Sjóvá og umbótavinna á Tjónasviði

Sjóvá er með elstu vörumerkjum landsins og á síðustu árum hefur verið unnið mikið umbótastarf innanhúss. Kynnist þeim breytingum og sérstaklega umbótavinnu á Tjónasviði Sjóvá. Á Tjónasviði hefur verið lögð mikil áhersla á gæða- og ferlamál og hefur Tjónasvið m.a. notað aðferðir úr straumlínustjórnun við umbótavinnuna.

Hér er tækifæri að heyra af reynslu þjónustufyrirtækis við notkun aðferða Straumlínustjórnunar. Hvetjum þig til að mæta, sýna og sjá aðra.

Sjóvá býður gestum upp á morgunverð og er hámarksfjöldi 50 manns.

„Staðan í rafrænni sjúkraskrá á Íslandi“

Ingi Steinar Ingason verkefnisstjóri rafrænnar sjúkraskrár hjá Embætti landlæknis mun fara yfir stöðu mála og fræða okkur um þá vinnu sem er í gangi hjá Embætti landlæknis er varðar rafræna sjúkraskrá á Íslandi.

Dagsetning: fimmtudagurinn 10.janúar 2013
Fundartími: 16.15 - 17.15.
Fundarstaður; Landspítali, Hringsalur (1. hæð við Barnaspítalann

Breytingaferli - samruni og uppbygging framtíðarsýnar

Reiknistofa bankanna (RB) er eitt elsta tæknifyrirtæki landsins og fagnar 40 ára afmæli núna í mars. Á síðasta ári var fyrirtækið gert að sjálfstæðu hlutafélagi og sameinaðist um mitt ár Teris þegar RB keypti stærstan hluta eigna Teris. Í dag starfa 180 starfsmenn hjá RB. Miklar breytingar hafa því átt sér stað undanfarin misseri og enn frekari breytinga er að vænta með flutningum í nýjar höfuðstöðvar á vormánuðum.

RB býður í morgunkaffi og mun deila með gestum reynslu og vangaveltum um breytingaferli, samruna og uppbyggingu framtíðarsýnar. Spjall og spekúlasjónir verða í boði í framhaldi af því.

Menningarmæling Capacent: Veistu hvaða vinnustaðamenning er ríkjandi á þínum vinnustað?

Menningarmæling Capacent: Veistu hvaða vinnustaðamenning er ríkjandi á þínum vinnustað?

Kynntar verða niðurstöður úr könnun Capacent meðal starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu, þar koma fram áhugaverðar niðurstöður um tengsl vinnustaðamenningar við hollustu og önnur lykilviðhorf starfsmanna. Niðurstöðurnar byggja á nýju mælitæki Capacent sem metur fjórar tegundir vinnustaðamenningar og á fundinum verður kynnt hvernig nýta megi þetta mælitæki til umbreytinga og þróunar. Kynningar eru í höndum Ástu Bjarnadóttur, Hildar Jónu Bergþórsdóttur og Vilmars Péturssonar ráðgjafa hjá Capacent. Capacent býður gestum Stjórnvísi upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Um fyrirlesara:
Ásta Bjarnadóttir er ráðgjafi á sviði stjórnunar og mannauðsstjórnunar hjá Capacent. Ásta hefur stýrt mannauðsmálum hjá Háskólanum í Reykjavík, Íslenskri erfðagreiningu og Hagkaupum og hún er einn af stofnendum CRANET rannsóknaverkefnisins um íslenska mannauðsstjórnun. Ásta er með doktorspróf í vinnu- og skipulagssálfræði frá University of Minnesota 1997.

Hildur Jóna Bergþórsdóttir er sérfræðingur á sviði fyrirtækja- og starfsmannarannsókna, einkum vinnustaðagreininga og ráðgjafar og umbótastarfs í kjölfar greiningar. Hún er löggiltur sálfræðingur með Cand.Psych próf frá Háskólanum í Árósum. Hildur Jóna hefur einning fjölbreytta ráðgjafarreynslu í kjölfar vinnustaðagreiningar, m.a. í formi endurgjafar til stjórnenda og stýra vinnuhópum við greiningar- og lausnavinnu.

Vilmar Pétursson er ráðgjafi á sviði stjórnunar og mannauðs hjá Capacent. Auk ráðgjafastarfa hefur Vilmar m.a. unnið sem verkefnastjóri og stjórnandi hjá Samtökum iðnaðarins og Félagsþjónustu Reykjavíkur. Vilmar er menntaður sem félagsráðgjafi og með meistarapróf í stjórnun og stefnumótun.

Hvenær á stjórnendamarkþjálfun við? Hvernig vel ég rétta markþjálfann?

„ Markþjálfunardagurinn 2013“ Markþjálfun - Best geymda leyndarmálið?

Evolvia býður á Markþjálfunardeginum sjálfum til hádegisfundar í Ofanleiti 2, 2.hæð. Evolvia hóf fyrst kennslu í markþjálfun á Íslandi og hefur verið starfandi frá árinu 2004 (var áður Leiðtogi).

Frumkvöðullinn Matilda Gregersdotter, PCC markþjálfi og eigandi Evolvia, mun fjalla bæði um ávinning stjórnendaþjálfunar og einnig sérstöðu, menntun og reynslu markþjálfa. Hver eru algeng viðfangsefni í stjórnendaþjálfun og þá ávinningur stjórnenda og fyrirtækja af þjálfuninni? Einnig mun Matilda útskýra mismunandi markþjálfunarnám og alþjóðlegar vottanir. Hvað þýða þessar vottanir og hvað er á bak við þær? Hvar hægt er til dæmis að leita að markþjálfa og hvað hafa ber í huga við valið?

Allir hjartanlega velkomnir!

Kynning á kraftmikilli vordagskrá Stjórnvísi 2013

Fimmtudaginn 24.janúar mun stjórn Stjórnvísi og stjórnir allra faghópa kynna áhugaverða vordagskrá á Nauthól bistró. Fundurinn er öllum opinn og félagar hvattir til að koma með hugmyndir og kynna sér spennandi dagskrá vorsins.

Dagskrá:
kl.15:30 Jón G. Hauksson, formaður stjórnar Stjórnvísi
kl.15:35 CAF/EFQM
kl.15:38 Breytingastjórnun - kynning á nýjum faghópi
kl.15:42 Fjármál fyrirtækja
kl.15:45 Gæðastjórnun
kl.15:50 Heilbrigðissvið
kl.15:55 ISO-hópur
kl.16:00 Lean-Straumlínustjórnun
kl.16:05 Innkaup - kynning á nýjum faghópi
kaffihlé
kl.16:15 Mannauðsstjórnun
kl.16:20 Markþjálfun
kl.16:25 Nýsköpun
kl.16:30 Samfélagsábyrgð fyrirtækja
kl.16:35 Sköpunargleði
kl.16:40 Stefnumótun og Balanced Scorecard
kl.16:45 Umhverfi-og öryggi
kl.16:50 Upplýsingaöryggi
kl.16:55 Verkefnastjórnun
kl.17:00Viðskiptagreind
kl.17:05 Þjónustu-og markaðsstjórnun

Vald og verkefnadreifing. Fundur á vegum Opna háskólans, Stjórnvísi og Vendum.

Á þessum fundi mun forstjóri Sjóvár Hermann Björnsson stíga á stokk og fjalla um reynslu sína af árangursríkri vald og verkefnadreifingu. Þá mun Alda Sigurðardóttir eigandi og stjórnendaþjálfari hjá Vendum draga fram algengustu hindranirnar við að verkefna- og valddreifa og hvernig sé best að yfirstíga þær.

Þessi áhugaverði fundur er upphaf fundarraðar sem er samstarfsverkefni Opna háskólans, Stjórnvísi og Vendum. Tilgangur samstarfsins er að þjóna stjórnendum og íslensku atvinnulífi með enn faglegri og hagnýtari hætti en hingað til.

Fundurinn er haldinn í Opna háskólanum í HR í stofu M215 (Mars álma) Menntavegi 1.

Fundarstjóri er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísis.

Innleiðing stefnu um samfélagsábyrgð: Áskoranir og staðlar

Málefnahópur Stjórnvísis um samfélagsábyrgð stendur fyrir morgunfundi um innleiðingu stefnu um samfélagsábyrgð.
Á fundinum verða tvær kynningar tengdar innleiðingu á stefnu um samfélagsábyrgð í fyrirtækjum. Annars vegar mun Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands kynna ISO 26000 staðlinn um samfélagsábyrgð. Verið er að þýða staðalinn á íslensku og er honum m.a. ætlað að auðvelda fyrirtækjum að innleiða markvissa starfshætti um samfélagsábyrgð. Í seinni kynningunni mun Ragna Sara Jónsdóttir, forstöðumaður samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun segja frá þeim áskorunum sem fyrirtækið stendur frammi fyrir við innleiðingu á stefnu um samfélagsábyrgð.

Fundarstjóri er Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka.
Málefnahópurinn var stofnaður á fyrri hluta ársins 2012 og eru nú 76 félagar í hópnum. Stjórn hópsins skipa Ketill B. Magnússon framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð, Finnur Sveinsson sérfræðingur hjá Landsbankanum, Guðný Helga Herbertsdóttir upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og Ragna Sara Jónsdóttir, forstöðumaður samfélagsábyrðgar hjá Landsvirkjun.

Fundurinn er haldinn hjá Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík Fimmtudaginn 31. janúar kl. 8:30 - 10:00

Gæðastjórnun og Visual Management System

Gæðastjórnunarhópurinn og Lean faghópurinn í Stjórnvísi efna til ráðstefnu um VMS-töflur með áherslu á tengingu við notkun þeirra og auknum gæðum innan fyrirtækja og stofnana.
Fyrirlesarar eru allir reynsluboltar í notkun á VMS-föflum sem hafa tekið þátt í að þróa töflurnar á áhugaverðan hátt. Lögð verður áhersla á upplifun þeirra á notkun VMS taflna, hvernig innleiðing taflanna hefur gengið, hvernig þær eru notaðar á hverjum stað og hvaða árangri töflurnar hafa skilað.

Ráðstefnan er haldin á Hotel Reykjavík Natura, Þingsölum 2-3.

Aðgangur ókeypis

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?