Hefur þú upplifað vandamál á þínum vinnustað vegna áfengis og vímuefna?

Hefur þú upplifað vandamál á þínum vinnustað vegna áfengis og vímuefna? Er kominn tími á faglega stefnu?

Páll Þór Jónsson verkefnastjóri SÁÁ kynnir fyrirtækjaþjónustu SÁÁ, skaðastjórn vegna fíknisjúkdóma og meðvirkni.

Hildur Atladóttir, leiðtogi heilbrigðismála hjá Rio Tinto Alcan á Íslandi fjallar um stefnu fyrirtækisins um áfengis- og vímuefnalausan vinnustað, undirbúning og innleiðingu stefnunnar.

Hvernig má bæta fjárfestaumhverfið á Íslandi?

Nýsköpunarhádegi Klaks er haldið í hádeginu á hverjum þriðjudegi í O2 húsinu.

Nýsköpunarhádegi Klaks er samstarfsverkefni Klak - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, Stjórnvísi, Samtaka iðnaðarins, Viðskiptablaðsins og RUV.

Þema 27. nóvember: Hvernig má bæta fjárfestaumhverfið á Íslandi?

Frummælendur:

Þórður Magnússon, Eyrir Invest: Fjárfestaumhverfið og mentor hlutverk fjárfestis. Einstök skref í þroskaferlinu og hlutverk fjárfestisins í því ferli.

Frosti Sigurjónsson, Dohop og Datamarket: Hvaða tækifæri höfum við til að gera Ísland að enn betri vettvangi fyrir nýsköpun?

Staður: Ofanleiti 2 - stofa 201 - 2. hæð
Kl. 12:00-13:00

Kópavogsbær er fyrst íslenskra sveitarfélaga með ISO 9001 vottun fyrir gæðakerfi á stjórnsýslusviði

Kópavogsbær býður í heimsókn þar sem Árni Þór Hilmarsson gæðastjóri mun kynna gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Hann mun segja frá innleiðingunni, vottunarferlinu og þeim lærdómi sem draga má af því.
Fundurinn verður haldinn í Fannborg 2, 1. hæð, 200 Kópavogi

Umhverfis- og öryggismál og tengsl við samfélagsábyrgð

Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi umhverfismála hjá ISAL mun fjalla um um hvernig umhverfis og öryggismál fyrirtækisins tengjast samfélgsábyrgð föstum böndum. Í erindinu verður komið inn hvernig samráði og samskiptum er háttað við samfélagið og hver ávinningurinn er af því samráði.
Haldið hjá ISAL.

Reynslusaga í notkun á CAF og nýr upplýsingavefur CAF

Pétur B. Matthíasson frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu mun fjalla um CAF sjálfsmatslíkan fyrir stofnanir og sveitarfélög, en ráðuneytið hefur nýlega opnað upplýsingavef fyrir CAF. Hallgrímur H. Gröndal mun fjalla um CAF reynslu hjá Ríkiskaupum.

Hver er staða stjórnendaþjálfunar á Íslandi?

Endurmenntun Háskóla Íslands og Stjórnvísi boða til morgunverðarfundar 30. nóvember 2012 kl. 8.30 - 10.00.

Landslag stjórnunar á Íslandi hefur breyst mikið undanfarin ár og stjórnendur standa frammi fyrir nýjum og erfiðum áskorunum. Á fundinum verður fjallað um stjórnendaþjálfun á Íslandi á nokkuð breiðum grundvelli og munu þrír fræðslustjórar stórra fyrirtækja deila reynslu sinni af skipulagningu stjórnendaþjálfunar.
Hvað er það sem íslenskir stjórnendur sækjast eftir, er þessi hópur frábrugðinn öðrum hópum í atvinnulífinu þegar kemur að fræðslu og þjálfun og hvert er stjórnendaþjálfun á Íslandi að þróast, hvaða aðferðir eru mest notaðar o.s.frv. Á fundinum munu framsögumenn varpa ljósi á svör við þessum og fleiri spurningum.

Framsögumenn

  1. Kristín Jónsdóttir Njarðvík, endurmenntunarstjóri opnar fundinn.

  2. Hildur Arnars Ólafsdóttir fræðslustjóri Actavis - „Ups and downs“ í stjórnendaþjálfun.
    Hildur segir frá því sem hefur gengið vel í stjórnendaþjálfun og hvað ekki undanfarin ár. Hún mun einnig segja frá því sem er framundan hjá „nýju“ fyrirtæki og mikilvægi stjórnendaþjálfunar í því samhengi.

  3. Elísabet Helgadóttir fræðslustjóri Íslandsbanka. - Stjórnendaþjálfun hjá Íslandsbanka.
    Elísabet leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
    Hvaða hæfni þarf stjórnandi að búa yfir til að ná árangri?
    Hvernig stillum við þjálfun upp í samræmi við hæfniskröfur Íslandsbanka?
    Hvernig styðjum við stjórnendur?
    Hvernig mælum við árangur?

  4. Harpa Björg Guðfinnsdóttir leiðtogi fræðslumála Alcan. - Leiðin að slysalausum vinnustað.
    Harpa segir frá stjórnendaþjálfun á vegum móðurfélagsins, Rio Tinto, þar sem áhersla var m.a. á að kenna stjórnendum að grípa inn í aðstæður sem ekki teljast fullkomlega öruggar og leiðbeina starfsmönnum að gera hlutina á sem öruggastan hátt.

Fundarstaður
Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
http://endurmenntun.is/UmEndurmenntun/Hagnytarupplysingar/Stadsetning/

Hlutverk og verkefni skattrannsóknarstjóra ríkisins

Skattrannsóknarstjóri ríkisins býður Stjórnvísifélögum í heimsókn þann 4.desember nk. Á fundinum verður farið yfir hlutverk og verkefni skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 7 .
Hámarksfjöldi á fundinn er 20 manns.

Verið hjartanlega velkomin,
með kærri kveðju frá stjórn faghóps um fjármál fyrirtækja.

Tónlistarsköpun - Verðmætasköpun öðrum til eftirbreytni?

Nýsköpunarhádegi Klaks, þriðjudaginn 4. des. kl. 12:00 - Tónlistarsköpun - Verðmætasköpun öðrum til eftirbreytni?
Nýsköpunarhádegi Klaks er “think tank” um nýsköpun sem er samstarfsverkefni Landsbankans, Samtaka iðnaðarins, Stjórnvísi, Viðskiptablaðsins, RUV og Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins.

Þema 4. desember 2012: Tónlistarsköpun - Verðmætasköpun öðrum til eftirbreytni?

Frummælendur:
Jakob Frímann Magnússon - Stuðmaður og tónlistarmógúll
Grímur Atlason - framkvæmdastjóri Airwaves

Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis til þess að auðga nýsköpunaranda lykilaðila í íslensku atvinnulífi og allra landsmanna.

Ábendingar og kvartanir: Auðlind til umbóta - Árangursrík þjálfun

Tvö erindi eru á dagskrá um ábendingar og kvartanir.

„Ábendingar og kvartanir frá viðskiptavinum: Auðlind til umbóta“

Góður ferill fyrir úrvinnslu ábendinga og kvartana frá viðskiptavinum getur verið undirstaða umbóta, nýsköpunar og arðsemi. Þrátt fyrir að mörg fyrirtæki skrái hjá sér ábendingar og kvartanir, eru fá fyrirtæki sem ná, með árangursríkum hætti, að nýta sér ábendingar og kvartanir til úrbóta og vöruþróunar.

Guðrún Álfheiður Thorarensen og Hallbera Eiríksdóttir, nýútskrifaðir verkfræðingar frá Chalmers í Gautaborg, kynna niðurstöður úr mastersverkefni sínu og reyna að svara hvernig best skuli standa að málum og hverjar séu helstu hindranirnar þegar kemur að því að nýta ábendingar og kvartanir frá viðskiptavinum til árangurs.

„Ábendingar og kvartanir: Árangursrík þjálfun hjá Orkuveitu Reykjavíkur“

Sigrún Viktorsdóttir, forstöðumaður þjónustuvers og Kristjana Kjartansdóttir, gæðastjóri fjalla um þjálfun í tengslum við ábendingar og kvartanir sem skilað hefur góðum árangri hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Fundi frestað: Gæðamál í heilbrigðsstofnunum - kröfur og eftirlit

Fundurinn frestast fram í janúar 2013
Fjallað verður um hlutverk Embættis landlæknis, sérstaklega er varðar gæðaeftirlit, þ.e. hugmyndafræði, tilgang, aðferðir og umfang
Ennfremur verður rætt um faglegar kröfur, leiðbeiningar, gagnreynda starfshætti, tölulegar upplýsingar og annað sem gæðaeftirlitið byggir á.
Loks verður greint frá mikilvægustu atriðum sem nýta má til að efla gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga.

Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri Sviðs eftirlits og gæða, Embætti landlæknis
Laura Sch. Thorsteinsson, verkefnastjóri Sviðs eftirlits og gæða, Embætti landlæknis

Fundurinn verður í húsi Endurmenntunar Háskóla Íslands að Dunhaga 7.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Lean Startup 101

Lean Startup er hugmyndafræði til þess að nálgast nýsköpun, hvort sem um er að ræða þróun á nýjum fyrirtækjum (startup) eða þróun á nýjum viðskiptaeiningum/vörum í rótgrónum fyrirtækjum. Hugmyndafræðin hefur farið sigurför um heiminn og fyrsta bókin sem kom út um Lean Startup fór í 2.sæti á NYTimes metsölulistanum.

Einföld leið til að skilgreina Lean Startup er eftirfarandi: Lean Startup = Agile + Lean + Customer Development + nýtt orðasafn. Í fyrirlestrinum ætlar Pétur Orri Sæmundsen framkvæmdastjóri Spretts að kynna helstu atriðin í Lean Startup með sérstaka áherslu á Customer Development og nýja orðasafnið.

Framsögumaður
Fyrirlesari er Pétur Orri Sæmundsen framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Sprettur, eina fyrirtækisins á Íslandi sem sérhæfir sig í Lean og Agile hugbúnaðarþróun. Pétur er brautryðjandi í beitingu Agile aðferða á Íslandi og hefur 12 ára reynslu í upplýsingatækni þar sem hann hefur unnið bæði sem stjórnandi, ráðgjafi og forritari.

Fundurinn er haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.
Stofan heitir M209. Hún er á annarri hæð Mars megin. Þegar gengið er inn frá Sólinni, taka þá stigann eða lyftuna upp á aðra hæð og fara inn hægra megin.

Erindi frá Íslandsbanka - #1 í þjónustu

1 í þjónustu

Með mikilli vinnu hefur Íslandsbanki náð þeim áfanga að vera í efsta sæti fjármálafyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni árið 2012.
Framtíðarsýn bankans er að vera fremst í þjónustu. Birna Einarsdóttir, bankastjóri mun kynna fyrir áhugasömum hvernig bankinn vinnur að því markmiði.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?