Faghópur um markþjálfun.
Fundur haldinn 22. febrúar
Efni fundar: „Markþjálfun sem stjórnendastíll“
Fundarstaður: Capacent, Borgartúni 27 á 1. hæð (KPMG húsinu)
Fyrirlesarar verða Hinrik Sigurður Jóhannesson rannsóknarstjóri hjá Capacent
og Bergþóra Ólafsdóttir mannauðsstjóri og markþjálfi hjá Betware.
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur |
|
28
|
01
|
02
|
03 |
04
|
05
|
06
|
|
07
|
08
|
09
|
10 |
11
|
12
|
13
|
|
14
|
15
|
16 | 17 |
18
|
19
|
20
|
|
21
|
22 | 23 | 24 |
25
|
26
|
27
|
|
28
|
29
|
30 |
31
|
01
|
02
|
03
|
Í tilefni af birtingu niðurstaðna Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2010, verður efnt til morgunverðarfundar á vegum
Lean – faghóps Stjórnvísi. Lean á svo sannarlega erindi við stjórnendur í dag því fullbókað hefur verið á alla fundi faghópsins í vetur.
Dagskrá:
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens fjallar um reynslu fyrirtækisins af notkun á hugmynda-og aðferðafræði
Lean Management
Reynir Kristinsson, kennari við HR og stjórnunarráðgjafi fjallar um menningu Lean-fyrirtækja.
Guðrún Rögnvaldardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands
kynnir nýjan staðal ISO26000 um samfélagslega ábyrgð
Tómas Bjarnason, rannsóknarstjóri Capacent Gallup kynnir niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2010
Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi veitir viðurkenningar þeim fyrirtækjum sem skoruðu hæst í rannsóknum
Ánægjuvogarinnar 2010
Davíð Lúðsvíksson forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins stjórnar fundinum
Fundarstaður
Turninn, Smáratorgi 3, Kópavogi
Nánar um Íslensku ánægjuvogina
Verð kr. 1.950 (greiðist á staðnum)
Opinn fundur – allir velkomnir
Bókanir á fundinn á slóðinni hér fyrir neðan
Iso hópurinn
Fundur fimmtudaginn 24. febrúar kl. 8:30 - 10 hjá Landsneti Gylfaflöt
Einföldun á vottuðum stjórnunarkerfum
Ábyrgð stjórnenda og mannlegi þátturinn
Hildur B. Hrólfsdóttir tók þátt í ákaflega áhugaverðu námskeið í Danmörku þar sem þetta var meginþema.
Hún mun deila þessu með þeim sem hafa áhuga á innleiðingu á ISO stöðlum sem verkfæri stjórnenda og mannlegi þátturinn í innleiðingu.
Kynnir m.a. hugmyndina að því að möguleiki sé á því að hafa aðeins þrjár útgefnar verklagsreglur í vottuðu stjórnkerfi.
Umhverfis-og öryggishópur: Græna Orkan - visthæft eldsneyti í nútíð og framtíð
Fundurinn verður haldinn 3. mars í Orkugarði, Grensásvegi 9. kl 8:15-9:30
Fyrirlesari verður : Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku.
Erindið heitir Græna Orkan – visthæft eldsneyti í nútíð og framtíð
Erindið mun fjalla um starfsemi Grænu Orkunnar www.graenaorkan.is og hvað framundan er. Fjallað verður um þá starfsemi sem er í landinu í visthæfu eldsneyti og hvað framundan er hjá stjórnvöldum og bílaframleiðendum. Einnig verður komið inn á hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skref strax í dag án þess að fara í kostnaðarsamar aðgerðir og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér umhverfisvæna samgöngustefnu til að hvatningar á samdrætti kolefnisspors fyrirtækisins sjálfs og starfsmanna.
Efni fundar: Hvernig geta fyrirtæki byrjað að nýta sér hugmynda - og/eða aðferðafræði Lean og hvar er hægt að fá aðstoð við fyrstu skrefin? Pallborðsumræður.
Hvenær: 10.mars kl.08:30-10:00
Hvar: Í Námunni í Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7
Þátttakendur í pallborði: Reynir Kristjánsson, Pétur Orri Sæmundsen og Þórunn M. Óðinsdóttir.
Undanfarið hefur mikil vakning orðið varðandi Lean hér á landi og nú er svo komið að mörg fyrirtæki eru að velta fyrir sér hvernig hægt er að byrja að nýta sér Lean til að ná auknum árangri. Á fundinum munu þrír ráðgjafar sem allir sérhæfa sig í innleiðingu Lean vera með stutt erindi og að því loknu verður ríflegur tími fyrir pallborðsumræður og spjall um viðfangsefnið. Allir sem eru að velta fyrir sér fyrstu skrefunum eða hafa verið að prófa sig aðeins áfram með Lean eru hvattir til að koma og taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum umræðum.
Faghópur: Balanced Scorecard - stefnumiðað árangursmat
Fundardagur. 16. mars
Fundurstaður: ÁTVR- Vínbúðin
Heimilisfang: Stuðlahálsi 2.
Efni: ,,Mælingar og breytt hegðun - Raunveruleg dæmi úr starfssemi ÁTVR".
Fyrirlesarar: Kristján F. Guðjónsson Verkefnastjóri árangursstjórnunar og Einar Snorri Einarsson, Framkvæmdarstjóri Sölu- og þjónustusviðs.
Kl. 8:30-9:15.
Þann 17.mars nk. verða Stjornunarverðlaun Stjórnvísi veitt í annað skipti.
Verðlaunaafhendingin fer fram í Turninum í Kópavogi og mun forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenda verðlaunin
tími: 16:00 - 18:00
Mannauðsstjórnunarhópur heldur fund
Þriðjudaginn 22.febrúar 2011
Heiti: Samskipti starfsmanna og stjórnenda - verkefni mannauðsstjórans
kl.08:30 - 09:30 í Húsi verslunarinnar Kringlunni 7
Fyrirlesarar: Guðmundur B. Ólafsson lögmaður mun ræða um ágreining, samninga, túlkun og dómafordæmi
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Íslandspóst fjallar um hlutverk starfsmannastjóra við lausn ágreinings á vinnustað.
Fundur sem enginn starfsmannastjóri má láta fram hjá sér fara
Fjármál fyrirtækja: Breyttar áherslur við áhættustýringu viðskiptakrafna
Fyrirlesarinn er Samúel White, forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá Creditinfo á Íslandi.
Umræðuefnið verður m.a. hvernig viðskiptaferlar sem ganga út á sjálfvirk köll í fjármálaupplýsingar leiða til lágmörkunar á afskriftum viðskiptakrafna. Þetta teljum við áhugavert umræðuefni sérstaklega í ljósi nýrrar könnunar sem sýnir fram á að íslensk fyrirtæki afskrifuðu 2,8% af veltu sinni árið 2010.
Eru Íslendingar kvartsárari en aðrir?
Hvernig á að snúa kvörtunum upp i tækifæri?
Fundurinn verður haldinn 23.mars kl.08:30 - 09:30
Staðsetning: Landsbankinn, Hafnarstræti 5, 4.hæð
Dagskrá:
Hlusta, læra, þjóna. Kristín Lúðvíksdóttir, sérfræðingur á Skrifstofu Viðskiptabanka Landsbankans
Ábendingar og kvartanir – aðhald og þróun. Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Þjónustu- og kynningarsviðs Tryggingastofnunar
Toppurinn á ísjakanum. Margrét Reynisdóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Gerum betur ehf
Ráðstefna um gæðastjórnun: Gegnsæi, rekjanleiki og skilvirkni - Ávinningur af markvissu gæðastarfi
Gegnsæi, rekjanleiki og skilvirkni
Ávinningur af markvissu gæðastarfi
Gegnsæi og rekjanleiki í viðskiptum og stjórnsýslu er krafa samtímans.
Áhersla er lögð á gæði, skilgreiningu og skjalfestingu starfs- og verkferla svo og vönduð og samræmd vinnubrögð. Samkeppni á markaði eykst sífellt og ríkari krafa er gerð til fyrirtækja um að þau uppfylli ákveðin skilyrði um gæðamál. Við útboð hafa þau fyrirtæki forskot sem hafa vottaða starfsemi. Í þessu tilliti kemur sér vel fyrir einkafyrirtæki jafnt sem opinber fyrirtæki að vinna í takt við alþjóðlega staðla svo sem ÍST ISO 9001 um gæðastjórnun.
Ráðstefnan „Gegnsæi, rekjanleiki og skilvirkni: Ávinningur af markvissu gæðastarfi“ verður haldin í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu fimmtudaginn 24. mars 2011, kl. 8:30 til 12:00.
Fjallað verður um ofangreind málefni á ráðstefnunni og fyrirlesarar koma úr röðum háskólakennara og stjórnenda og annarra starfsmanna fyrirtækja og stofnana.
Ráðstefnan er haldin á vegum Stjórnvísi og Háskóla Íslands. Hún er framlag námsbrautar í bókasafns- og upplýsingafræði og félags- og mannvísindadeildar til aldarafmælis Háskóla Íslands og 55 ára afmælis kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskólann.
Ráðstefna Háskóla Íslands og Stjórnvísi
Haldin fimmtudaginn 24. mars 2011 í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu
Gegnsæi, rekjanleiki og skilvirkni
Ávinningur af markvissu gæðastarfi
Dagskrá
08:30 - 08:40 Setning ráðstefnustjóra
Anna Guðrún Ahlbrecht, gæðastjóri hjá Landmælingum Íslands
08:40 - 09:10 Virðing fylgir vottun: Könnun á ISO 9001 vottuðum fyrirtækjum á Íslandi
Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn
09:10 - 09:40 Innleiðing Geislavarna ríkisins á ISO 9001 stjórnkerfi, lærdómur og ávinningur
Sigurður M. Magnússon, forstjóri hjá Geislavörnum ríkisins
09:40 - 10:10 Verkefnið „innleiðing gæðakerfis“
Dr. Helgi Þór Ingason, dósent í véla- og iðnaðarverkfræði og forstöðumaður MPM náms
10:10 - 10:30 Kaffi
10:30 - 11:00 Viðhorf viðskiptavina sem árangursmælikvarði
Dr. Þórhallur Ö. Guðlaugsson, dósent í viðskiptafræði og forstöðumaður BS náms í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum
11:00 - 11:30 Samspil gæðastjórnunar, skjalastjórnunar og verkefnastjórnunar
Margrét Eva Árnadóttir MPM, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Gagnavörslunni hf.
11:30 - 12:00 Gæðastjórnun - flugmál: Sögulegt samhengi
Sveinn V. Ólafsson M.Sc., yfirmaður vottunar- og greiningarstofu hjá Flugmálastjórn Íslands
12:00 Ráðstefnuslit
Um erindin
Virðing fylgir vottun: Könnun á ISO 9001 vottuðum fyrirtækjum á Íslandi
Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn
Vottun samkvæmt gæðastöðlum hefur reynst fyrirtækjum gott vegarnesti á tímum samkeppni og aukinna alþjóðaviðskipta. Samkvæmt könnuninni stunduðu flestir aðilanna, sem höfðu ISO 9001 vottun, útflutning að einhverju leyti. Helstu hvatarnir voru að mæta kröfum viðskiptavina og samkeppnissjónarmið; helsti ávinningurinn fólst í því að auðveldara var að mæta kröfum viðskiptavina og stjórnvalda og bætt stjórnun og helstu áskoranirnar við að öðlast vottun og halda henni tengdust skjalahaldi, mælingum og vöktun.
Innleiðing Geislavarna ríkisins á ISO 9001 stjórnkerfi, lærdómur og ávinningur
Sigurður M. Magnússon, forstjóri hjá Geislavörnum ríkisins
Geislavarnir ríkisins hafa undanfarin ár unnið að ýmsum þáttum varðandi skipu-lagningu og markmiðssetningu. Innleiðing stjórnkerfis samkvæmt ISO 9001 og síðan vottun koma í beinu framhaldi af þeirri vinnu. Geislavarnir sjá mikinn ávinning af þessu starfi, meðal annars fjárhagslegan. Kröfur sem uppfylla þarf fyrir stjórnkerfi eru skilgreindar í staðli. Útfærslan getur hinsvegar verið með ýmsum hætti. Stefna Geislavarna var og er að útfæra kerfið (handbók, skjalavistun og aðrar skráningar) með einföldum og aðgengilegum hætti.
Verkefnið „innleiðing gæðakerfis“
Dr. Helgi Þór Ingason, dósent í véla- og iðnaðarverkfræði og forstöðumaður MPM náms
Fjallað verður um innleiðingu gæðakerfis frá sjónarhóli verkefnastjórnunar. Í verkefnisstjórnun er innleiðing gæðakerfis sett upp sem hvert annað verkefni sem þarf að undirbúa og framkvæma með vel þekktum aðferðum verkefnastjórnunar. Fjallað verður um vensl verkefna- og gæðastjórnunar og nokkur dæmi rakin til skýringar.
Viðhorf viðskiptavina sem árangursmælikvarði
Dr. Þórhallur Ö. Guðlaugsson, dósent í viðskiptafræði og forstöðumaður BS náms í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum
Farið verður ítarlega yfir muninn á gæðum áþreifanlegra vara annars vegar og gæðum þjónustu hins vegar. Munurinn liggur fyrst og fremst í fjórum atriðum en þau eru óáþreifanleiki, óstöðugleiki, óaðskiljanleiki og óvaranleiki. Þessi atriði hafa veruleg áhrif á það með hvaða hætti gæðahugtakið er skilgreint og með hvaða hætti lagt er mat á þau gæði.
Kynntar verða mismunandi hugmyndir varðandi uppbyggingu og mat þjónustugæða svo sem „gaps-líkanið“ og þjónustuþríhyrningurinn. Dregin verða fram sjónarmið þess efnis að þegar þjónusta er annars vegar þá eru gæði ekki eitthvað eitt heldur sambland ólíkra en tengdra atriða. Er í því sambandi talað um gæði útkomunnar, gæði ferilsins og gæði áþreifanlegra atriða.
Að síðustu verður fjallað um með hvaða hætti hægt er að nýta sér niðurstöður gæða-mælinga í þeim tilgangi að ná betri árangri fyrir starfsemina.
Samspil gæðastjórnunar, skjalastjórnunar og verkefnastjórnunar
Margrét Eva Árnadóttir MPM, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Gagnavörslunni hf.
Gæðastjórnun gerir miklar kröfur um skjalastjórnun og er það sá þáttur sem fyrirtæki stranda oftast á í vottunarferli. Í verkefnastjórnun er einnig lögð mikil áhersla á gæðastjórnun og skjalfestingu í verkefnum svo hægt sé að tryggja gæði þeirra og læra af fyrri reynslu.
Stjórnunaraðferðir upplýsinga- og skjalastjórnunar eru lykillinn að því að mæta kröfum gæða- og verkefnastjórnunar og í því skyni verða kynnt nokkur stjórntæki upplýsinga- og skjalastjórnunar og sýnt hvernig þau nýtast í gæðastjórnun og verkefnastjórnun.
Gæðastjórnun - flugmál: Sögulegt samhengi
Sveinn V. Ólafsson M.Sc., yfirmaður vottunar- og greiningarstofu hjá Flugmálastjórn Íslands
Það sem fyrst og fremst einkennir gæðastjórnun og flug er að um er að ræða stjórnvaldskröfur sem í grunninn snúast um öryggi. Þær kröfur eiga oftast rætur sínar í sjálfri atvinnugreininni og sterk hefð er fyrir að tilkynnt sé um atvik í flugi og á þeim tekið. Um er að ræða alþjóðlegar kröfur, staðla og aðferðafræði sem hefur þróast í tímans rás þar sem viðskiptavinurinn er fyrst og fremst leyfishafi í flugi en endanlegur notandi er farþeginn. Þessi tilhögun hefur leitt til þess að flug er öruggasti samgöngumátinn.
Sigurður Ólafsson, starfsmannastjóri og stjórnendaþjálfari Isavia ohf. mun kynna fyrirtækið sem nýverið fór í gegnum miklar skipulagsbreytingar og segja frá því hvernig Isavia hefur nýtt sér markþjálfun fyrir sína stjórnendur.
Sigrún Þorleifsdóttir, stjórnendaþjálfari hjá Vendum – stjórnendaþjálfun, mun fjalla um markþjálfun í hópum (Group Coaching) en aðferðir markþjálfunar henta vel fyrir liðsheildir og hópa sem vilja ná auknum árangri.
Fundurinn verður þann 30. mars 2011
hjá Isavia, Reykjavíkurflugvelli við hlið flugturnsins
kl.08:30 - 10:00
ISO-hópurinn heldur fund þann 5.4.2011 frá kl.08:30 - 10:00.
Staður: Stafir lífeyrissjóður, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Efni: Samþætting skjala-og gæðastjórnunar
Fyrirlesarar
· Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs
Efni: Innleiðing skjala- og gæðastjórnunar skv. ISO 9001
· Ásgerður Kjartansdóttir, deildarstjóri upplýsingadeildar á upplýsinga- og fjármálasviði mennta- og menningamálaráðuneytisins
Efni: Aðlögun skjalamála að gæðstjórnun skv. ISO 9001
· Margrét Eva Árnadóttir, ráðgjafi hjá Gagnavörslunni
Efni: Þrenningin ISO 15489, ISO 27001 og ISO 9001
Balanced Scorecard: Reynsla af stefnumiðuðu árangursmati hjá Upplýsingatæknimiðstöð
· UTM Upplýsingatæknimiðstöð
· Staður: Borgartúni 12-14, 7. hæð
· Efni: Reynsla af stefnumiðuðu árangursmati hjá Upplýsingatæknimiðstöð.
· Fyrirlesari: Hjörtur Grétarsson
· Dags: 6. apríl
· Kl. 8:30-10:00
Faghópur um Þjónustustjórnun boðar til fundar þann 6.apríl nk.
Fundarstaður: Marel
Boðið verður upp á morgunkaffi frá kl.08:15
Fundartími : 08:30 - 09:30/09:45
Fyrirlesarar:
Halldór Magnússon framkvæmdastjóri " Þjónustufyrirtækið Marel"
Ingólfur Gauti Arnarson hópstjóri hugbúnaðarþjónustu "Verkefnastjórnun í hugbúnaðarþjónustu með Kanban"
kl.09:15 verður boðið upp á leiðsögn um fyrirtækið sem áætlað er að ljúki kl.09:30 - 09:45
Umhverfis-og öryggishópur auglýsir:
Fundur haldinn 7.apríl nk. í Reykjanesvirkjun frá kl.08:15-09:45.
Leiðarlýsing: Frá Reykjavík keyrt eftir Reykjanesbraut, síðan beygt áleiðis til Grindavíkur, rétt áður en komið er til Grindavíkur er vegvísir til Reykjaness, síðan sést virkjunin vel eftir að keyrt er fram hjá Gunnuhversssvæðinu
Fyrirlesarar eru:
Þorgrímur Stefán Árnason, öryggis-heilbrigðis-og umhverfisstjóri HS Orku hf.
Heiti á erindi: Kynning á öryggismálum við beislun jarðhita og vettvangsferð um virkjunarsvæði Reykjanesvirkjunar
Víðir S. Jónsson, verkefna-og kynningarstjóri HS Orku hf.