Ögrandi framtíðir: Hvað er framundan og hverjar eru áskoranirnar? - gjaldfrjáls viðburður

Á annað hundrað manns búnir að bóka sig. Morgunverðarfundur með framtíðarfræðingnum Jerome Glenn. Jerome mun m.a. fjalla um helstu áskoranir á sviði tækni og samfélaga á alþjóðavísu og hlutverk framtíðarfræða í því sambandi. Einnig mun hann fjalla um ógnanir og tækifæri tengdar þróun gervigreindar og fleira. Jerome Glenn er einn virtasti framtíðarfræðingur okkar tíma. Ráðgjafandi um framtíðaráskoranir þjóðríkja og alþjóðastofnana. Hann er forsvarsmaður Millennium Project https://www.millennium-project.org/, sem er einn af stærstu samstarfsnetum framtíðarfræðinga á alþjóðavísu.

Mánudaginn 10. júní, 2024

•Salurinn opnar frá kl 8:30

•Létt morgunhressing frá kl 8:30 í boði Arion banka

•Fyrirlesturinn hefst kl 9:00 til 10:00

•Staðsetning: Ráðstefnusalur Arion banka í Borgartúni 19.


Byrjum vikuna á áhugverðum fyrirlestri!

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Leiðtogapallborð - vinnustaðir sem fólk vill tilheyra

Faghópar um heilsueflandi vinnuumhverfi og mannauðsstjórnun standa fyrir pallborði leiðtoga þar sem við fáum til liðs við okkur leiðtoga sem starfa þar sem hugsað er út fyrir boxið og lögð áhersla á jákvæða vinnustaðamenningu. 

Leiðtogarnir sem mæta í pallborðið:

Gunnar Haugen hjá CCP Games

Gunnar Haugen, HR Director hjá CCP, starfaði í nær tvo áratugi við ráðgjöf í frammistöðu- og þjónustjórnun, gerð og smíði hvatakerfa, launagreiningar, og rak lengi eina stærstu ráðningaþjónstu landsins. Hann hefur mikla trú á mælingum, mati, endurgjöf og kerfum sem styðja við það í rekstri fyrirtækja og stjórnunareininga. Tvennt einkennir nálgun Gunnars við viðfangsefni sín, að starfsfólki eigi að líða vel í vinnunni og reksturinn þarf að ganga vel. Annað án hins er takmarkaður árangur.
Síðustu sjö árin hefur hann starfað við að komast að því hvernig tölvuleikir eru búnir til og hvernig er best hægt að styðja við fólk í skapandi umhverfi leikjageirans.

Helga Halldórsdóttir mannauðsstjóri hjá Arion banka

Helga Halldórsdóttir er forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka og hefur yfir 30 ára reynslu úr fjármálageiranum. Hún býr yfir víðtækri reynslu m.a. í mannauðsmálum og straumlínustjórnun. Hún ber ábyrgð á innleiðingu mannauðsstefnu bankans og hefur leitt öflugar nýjungar á sviði mannauðsmála, með sérstaka áherslu á jafnrétti, fræðslu, skilvirkni, starfsþróun og öfluga fyrirtækjamenningu. 

Hildur Ragnarsdóttir forstjóri Þjóðskrá.

Aðalfundur faghóps um heilsueflandi vinnuumhverfi

Farið verður yfir viðburði vetrarins og kosið til stjórnar faghópsins og formennsku.

Hlekkur á fundinn

https://teams.microsoft.com/meet/330368377874986?p=k7lJwBBUYD12aai42c

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu

Hlekkur inn á viðburðina

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu verður haldinn mánudaginn 27. Apríl klukkan 12:00 til 12:30 í gegnum Teams.

Stjórn faghóps um fjölbreytileika og inngildingu sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins.

Faghópur um fjölbreytileika og inngildingu óskar eftir framboðum stjórnarfólks. Við hvetjum þá sem gætu haft áhuga á að sitja í stjórn faghópsins til að láta vita af sér með því að senda tölvupóst á monika@eykt.is

Fundardagskrá:

  • Uppgjör á starfsári
  • Starfsárið framundan, markmið og fyrirkomulag
  • Önnur mál

Aðalfundur faghóps um verkefnastjórnun

Aðalfundur faghópsins Verkefnastjórnun, fyrir árið 2026, verður haldinn 28. apríl kl. 12.00-13:00.
Þetta verður fjarfundur en þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið gisli.rafn.gudmundsson@fsre.is

Við veljum athygli á því að það er laus ein staða í okkar níu manna stjórn. Auk þess auglýsum við eftir áhugasömum sem vilja taka að sér formennsku og varaformennsku. Stjórn faghóps um verkefnastjórnun sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á formann faghópsins á netfangið gisli.rafn.gudmundsson@fsre.is með upplýsingum um sig og ástæðum þess að viðkomandi gefur kost á sér í stjórn faghópsins. 

Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Verkefnstjórnun

  • Framsaga formanns - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

---

F.h. faghópsins
Gísli Rafn Guðmundsson

Aðalfundur faghópsins Umbætur og ferlastjórnun

Fundardagskrá:
  • Uppgjör á starfsárinu
  • Kosning stjórnar
  • Kosning formanns
  • Önnur mál

     

Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar sendi tölvupóst á núverandi formann hópsins: hrafnhildur.birgisdottir@landsbankinn.is

Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni

Hlekkur á fundinn 

Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni
 
Fundardagskrá:
 
  • Uppgjör á starfsári
  • Kosning til stjórnar og formanns
  • Önnur mál
 
Stjórn faghópsins sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. Það er einstaklega gefandi og skemmtilegt að vera í stjórn. Þannig er hægt að hafa áhrif á dagskrá faghópsins og fá tækifæri til að kynnast bæði öðrum stjórnarmeðlimum og flottum fyrirlesurum.
 
Þeir sem vilja bjóða sig fram til stjórnar vinsamlegast sendið tölvupóst á formann faghópsins, thorhildur.thorkelsdottir@marel.com.

Aðalfundur faghóps um Aðstöðustjórnun.

Aðalfundur faghóps um Aðstöðustjórnun verður haldin þann 8. maí kl 12:00

Staðsetning: Tívoli bistro, Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík.

Farið verður yfir viðburði líðandi starfsárs og kosið til stjórnar faghóps og formennsku.

Öll sem hafa áhuga að mæta vinsamlegast hafið samband við formann hópsins Katrín Ólöf Egilsdóttir, katrin@managull.is

 

Innri vinna leiðtogans: Vinnustofa um kjarnagildi og þjónandi forystu

Til að vera leiðtogar í okkar lífi og leiða aðra þurfum við fyrst að dýpka eigin sjálfsvitund. Að þekkja okkar gildi og lifa í samræmi við þau daglega er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.

Á þessari vinnustofu veita Bryndís og Lára Kristín þátttakendum tækifæri til að kortleggja eigin kjarnagildi og íhuga hvernig þeir geta lifað meira í samræmi við þau. Kjarnagildi þjónandi leiðtoga verða kynnt og þar geta þátttakendur sótt innblástur til frekari vaxtar ef það höfðar til þeirra. Samhliða þessari vinnu kjörnum við okkur og tengjumst okkar ásetning í gegnum stuttar leiddar hugleiðslur. 

Þessi vinnustofa er fyrir alla sem vilja fá innsýn í þjónandi forystu og leggja meiri áherslu á hvernig við getum lifað í takt við okkar eigin gildi í lífi og starfi.

ATH. Vinnustofan hefst á núvitundargöngu og leik í náttúrunni í Guðmundarlundi til að jarðtengja okkur fyrir vinnustofuna. Mætið því vel búin og tímanlega.

Hvað annað þarftu að taka með? Stílabók, penna og opinn hug.

Bryndís Skarphéðinsdóttir er með bakgrunn í alþjóðlegum lífsstíls-og heilsufræðum og fór í MSc nám í vinnusálfræði, eftir að hafa stundað hugleiðslu-og jóga nidra kennaranám á Indlandi. Síðustu ár hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, innan Norræna tengslanets um nám fullorðinna og í Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Bryndís er útskrifaður markþjálfi frá VIRKJA og hugleiðslukennari frá Yoga Essence á Indlandi.

Lára Kristín Skúladóttir er sjálfstætt starfandi lóðs og leiðtogaþjálfi en starfaði áður sem stjórnunarráðgjafi, markþjálfi og Lean sérfræðingur hjá VÍS, í gæðamálum hjá Arion banka og sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX. Hún er með MSc gráðu í alþjóðastjórnun og markaðsfræði frá Copenhagen Business School og er markþjálfi frá Evolvia og VIRKJA.

Aðalfundur Öryggishóps Stjórnvísi

Aðalfundur faghópsins Öryggishóps Stjórnvísi verður haldinn þann 21 maí nk. Þetta er staðarfundur og þeir sem hafa áhuga á að mæta vinsamlegast sendið tölvupóst á formann (fjola.gudjonsdottir@kaldvik.is).
Vakin er athygli á því að ein staða laus í stjórn félagsins.
Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á formann faghópsins með upplýsingum um sig og ástæðum þess að viðkomandi gefur kost á sér í stjórn faghópsins. 

Dagskrá: 

  • Framsaga formanns - yfirlit yfir starfsemi ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar
  • Ákvörðun um fyrsta fund 2026-2027

Activity based work.

Kristinn Jóhannesson sviðsstjóri framkvæmda og tæknisviðs Háskóla Íslands, segir okkur frá skipulagningu húsnæðis Hótel Sögu fyrir Menntavísindasvið m.t.t verkefnamiðaðrar vinnu. En þau fengu til liðs við sig Tim de Vos-Donkers frá Hollandi til aðstoðar.

 

Tim de Vos-Donkers is a senior consultant at Veldhoen company, Netherlands he is a specialist in activity based work. 

 

 

Eldri viðburðir

Aðalfundur faghóps um góða stjórnarhætti

Fundardagskrá:

  1. Uppgjör á starfsári
  2. Kosning til stjórnar
  3. Önnur mál

Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar sendi tölvupóst til núverandi formanns hópsins Hrannar Ingólfsdóttur á hronn.ingolfsdottir@isavia.is. Svigrúm er til að bæta 6 aðilum við stjórnina.

 

Tengill á fundinn: https://teams.microsoft.com/meet/344096614562596?p=sNs6YYhdLwkOkNtWSu

Aðalfundur faghóps markþjálfunar

Aðalfundur faghóps um markþjálfun 2026

Aðalfundur faghóps um markþjálfun verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl klukkan 13:30 til 13:45 eftir viðburð í húsakynnum HR.

Fundardagskrá:

  • Uppgjör á starfsári
  • Kosning til stjórnar
  • Kosning formanns
  • Önnur mál

Faghópur um markþjálfun óskar eftir framboðum til stjórnarfólks.

 

Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar, vinsamlegast sendið tölvupóst á liljagu@gmail.com

 

Markþjálfun undir smásjá – hvað er hún í raun og veru?

Markþjálfun hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli í stjórnun, leiðtogafræði og persónulegri þróun. Á sama tíma hefur hún stundum mætt efasemdum eða fordómum – oft vegna misskilnings um hvað markþjálfun er og hvað hún er ekki.
 
Í þessu erindi verður farið yfir grunn markþjálfunar: hvað felst í góðu markþjálfunarsamtali, hvernig aðferðin byggir á ábyrgð, sjálfsþekkingu og skýrari hugsun, og hvers vegna hún reynist svo áhrifarík fyrir einstaklinga og teymi. Einnig verður skoðað hvaðan algengir fordómar gagnvart markþjálfun koma og hvernig hægt er að nálgast hana með fagmennsku, gagnrýninni hugsun og opnum huga.
 
Markmiðið er að gefa þátttakendum skýrari mynd af því hvað markþjálfun er í raun og hvaða ávinning hún getur skapað – hvort sem hún er nýtt til að styrkja leiðtogahæfni, efla samstarf eða styðja fólk í að verða sterkari “leikmenn” í eigin starfi og lífi.
Erindið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að kynnast markþjálfun á dýpri og faglegri hátt. Þátttakendur fá bæði innsýn í grunn aðferðarinnar og tækifæri til að velta fyrir sér hvernig markþjálfun getur nýst í þeirra eigin starfsumhverfi."

 

Fyrirlesari 

Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.
Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.
Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi, ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.

 

Linkur á Teams hér

Vinsamlegast athugið að þeir sem verða á Teams geti ekki tekið þátt í samtalinu eftir erindið, þeir eru aðallega að hlusta.

Að rýna í græn umskipti og ólíkar framtíðir

Við fáum gestafyrirlesara til að fjalla um skýrsluna Græn umskipti og framtíðaráskoranir: sviðsmyndir til 2040, sem unnin var fyrir framtíðarnefnd Alþingis. Skýrslan er aðgengileg á vef Framtíðarseturs: framtidarsetur.is.

Hér er vefslóðin á fundinn: https://teams.microsoft.com/meet/366291188356666?p=RVhmezZiWVP1tUnp2y

Eyþór Eðvarðsson er stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Hann er virkur í baráttuhópnum París 1,5, sem vinnur að því að Ísland leggi sitt af mörkum í loftslagsmálum. Hann var jafnframt einn af stofnendum Votlendissjóðsins og fyrsti stjórnarformaður hans.

Eyþór hefur skrifað fjölda greina um loftslagsmál, meðal annars um hvernig önnur ríki nálgast græn umskipti og hvað Ísland getur lært af þeim. Í erindinu mun hann fara yfir lykilatriði skýrslunnar og tengja þau við þróunina í Evrópu. Þar verður meðal annars fjallað um grænu umskiptin í Danmörk, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi og Þýskalandi.

Eyþór fær annars lausan tauminn.

Ráðgjöf og handleiðsla leiðtoga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum

 
 
 
Ert þú í upphafi vegferðar með sprota- eða nýsköpunarfyrirtæki? Eða stefnirðu á vaxtasprett? Ef svo er, Þá er þetta viðburðurinn fyrir þig. Sandra Mjöll hjá Fönn ráðgjöf deilir reynslu sinni sem frumkvöðull og innsýn í hvernig best sé að stýra þróun, forystu og vexti í nýsköpun.
Þú munt fá:
  • Innsýn í áskoranir sem verða til þegar vísindi, tækni og nýsköpun mætast
  • Hagnýt ráð um hvernig markviss handleiðsla og traust forysta getur hjálpað sprotafyrirtækjum að vaxa hraðar, án þess að fórna sátt við sjálfan sig eða teymi sitt
  • Leiðir til að byggja upp heilbrigt, vel skipulagt og framtíðarhæft fyrirtæki með stuðningi, þekkingu og sjálfbærri stjórn
Viðburðurinn höfðar til allra sem starfa við eða hafa áhuga á sprotum, nýsköpun, frumkvöðlastarfi og forystu og vilja kynnast því hvernig vísindi og viðskipti geta sameinast í áhrifaríkri og mannúðlegri framtíðarsýn.
Hver er Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch hjá Fönn ráðgjöf?
Svo fátt eitt sé nefnt:
  • Hún er með doktorspróf í Líf- og læknavísindum, með sérsvið í vefjaverkfræði og frumulíffræði.
  • Hún hefur yfir 14 ára reynslu af vísindum, nýsköpun og forystu, bæði í akademíu og viðskiptalífinu.
  • Hún var útnefnd „Kvenfrumkvöðull ársins 2017“ af alþjóðlegu samtökunum Global Women Inventors & Innovators Network (GWIIN).
  • Hún er í hópi topp 100 kvenna í nýsköpun sem fjárfestar ættu að líta til að mati Forbes
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?