Stefnumótun Stjórnvísi 2026-2031 (lokaður viðburður)

Stjórn Stjórnvísi ásamt fulltrúum frá öllum faghópum Stjórnvísi er boðið að taka þátt í vinnustofu um stefnumótun Stjórnvísi til næstu fimm ára. Vinnustofan fer fram hjá Marel, Austurhrauni 9, 210 Garðabæ í fundarherberginu Lóni. Vinnustofan hefst stundvíslega klukkan 13 og eru allir beðnir um að vera komnir fyrir þann tíma.

Á vinnustofunni verður unnið að nýrri framtíðarsýn, hlutverki og fókus stoðum félagsins fyrir tímabilið 2026-2031. Niðurstöður hennar munu leggja grunn að nýrri stefnu félagsins.

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga góðan dag saman.

Kær kveðja,Anna Kristín

Formaður stjórnar Stjórnvísi

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Gervigreind í framkvæmd: Hvar liggur raunverulega virðið?

Við höfum fengið góðan fyrirlesara til að fjalla um hagnýtingu AI, Gísla Ragnar Guðmundsson hjá Almannarómi og leiðir New Nordics AI á Íslandi.
Á málstofunni verður farið yfir þróun gervigreindar síðustu mánuði, með áherslu á hvernig tæknin er að færast frá tilraunum yfir í raunverulega hagnýtingu. Fjallað verður um þróun erlendis, netöryggi og hvar helstu tækifærin til verðmætasköpunar liggja. Einnig verður stuttlega sagt frá starfi New Nordics AI og Almannaróms.

Vefslóðin á fundinn er hér

Stytting vinnuvikunnar og hvernig við náum að tækla verkefnin?

Styttingin vinnuvikunnar var hluti af víðtækum breytingum á vinnumarkaði hjá hinu opinbera og síðar á almennum vinnumarkaði og kom almennt til framkvæmda á árunum 2020-2021. Hvernig hefur tekist til og erum við að ná að tækla öll verkefnin?

Við heyrum frá fulltrúum nokkurra vinnustaða um hvernig verkefnið hefur tekist. 


María Ösp Ómarsdóttir hefur verið leikskólastýra hjá Hjallastefnunni frá árinu 2015
.
Hún er ein stofnenda Opna leikskóla Memmm og situr í stjórn félagsins. Hún er auk þess 5 barna móðir og sjómannskona.
Heiti erindis Maríu Aspar: Árbær er Sjálfbær: Raunverulegar umbætur í viðverustjórnun og valdefling mannauðs í leikskólanum Árbæ. Hvernig framkvæmd og skipulag styttingu vinnuvikunnar í leikskóla getur verið lykillinn að jafnara álagi og færri veikindadögum, sem leiðir til aukinnar skuldbindingar starfsfólks til vinnustaðarins og betri starfsanda.

 

Guðmundur Þór Sigurðsson er deildarstjóri Fasteigna- og umhverfisþjónustu Landspítalans.
Guðmundur ber ábyrgð á fjölbreyttri stoðþjónustu sem styður við daglegan rekstur stærsta vinnustaðar landsins, m.a. fasteignaþjónustu, umhverfisþjónustu, öryggisþjónustu, þjónustuveri og símvörslu. Starfsemin nær yfir fjölda bygginga, ólíkar starfsstöðvar og þjónustu sem þarf að virka allan sólarhringinn — líka þegar flestir eru farnir heim.
Heiti erindis Guðmundar: Þegar vinnuvikan styttist en verkefnin ekki - áskoranir styttingar vinnuvikunnar í sólarhrings- og stoðþjónustu. 

 

Samband eignastýringar og aðstöðustjórnunar (e. facility asset management - Dr Brian Atkin)

Teams hlekkur til þess að tengjast fundi

Aðstöðustjórnun og eignastýring hafa lengi þróast í aðskildum fögum — með ólíkum aðferðum og forgangsröðun — þrátt fyrir að bera í reynd sameiginlega ábyrgð: að tryggja að hið byggða umhverfi virki á öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan hátt. Þessi aðgreining hefur skapað sóun, óhagkvæmni og glötuð tækifæri fyrir eigendur og rekstraraðila fasteigna.

Í nýrri bók sinni, Facility Asset Management - Performance, Risk & Value, kynna höfundarnir Duncan Waddell og Brian Atkin hugtakið Facility Asset Management (FAM) — samþætta nálgun sem sameinar bestu starfshætti aðstöðustjórnunar og eignastýringar til að hámarka virði, lágmarka áhættu og styðja stefnumótandi ákvarðanatöku.

Brian Atkin er einn virtasti sérfræðingur heims á þessu sviði. Á fundinum fer hann yfir helstu niðurstöður bókarinnar og svarar meðal annars þessum spurningum:

  • Hvers vegna er samþætting aðstöðustjórnunar og eignastýringar orðin nauðsynleg?
  • Hvernig geta gögn og tækni breytt mannvirkjum úr viðbragðsdrifnu umhverfi í fyrirbyggjandi og virðisskapandi kerfi?
  • Hvernig geta leiðtogar í aðstöðustjórnun skapað raunverulegt virði fyrir sínar skipulagsheildir?

Fundurinn er kjörinn fyrir stjórnendur og sérfræðinga í aðstöðustjórnun, eignastýringu, rekstri fasteigna og sjálfbærni sem vilja heyra beint frá einum helsta hugsuði greinarinnar hvernig þessi nálgun getur nýst í íslensku samhengi - og fá um leið tækifæri að spyrja Brian spurninga.

Heilbrigð vinnustaðamenning og dæmi um hagnýtingu þekkingar

Hver eru grundvallaratriði vinnustaðamenningar? Hagnýt þekking 

Vinnustaðamenning byggir á sál-félagslegum þáttum í vinnuumhverfinu þar sem forysta gegnir mikilvægu hlutverki sem og virk þátttaka og ábyrgð alls starfsfólks. Vinnustaðamenning hefur afgerandi áhrif á vellíðan, ánægju og árangur. Víða eru vísbendingar um að bæta þurfi vinnustaðamenninguna. Þekking um heilbrigða vinnustaðamenningu hefur vaxið og styrkst með rannsóknum undanfarna fjóra áratugi en margt bendir til þess að brýnt sé að hagnýta þessa þekkingu enn betur. Í erindinu verður fjallað um grundvallaratriði heilbrigðrar vinnustaðamenningar og kynnt dæmi um hagnýtingu þekkingarinnar á vinnustöðum hér á landi.

Sigrún Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá Vinnueftirliti ríkisins.

Auðkenni fundar: 336 938 644 719 415
Lykilorð: S3YT9wo9

Kulnun Íslendinga á vinnumarkaði – hvað segja sjö ára gögn okkur?

Prósent hefur mælt kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði árlega frá árinu 2020 og kynnir nú nýjustu niðurstöður ársins 2026.

Í fyrirlestrinum verður þróun kulnunar á íslenskum vinnumarkaði skoðuð yfir sjö ára tímabil, frá 2020–2026. Hvaða breytingar hafa orðið á þessum tíma? Hvaða hópar skera sig úr? Og hvaða starfstengdu og aðrir þættir tengjast streitu og álagi?

Rannsóknin byggir á um 900 svörum einstaklinga á vinnumarkaði um allt land og niðurstöður eru meðal annars greindar eftir starfsgrein, starfsaldri, kyni, aldri og menntun.

Fyrirlesari:
Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, kynnir helstu niðurstöður og það sem helst vekur athygli í sjö ára þróuninni.

Skráning:
Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 14. október. Skráðir þátttakendur fá Teams-fundarboð sent í kjölfarið.

👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://prosent.is/fyrirlestur-um-kulnun-islendinga-a-vinnumarkadi-2026/

Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar hjá Travel Connect þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir grunnatriði við notkun gervigreindar við gerð skriflegrar fræðslu. Katrín hjá Travel Connect tekur svo við og segir frá vegferð Travel Connect þar sem hlutverkaleikir eru notaðir til að æfa samskipti með sérstakri áherslu á sölu. Að lokum segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til rafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Hægt verður að mæta í húsnæði Travel Connect á Suðurlandsbraut 34 eða fylgjast með viðburðinum á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Heilsa sem stefnumarkmið og forystumál

Hver er ábyrgð vinnustaðarins þegar kemur að heilsu starfsfólksins?

Hvað með að passa upp á:

  • Streitu
  • Vinnustaðamenningu
  • Sveigjanleika á vinnustað
  • Samskipti - hafa áhrif á svefn

Nánari upplýsingar þegar nær dregur. 

Eldri viðburðir

Umbúðalaust Ísland? – Nýjar reglur, áhrif og áskoranir

Hlekkur á fundinn
Faghópur Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi býður til málstofu um reglugerð ESB 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang, svokallaða PPWR, sem kom til framkvæmda í ESB 12. ágúst 2026.

Hvaða breytingar felur reglugerðin í sér og hvaða áhrif getur hún haft á íslensk fyrirtæki og neytendur? Fulltrúar ólíkra hagaðila flytja stutt innlegg um stöðu umbúðamála, sýn á nýju reglurnar og helstu áskoranir fram undan. Að erindunum loknum fara fram sameiginlegar umræður og spurningar frá þátttakendum.

Frummælendur verða:

  • Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Danól.
  • Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni.

Freyr Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá SORPU, verður fundarstjóri og stýrir umræðum.

 

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams. 

Dagskrá

  • 10:00–10:05 – Setning og kynning á viðfangsefni
    Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri.
  • 10:05–10:15 – Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun
    Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis.
  • 10:15–10:25 – Erindi frá Danól
    Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri.
  • 10:25–10:35 – Erindi frá Krónunni
    Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála.
  • 10:35–11:00 – Sameiginlegar umræður og spurningar.

Microsoft Teams meeting

Join: https://teams.microsoft.com/meet/357911267992207?p=DPDx0CDjIsOaJquQiJ

Meeting ID: 357 911 267 992 207

Passcode: gF2XV6RA

Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði

Hlekkur á fundinn
Faghópur Stjórnvísi - Gæðastjórnun og ISO staðlar, kynnir spennandi viðburð "Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði"


Hvernig getum við skapað bæi, nærumhverfi og húsnæði sem styðja við vellíðan og daglegt líf? Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, fjallar um hvernig þekking á samspili fólks og umhverfis getur aukið gæði í hönnun og skipulagi. Með dæmum úr starfi Envalys verður sýnt hvernig skýrar forsendur, samráð og gagnvirk þrívíddarlíkön geta stutt upplýstar ákvarðanir frá upphafi verkefna. Jafnframt verður rætt hvernig verja megi lífsgæði gagnvart kröfum um einföldun og sparnað og tengja mannlegar þarfir við sjálfbærni og markvissa gæðastjórnun.

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams, (hlekkur kemur hér inn um sólahring fyrir fund).

---

Páll Jakob Líndal er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort um er að ræða náttúru eða byggt umhverfi. Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum er snúa að verndun byggingararfsins, auk þess að vinna að sálfræðilegum rannsóknum og hefur um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.

Páll á og rekur ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækið ENVALYS ásamt Herði Má Hafsteinssyni tölvunarfræðingi og Hannesi Högna Vilhjálmssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavik, þar sem áhersla er lögð á að innleiða umhverfissálfræði og þrívíddar- og sýndarveruleikatækni inn í skipulags- og hönnunarverkefni. 

Þá er Páll forstöðumaður viðbótarnáms á meistarastigi í umhverfissálfræði við Háskólann í Reykjavík, kennir umhverfissálfræði við Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, auk þess að vera pistlahöfundir, fyrirlesari og markþjálfi.

Árangursrík fræðsla

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum býður til viðburðar hjá Ásum þar sem Eva Karen Þórðardóttir, fræðslustjóri Ása, fjallar um árangursríka fræðslu og það sem hefur reynst vel í fræðslustarfi fyrirtækisins.

Að erindinu loknu verður opnað fyrir spurningar og samtal þátttakenda. Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að skiptast á reynslu og mynda tengsl við aðra sem sinna fræðslu og starfsþróun.

Hægt verður að mæta í húsnæði Ása að Ármúla 25 eða fylgjast með viðburðinum á Teams.

Hlekkur: Viðburður á Teams

Öryggi í hönnun = öryggi í rekstri

Smelltu hér til að tengjast fundinum.
Lengi býr að fyrstu gerð

Ákvarðanir sem teknar eru á hönnunarstigi geta haft mikil áhrif á öryggi bygginga – bæði á framkvæmdatíma og síðar við notkun, rekstur og viðhald.

Í þessum fyrirlestri fjallar Böðvar Tómasson, byggingar- og brunaverkfræðingur, um samspil hönnunar og öryggismála og hvað fyrirtæki og stofnanir þurfa að hafa í huga þegar ráðist er í breytingar eða nýframkvæmdir. Hvernig er hægt að greina og fyrirbyggja áhættu strax á hönnunarstigi mannvirkja?  Farið verður yfir aðferðarfræði ,,öryggis í hönnun,, og hvernig aðkoma sérfræðinga í gæða- og öryggismálum getur orðið. Einnig verður fjallað um viðeigandi lagaumgjörð og þær hindranir sem kunna að koma upp í ferlinu.

Böðvar Tómasson er byggingar- og brunaverkfræðingur og framkvæmdastjóri ÖRUGG verkfræðistofu. Hann hefur yfir 20 ára reynslu á sviði brunaöryggis, áhættustjórnunar, öryggisverkfræði og verkefnastjórnunar.

Böðvar er jafnframt doktorsnemi við Háskóla Íslands, þar sem rannsóknir hans snúa að samfélagsöryggi, áhættustjórnun og þjóðaröryggi. Hann tekur þátt í alþjóðlegu staðlastarfi ISO á sviði áhættustjórnunar, öryggis og viðnámsþols og hefur komið að þróun íslenskrar byggingarreglugerðar með áherslu á árangursmiðaða brunahönnun.

Öld ímyndunaraflsins – frábær viðburður með Berg Ebba

Bergur Ebbi fjallar um bók sína Öld ímyndunaraflsins. Um bókina segir í tilkynningu útgefanda: "Öld ímyndunaraflsins er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag - geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar um af eldmóði, skynsemi og þekkingu"

Eigum góða morgunstund með Berg Ebba 8 september nk. Vefslóðin á fundinn er hér

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?