavíkurborg - markmið í loftslags og gæðamálum, úrgangsstjórnun, vistvæn innkaup, græn skref o.fl.
AÐALFUNDUR STJÓRNVÍSI
Aðalfundur Stjórnvísi 2011 verður haldinn fimmtudaginn 5. maí kl. 16.00 til 18.00 í Ofanleiti 2. í fyrirlestrasal á fyrstu hæð.
Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:
1. Kjör fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla formanns.
3. Skýrsla framkvæmdastjóra.
4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
5. Breytingar á lögum félagsins.
6. Kjör formanns.
7. Kjör þriggja stjórnarmanna til næstu tveggja ára.
8. Kjör tveggja varamanna í stjórn til næstu tveggja ára.
9. Kjör fagráðs.
10. Kjör skoðunarmanna reikninga.
11. Önnur mál.
Allir félagsmenn eiga kost á að bjóða sig fram til formanns og í stjórn.
Þeir, sem áhuga hafa á að bjóða sig fram, eru vinsamlega beðnir um að tilkynna það í pósti til stjornvisi@stjornvisi.is
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn.
Stjórnin.
Faghópur um Sköpunargleði boðar til fundar þann 6.maí nk.
Fundarstaður: CCP
Tími: 08:30 - 10:00
Fyrirlesarar: CCP mun kynna hvernig þeir nýta sköpunargleði í starfi sínu
Sigrún Jóhannesdóttir, Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins mun fjalla um fræðin á bakvið sköpunargleði
Að efla skapandi hugsun í námi og starfi
Ásta Valdimarsdóttir, hlátursjógakennari og hlátursambassador
Hernig hláturjóga getur aukið sköpunargleðina