Desember 2026

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
30
  •  
01
  •  
02
  •  
03 04
  •  
05
  •  
06
  •  
07
  •  
08
  •  
09
  •  
10
  •  
11
  •  
12
  •  
13
  •  
14
  •  
15
  •  
16
  •  
17
  •  
18
  •  
19
  •  
20
  •  
21
  •  
22
  •  
23
  •  
24
  • Frídagur
25
  • Frídagur
26
  •  
27
  •  
28
  •  
29
  •  
30
  •  
31
  •  
01
  • Frídagur
02
  •  
03
  •  

Er tæknin áreiðanlegri en verklag við að stýra hættum?

Hvernig er best að stýra hættum?

Í erindinu verður fjallað um hversu áreiðanlegar tæknilegar stýringar (e. engineering controls) eru við að draga úr hættum á vinnustöðum og hvernig þær geta bætt úr þeim takmörkunum sem fylgja verklagslegum stýringum (e. administrative controls).

Eggert Jóhann, gæða- og öryggisstjóri fer stuttlega yfir stigveldi öryggisstýringa og helstu kosti tæknilegra stýringa.

Í framhaldinu mun fulltrúi frá Eurometal kynna raunveruleg dæmi um búnað sem fyrirtækið hefur hannað og smíðað til að draga úr hættum og auka öryggi á vinnustöðum.

 

Fundur í Microsoft Teams

Tengjast í tölvunni, farsímaforritinu eða tæki herbergisins

Smelltu hér til að tengjast fundinum

Fundarkenni: 934 674 003 141 7

 

Aðgangskóði: nW7g9b

Íslenskukennsla á vinnustöðum

Hlekkur inn á viðburðina

Fjallað verður um möguleika í íslenskukennslu á vinnustöðum landsins. Bara Tala og Liberis fræðslumiðstöð ætla að koma með innlegg inn í umræðuna. 

Bara tala – tæki til að skapa námssamfélag á vinnustað

Tungumálið er meira en samskiptatæki – það er lykill að þátttöku, inngildingu og tilfinningunni fyrir því að tilheyra. En hvernig geta vinnustaðir skapað umhverfi þar sem íslenskunám verður eðlilegur hluti af vinnudeginum og starfsfólk fær raunveruleg tækifæri til að nota tungumálið?

Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig hægt er að byggja upp námssamfélag á vinnustað þar sem íslenskunám, dagleg samskipti og stuðningur samstarfsfólks fara saman. Með hagnýtum dæmum úr starfi Bara tala verður sýnt hvernig stafræn tækni, starfstengt tungumálanám og virk þátttaka vinnustaðarins geta stuðlað að auknu málöryggi, sterkari liðsheild og aukinni tilfinningu starfsfólks fyrir því að tilheyra – bæði á vinnustaðnum og í íslensku samfélagi.

Joanna Dominiczak, fræðslustjóri hjá BARATALA mun færa erindið. 

Íslenskukennsla með starfstengdum orðaforða 

Í kynningunni verður starfsemi Liberis Fræðslumiðstöðvar kynnt með sérstakri áherslu á fyrirtækjalausnir og íslenskukennslu á vinnustöðum. Fjallað verður um hvernig námið tekur mið af þörfum starfsfólks, tungumálakunnáttu þess og þeim samskiptum sem það tekst á við í daglegu starfi.

Sérstök áhersla verður lögð á þróun sérsniðins kennsluefnis í samstarfi við vinnustaði og hagnýta kennslu sem tengir íslenskunám við raunverulegar starfsaðstæður. Sýnd verða dæmi um viðfangsefni fyrir starfsfólk skóla, leikskóla og umönnunar, auk þess sem rætt verður um sveigjanlegt námsfyrirkomulag og stuðning vinnuveitenda við þátttöku og málnotkun starfsfólks.
Einnig verður sagt frá samstarfi Liberis við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög, gæðastarfi miðstöðvarinnar og EQM-gæðavottun. Að lokum verður fjallað um hvernig hefja má samstarf um íslenskunám sem miðar að því að efla samskiptafærni, sjálfstraust og þátttöku starfsfólks á vinnustaðnum
 
Aneta Magdalena Matuszewska og Beata Líf Czajkowska, eigendur Liberis ehf. munu færa erindið. 

 

Frá stefnu til árangurs – hvernig öflug fyrirtæki ná hlutunum í framkvæmd

Hvað getum við lært af fyrirtækjum sem hafa innleitt BOS360 og EOS stjórnunarkerfin?

Flest fyrirtæki hafa stefnu, markmið og metnaðarfulla stjórnendur. En hvers vegna gengur sumum fyrirtækjum mun betur en öðrum að breyta góðum áformum í raunverulegan árangur?

Áskoranirnar eru kunnuglegar: Of mörg verkefni í gangi, óljós ábyrgð, fundir sem skila litlu, stjórnendur fastir í daglegu amstri og stefnumótandi verkefni sem sitja á hakanum.

Hvað ef hægt væri að breyta þessu með einfaldara og markvissara stjórnkerfi?

BOS360 (Business Operating System) og EOS (Entrepreneurial Operating System) eru heildstæð stjórnunarkerfi sem hjálpa fyrirtækjum að skapa skýrari stefnu, styrkja stjórnendateymi og tryggja að mikilvægustu hlutirnir komist í framkvæmd.

Á undanförnum árum hafa fjölmörg íslensk fyrirtæki innleitt þessa aðferðafræði með það að markmiði að ná betri tökum á rekstrinum, auka ábyrgð og bæta árangur.

Í þessum fyrirlestri mun Bjarki Jóhannesson, stofnandi Bravó og vottaður BOS360 þjálfari, deila reynslu sinni af innleiðingu rekstrarstjórnunarkerfanna hjá yfir 20 fyrirtækjum. (Dæmi um fyrirtæki eru Rotovia, Ístak, Skeljungur, Styrkás, Brim, A4, DK hugbúnaður)

Í fyrirlestrinum verður meðal annars fjallað um:

  • Hvers vegna góð stefna dugar ekki ein og sér – og hvað þarf til að tryggja framkvæmd hennar.

  • Hvernig skýr ábyrgð og sameiginleg forgangsröðun breyta vinnubrögðum stjórnendateyma.

  • Hvernig markviss fundamenning, mælikvarðar og 90 daga markmið skapa aukinn aga og árangur.

  • Hvaða breytingar og ávinning fyrirtæki hafa upplifað við innleiðingu BOS360 og EOS.

  • Hvað einkennir þau fyrirtæki sem ná mestum árangri með aðferðafræðinni.

Fyrirlesturinn byggir á raunverulegri reynslu af innleiðingu stjórnunarkerfanna í íslenskum fyrirtækjum, með hagnýtum dæmum og lærdómi sem stjórnendur geta nýtt í eigin rekstri.

Fyrir hverja?

Forstjóra, framkvæmdastjóra, millistjórnendur og aðra sem vilja efla stjórnendateymi, bæta framkvæmd stefnu og ná meiri árangri í rekstri.

Lengd: 40 mínútna fyrirlestur og að honum loknum opnar umræður og spurningar.

Markmiðið er einfalt: Að þátttakendur fari af fundinum með nýjar hugmyndir um hvernig þeir geta náð meiri árangri með skýrari stefnu, sterkari teymisvinnu og markvissari framkvæmd.

Fer hið opinbera alltaf fram úr áætlun? Ný umgjörð um fjárfestingar ríkisins.

https://teams.microsoft.com/meet/3893375968863203?p=REO0hkEcWNvIPeh9Mg

Ákvarðanir um opinberar fjárfestingar móta þjónustu og binda fjármuni til áratuga. Samt berast reglulega fréttir af verkefnum þar sem áætlanir um kostnað, tíma og ávinning standast ekki. Hvað veldur þessu — og hvað má læra af því?

Óli Örn Eiríksson fjallar um orsakir framúrkeyrslu og kynnir vinnu við nýja umgjörð um fjárfestingar ríkisins, en sú umgjörð nýtir nálgun faglegrar verkefnastjórnunar. Til að mynda er fjallað um að allar fjárfestingar fari í gegnum fimm stig frá tilefnisgreiningu til skilamats. Þá eru kynntar hugmyndir um þrjú ákvörðunarhlið þar sem tekin er formleg ákvörðun um framgang verkefnis áður en það heldur áfram.

Erindið tengir langtímasýn og forgangsröðun við þær ákvarðanir sem ráða framgangi einstakra verkefna: hvaða þörf á að leysa, hvaða valkostir koma til greina og hvenær eru forsendur nægilega traustar til að halda áfram? Þá verður skoðað hvernig sameiginlegur gagnagrunnur og mat á niðurstöðum geta gert reynslu fyrri verkefna að grundvelli þeirra næstu. Að lokum verður fjallað um sambærilega nálgun hjá verkefnastjórnsýslu í Noregi, og þeim árangri sem þeir hafa náð síðustu ár.

Erindið hentar stjórnendum, verkefnastjórum, ráðgjöfum og öðrum sem koma að fjárfestingum.

 

Um fyrirlesarann

Óli Örn Eiríksson leiðir vinnu við nýja umgjörð um fjárfestingar ríkisins í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hann er viðskiptafræðingur og hefur síðastliðin 20 ár unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði fjárfestinga, innviða og stefnumótunar. Hann stýrði áður atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkurborgar.

 

Tengill á Teams:

https://teams.microsoft.com/meet/3893375968863203?p=REO0hkEcWNvIPeh9Mg 

Stjórnarhætti fyrirtækja - ný útgáfa leiðbeininga, þróun og áskoranir

Faghópur Stjórnvísi um góða stjórnarhætti boðar til viðburðar 3. desember þar sem fjallað verður um nýja, 7. útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, alþjóðlega þróun á sviði stjórnarhátta og helstu áskoranir sem stjórnir, stjórnendur og eigendur standa frammi fyrir.

Lísbet Sigurðardóttir, Viðskiptaráði Íslands, verður meginfyrirlesari viðburðarins. Hún mun kynna 7. útgáfu leiðbeininganna, helstu breytingar frá fyrri útgáfu, forsendur endurskoðunarinnar og hvað breytingarnar þýða fyrir stjórnir, stjórnendur og aðra sem koma að stjórnarháttum fyrirtækja.

Í framhaldi verður Jeffrey Benjamin Sussman með stutt innlegg þar fjallar um þróun viðmiða og áskoranir á alþjóðavísu og ný alþjóðleg viðmið um stjórnarhætti opinbera aðila. 

Einnig verður Harpa Jónsdóttir framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) með innlegg þar sem sjónum verður beint að sjónarhorni langtímafjárfestis og hluthafa, meðal annars ábyrgð hluthafa, tilnefningarnefndum og stjórnarháttum í framkvæmd.

Í lokin verður opnað fyrir spurningar og umræður úr sal og streymi.

Dagskrá

Lísbet Sigurðardóttir, Viðskiptaráði Íslands 7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja – helstu breytingar og áherslur

Jeffrey Benjamin Sussman: Samanburður við erlend viðmið um stjórnarhætti fyrirtækja, ný grunnviðmið IFAC um stjórnarhætti opinbera aðila, þróun og áskoranir á alþjóðavísu.

Harpa Jónsdóttir framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR): Sjónarhorn langtímafjárfestis – tilnefningarnefndir, ábyrgð hluthafa og stjórnarhættir í framkvæmd.

Fyrirspurnir og umræður
Spurningar úr sal og streymi

Viðburðurinn verður haldinn hjá Nasdaq Iceland og jafnframt í streymi.

Leikgleði sem leiðtogafærni

Hvernig geta leiðtogar nýtt kraft leiksins með markvissum hætti í sínu leiðtogastarfi?

Á þessum viðburði skoðum við hvað leikur og leikgleði eru – og hvað þau eru ekki. Við fáum innsýn í áhrif leiks á fólk og vinnuumhverfi, og fáum líka að upplifa á eigin skinni hvað leikur getur virkjað í okkur. Horft er út viðfangsefnið frá tveimur vinklum, bæði hvernig hægt sé að nýta leik til að vinna að verkefnum og ná niðurstöðum á leikandi hátt (playful working) og hins vegar hvernig leikgleði getur stuðlað að vellíðan starfsfólks (alvörulaus leikur).

Markmiðið er að þátttakendur fari með nýja sýn, innblástur og hugmyndir að því hvernig hægt er að flétta meiri leikgleði inn í daglegt starf.

Dagskrá

Við hefjum viðburðinn á stuttu innleggi frá Miu Sundstrom, framkvæmdastjóra National Institute for Play í Bandaríkjunum, sem deilir með okkur innsýn í mikilvægi leiks.

Að því loknu taka Alexía Björg Jóhannesdóttir og Guðrún Gyða Franklín við og leiða okkur í gegnum fræðslu og upplifun þar sem við könnum kraft leiksins og möguleika hans í vinnuumhverfinu.

Alexía er leikjameistari og leikari sem hefur rannsakað áhrif leiks á fullorðið fólk í lokaritgerðinni Fíflalæti og vellíðan, þar sem hún kannaði meðal annars hvernig leikur getur haft jákvæð áhrif á líðan, lausnamiðaða hugsun og lífsviðhorf. Í dag fer hún inn á vinnustaði og í hópa til að leiða fullorðið fólk inn í heim leiksins.

Guðrún Gyða er arkitekt sem vinnur að þróun á námsefni og miðlun nýrra kennsluhátta með áherslu á hönnunarhugsun (Design Thinking) og leikmiðað nám (Playful Learning). Hún hannar og leiðir vinnustofur fyrir fjölbreytta hópa og nýtir meðal annars LEGO® SERIOUS PLAY® til að efla sköpunarkraft, sjálfstraust og áhuga fólks á starfi sínu.

Viðburðinn leiða Bryndís Skarphéðinsdóttir og Lára Kristín Skúladóttir, sem sitja í stjórn faghóps um leiðtogahæfni hjá Stjórnvísi.

Dags.: Fimmtudaginn 3. desember
Tími: 13:30-15:00
Staðsetning: JBT Marel í salnum Bakki

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?