Nóvember 2012

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
29
  •  
30 31 01
  •  
02 03
  •  
04
  •  
05
  •  
06
  •  
07
  •  
08 09
  •  
10
  •  
11
  •  
12
  •  
13 14 15
  •  
16
  •  
17
  •  
18
  •  
19
  •  
20 21
  •  
22 23
  •  
24
  •  
25
  •  
26
  •  
27 28 29 30 01
  •  
02
  •  

Seed Forum Iceland 26th of Oct.

Stærsta fjárfestaráðstefna Íslands - Seed Forum Iceland - verður haldin föstudaginn 26. október í Arion Banka (skráning: www.seedforum.is).

Sex íslensk og tvö erlend fyrirtæki kynna sig fyrir fjárfestum: Mentor (www.mentor.is), Guitarparty (www.guitarparty.com), Mymxlog (www.mymxlog.com), Cooori (www.cooori.is), Designing Reality (www.designingreality.co), Kúla Inventions (www.kulainventions.com), Neckcare (www.neckcare.com), SnowCastle (www.snowcastleco.com).

Þrír leiðandi fjárfestar í Evrópu og Bandaríkjunum fjalla um fjárfestingar í sprotafyrirtækjum. Brian Singerman frá Founders Fund (www.foundersfund.com), áhættufjárfestingasjóður í Bandaríkjunum sem fjárfesti m.a. í Facebook, Spotify og SpaceX, Geir Ove Kjesbu, framkvæmdastjóri Investinor (www.investinor.no) sem er einn stærsti klak-sjóður Evrópu og Robin Rowland Hill frá Beer&Partners (www.beerandpartners.co.uk) sem er leiðandi í fjármögnun sprotafyrirtækja í Bretlandi.

Aðilar Sprotaþings Íslands: Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, NSA - Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Eyrir Investments, Íslandsstofa og Viðskiptaráð, í samstarfi við Arion Banka - aðalstyrktaraðila Seed Forum Iceland, hvetja til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum.

Tilgangur Seed Forum Iceland þingsins er að kynna árangursrík sprotafyrirtæki sem fjárfestingarkost fyrir fjárfestum, fjárfestingasjóðum eða aðilum sem geta tengt þessi fyrirtæki við fjárfesta. Fjárfesting eykur líkur á árangri sprotafyrirtækja á alþjóðlegum markaði. Nú þegar hafa 113 fyrirtæki kynnt sig fyrir fjárfestum á Seed Forum Iceland þinginu og þar af 75 íslensk fyrirtæki. Fjárfest hefur verið í 39% íslensku fyrirtækjanna. Fyrirtæki eins og CCP, Orf-Líftækni, Gavia og mörg önnur fyrirtæki sem hafa kynnt viðskiptahugmynd sína á Seed Forum Iceland eru ört vaxandi fyrirtæki. Sprotafyrirtæki geta verið mjög góð fjárfesting.

Haustráðstefna Stjórnvísi 2012 í Hörpu 26.október - Að móta framtíðina

Að skapa framtíðina

Besta leiðin til að spá framtíðina er að skapa hana sjálf(ur)!

Hvernig móta góðir leiðtogar framtíð fyrirtækja sinna? Hvaða áhrif hefur tæknibyltingin á stjórnun fyrirtækja? Er komin upp óbrúanleg tæknigjá á milli kynslóða á vinnustöðum? Hvaða áhrif hafa samskiptamiðlarnir á rekstur fyrirtækja?

Rætt verður um mótun framtíðar, forystu, frumkvöðla, leiðtogamennsku, nýsköpun, breytingastjórnun og helstu áskoranir fyrirtækja á tímum nýrrar tækni.

Samtalsform

Þeir Jón von Tetzchner og David Martin verða ekki með eiginlega fyrirlestra heldur verður samtalsformið notað. Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar og formaður Stjórnvísi, ræðir við Jón Stephenson von Tetzchner og Sigurjón Þór Árnason, gæða- og öryggisstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, ræðir við David Martin.

Ráðstefnustjóri er Hrefna Sigríður Briem, forstöðumaður B.Sc. náms í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík.

Í HÖRPU, FÖSTUDAGINN 26. OKTÓBER
KALDALÓNI KL 13:00 - 16:00
AÐGANGUR ÓKEYPIS

Mannauðsstjórar! Fundur um heilsueflingu á vinnustöðum - Betri líðan starfsfólks og ávinningur ft.

Ásta Snorradóttir, fagstjóri rannsókna og heilbrigðisdeildar hjá Vinnueftirlitinu og Teitur Guðmundsson læknir hjá Heilsuvernd flytja erindi um áhrif heilsueflingar á líðan starfsfólks og ávinning fyrirtækja af góðri heilsustefnu.

Umfjöllun þeirra verður um hvað má gera betur og hver er ábyrgð stjórnenda á heilsu starfsmanna og heilbrigðu starfsumhverfi. Einnig hvaða ávinning hafa fyrirtæki af heilsueflingu á vinnustaðnum.

Fundurinn verður haldinn í Vinnueftirlitinu Bíldshöfða 16.
Allir hjartanlega velkomnir.

Stórasta land í heimi - hvernig hönnum við Ísland?

Þriðjudagur 30. október kl. 12-13

Nýsköpunarhádegi Klaks er haldið í hádeginu á hverjum þriðjudegi í O2 húsinu. Nýsköpunarhádegi Klaks er samstarfsverkefni Klak - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, Stjórnvísi, Samtaka iðnaðarins, Viðskiptablaðsins og RUV.

Þema: Stórasta land í heimi - hvernig hönnum við Ísland?

Frummælendur:

Magnús Orri Schram - þingmaður
Orri Hauksson - framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins

Fundarstjóri:
Eyþór Ívar Jónsson - framkvæmdastjóri Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins

Fundaröðin er öllum opinn - frábær skemmtun og menntun - og kaffi í kex í boði. Fundurinn er tekinn upp á vídeó.

Notkun Hugsmiðjunnar á Kanban - kynning sem á erindi til allra Lean áhugamanna

Hugsmiðjan býður í heimsókn þar sem Ragnheiður H. Magnúsdóttir framkvæmdastjóri mun fræða okkur um Kanban töflu Hugsmiðjunnar, en á hverjum morgni hittast allir starfsmenn fyrir framan töfluna og fara yfir verkefni dagsins. Við munum m.a. fræðast um hvernig Kanban taflan hefur tekið breytingum í tímans rás og gert fyrirtækinu betur kleift að standa við gefin loforð. Kynningin á erindi við alla Lean áhugamenn, skemmra sem lengra komna.
Boðið verður uppá létt snarl í hádeginu.
Fundurinn er haldinn í Hugsmiðjunni, Snorrabraut 56, 2.hæð gengið inn frá Snorrabraut (eru fyrir ofan Roadhouse veitingastaðinn).

Jafnréttismál og framtíðin

Guðrún Rögnvaldsdóttir frá Staðlaráði Íslands segir frá nýjum staðli um launajafnrétti kynjanna. Lengi hefur verið unnið að gerð staðalsins og mun hann vera sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum.

Elín Gréta Stefánsdóttir mannauðsstjóri Verkís segir okkur upp og ofan af vinnu þeirra með jafnréttismál og þeim árangri sem þau hafa náð.

Boðið verður uppá morgunverð.

Fundurinn verður haldinn í Verkís, Suðurlandsbraut 4.

Rannsóknir og samfélagsábyrgð: Ábyrgar fjárfestingar, tískuiðnaður og skoðanakerfi

Málefnahópur Stjórnvísis um samfélagsábyrgð stendur fyrir morgunfundi um rannsóknir og samfélagsábyrgð.

Á fundinum verða kynntar þrjár nýlegar meistararitgerðir íslenskra nemenda við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (CBS) en þær fjalla allar um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn hefur verið leiðandi í kennslu um samfélagsábyrgð og skipar nú 3 sæti yfir bestu viðskiptaháskóla heims samkvæmt mælingum Eduniversal.

Magnús Berg Magnússon mun fjalla um meistararitgerð sína á sviði samfélagslega ábyrgra fjárfestinga (Ethical Investing) en hann útskrifaðist frá viðskiptaháskólanum árið 2011. Rannsókn Magnúsar fjallar um áhættumælda frammistöðu slíkra sjóða í Bandaríkjunum, Evrópu og Skandinavíu borið saman við viðeigandi markaðsvísitölur á árunum 2006-2010.

Sigrún Ýr Árnadóttir fjallar um tískuiðnaðinn á Íslandi og samfélagsábyrgð en Sigrún útskrifaðist frá viðskiptaháskólanum árið 2011. Í ritgerðinni skoðar Sigrún þann þrýsting sem er á íslensk fyrirtæki í fataframleiðslu um að sýna ábyrgð í framleiðslunni og hvernig þau takast á við hana með mismunandi hætti.

Þorsteinn Kári Jónsson kynnir nýja meistararitgerð á sviði samfélagsábyrgðar en hann mun útskrifast frá viðskiptaháskólanum nú í haust. Rannsókn Þorsteins Kára fjallar um skoðanakerfi fræðimanna sem rannsaka samfélagsábyrgð. Flestir byrja rannsóknir á samfélagsábyrgð með það að markmiði að bæta siðferði en breyta viðhorfum sínum til viðfangsefnisins, eftir því sem þeir vinna lengur með hugtakið.

Fundarstjóri er Magnús Þór Gylfason yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.

Málefnahópurinn var stofnaður fyrr á þessu ári og eru nú 58 félagar í hópnum. Formaður hópsins er Regína Ásvaldsdóttir framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð. Aðrir í stjórn eru Finnur Sveinsson sérfræðingur hjá Landsbankanum, Guðný Helga Herbertsdóttir upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, Magnús Þór Gylfason yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar og Ketill Berg Magnússon viðskiptasiðfræðingur.

Húmor í stjórnun

Er hægt að panta starfsgleði? Er alvara í skopskyni?

Lífskúnstnerinn og sköpunargleðisinninn Edda Björgvins verður gestur okkar frá klukkan 8:30 til 10, þriðjudaginn 13. nóvember í betri stofunni í Ofanleiti 2 (gamla HR húsinu). Þar mun hún segja frá því hvernig við getum opnað fyrir krana sköpunargleðinnar innan okkar fyrirtækja, þeirrar gleði sem leiðir til nýsköpunar.

Edda hefur boðið upp á námskeið til stjórnenda um árabil, meðal annars um þjónustustjórnun og þátt hennar í velgengni fyrirtækja. Sagt hefur verið að hlutverk leikstjórans sé með þeim mest krefjandi stjórnunarstöðum sem hugsast getur. Það hlutverk hefur Edda tekið að sér með góðum árangri, auk þess að hafa staðið á sviði og birst á hvíta tjaldinu um áratuga skeið.

Það er því til margs að hlakka þennan þriðjudag. Taktu tímann frá og fáðu sannkallaða gleðisprautu sem á eftir að gera þig ónæma(n) fyrir leiðindum og fýlu út árið.

Við hlökkum til að sjá þig!

Faghópar um nýsköpun og sköpunargleði.

Heilbrigðisáætlun til 2020 - undirbúningur og áherslur

Guðrún Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri í Velferðarráðuneytinu mun fjalla um stefnumótunina og hvað var lagt til grundvallar að nýrri heilbrigðisáætlun.

Þetta er mjög áhugavert og mikilvægt erindi fyrir alla sem koma nálægt heilbrigðismálum. Hér koma fram helstu áherslur sem ráðuneytið mun byggja sína vinnu á til næstu ára. Það er einnig lærdómsríkt að heyra hvernig undirbúningur er fyrir svona umfangsmikið viðfangsefni.

Erindið verður haldið í sal Velferðarráðuneytisins sem heitir Verið.

Hvernig byggjum við brú yfir í Kísildalinn?

Nýsköpunarhádegi Klaks kemur aftur til Reykjavikur eftir útrás í Bandaríkjunum. Frumkvöðlar Viðskiptasmiðjunnar fóru til New York, San Francisco og Boston til að hitta aðra frumkvöðla, fjárfesta og lykilaðila í nýsköpunarumhverfi Bandaríkjanna.
Þema: Hvernig byggjum við brú yfir í Kísildalinn?
Frummælendur verða frumkvöðlar sem hafa skoðað Kísildalinn og þekkja nýsköpunarumhverfið þar.
Fundarstjóri: Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks
Nýsköpunarhádegi Klaks er samstarfsverkefni Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, Stjórnvísi, RUV, Viðskiptablaðsins og Samtaka iðnaðarins.

Í fyrramálið: Einstakt tækifæri þar sem Dr. Runólfur Smári fjallar um það sem er "heitast" ......

"Misstu ekki af þessu einstaka tækifæri þar sem Dr. Runólfur Smári fjallar um það sem er "heitast" í umræðunni um hvernig samspil stefnu og stjórnunar þarf að vera til að viðhalda samkeppnisforskoti".

Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor við HÍ, formaður Rannsóknarmiðstöðvar stefnu og samkeppnishæfni, mun fara yfir það sem efst er á baugi í stefnumiðaðri stjórnun - samspil stefnu og stjórnunar.

Fyrirtæki og stofnanir vinna að mótun og framkvæmd stefnu til að ná sem bestum árangri. Keppikeflið er gott samband við viðskiptavini og forskot á keppinauta. Til að ná árangri þarf skipulagsheildin að vera bæði í takti og í formi. Tala má um „fit“ og „fitness“ í þessu sambandi.

Varðandi stefnuna þá þarf hún að vera skýr, hún þarf að ýta undir virknina í starfseminni og öll framkvæmd og framvinda kallar á góða stjórnun. Stjórnunarhlutverkið skiptir þannig miklu fyrir samspil stefnu og stjórnunar.

Fundurinn verður haldinn í Hofi á 7. hæð í Borgartúni 12 - 14, austurinngangur (húsnæði Reykjavíkurborgar).

Fimmtudaginn 22. nóvember . Boðið verður upp á samlokur og súkkulaði og því allir hvattir til að mæta kl.08:15 og gæða sér á gómsætum veitingum.

kl. 8:15 - 9:45. (fyrirlestur hefst 8:30)

Hefur þú upplifað vandamál á þínum vinnustað vegna áfengis og vímuefna?

Hefur þú upplifað vandamál á þínum vinnustað vegna áfengis og vímuefna? Er kominn tími á faglega stefnu?

Páll Þór Jónsson verkefnastjóri SÁÁ kynnir fyrirtækjaþjónustu SÁÁ, skaðastjórn vegna fíknisjúkdóma og meðvirkni.

Hildur Atladóttir, leiðtogi heilbrigðismála hjá Rio Tinto Alcan á Íslandi fjallar um stefnu fyrirtækisins um áfengis- og vímuefnalausan vinnustað, undirbúning og innleiðingu stefnunnar.

Hvernig má bæta fjárfestaumhverfið á Íslandi?

Nýsköpunarhádegi Klaks er haldið í hádeginu á hverjum þriðjudegi í O2 húsinu.

Nýsköpunarhádegi Klaks er samstarfsverkefni Klak - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, Stjórnvísi, Samtaka iðnaðarins, Viðskiptablaðsins og RUV.

Þema 27. nóvember: Hvernig má bæta fjárfestaumhverfið á Íslandi?

Frummælendur:

Þórður Magnússon, Eyrir Invest: Fjárfestaumhverfið og mentor hlutverk fjárfestis. Einstök skref í þroskaferlinu og hlutverk fjárfestisins í því ferli.

Frosti Sigurjónsson, Dohop og Datamarket: Hvaða tækifæri höfum við til að gera Ísland að enn betri vettvangi fyrir nýsköpun?

Staður: Ofanleiti 2 - stofa 201 - 2. hæð
Kl. 12:00-13:00

Kópavogsbær er fyrst íslenskra sveitarfélaga með ISO 9001 vottun fyrir gæðakerfi á stjórnsýslusviði

Kópavogsbær býður í heimsókn þar sem Árni Þór Hilmarsson gæðastjóri mun kynna gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Hann mun segja frá innleiðingunni, vottunarferlinu og þeim lærdómi sem draga má af því.
Fundurinn verður haldinn í Fannborg 2, 1. hæð, 200 Kópavogi

Umhverfis- og öryggismál og tengsl við samfélagsábyrgð

Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi umhverfismála hjá ISAL mun fjalla um um hvernig umhverfis og öryggismál fyrirtækisins tengjast samfélgsábyrgð föstum böndum. Í erindinu verður komið inn hvernig samráði og samskiptum er háttað við samfélagið og hver ávinningurinn er af því samráði.
Haldið hjá ISAL.

Reynslusaga í notkun á CAF og nýr upplýsingavefur CAF

Pétur B. Matthíasson frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu mun fjalla um CAF sjálfsmatslíkan fyrir stofnanir og sveitarfélög, en ráðuneytið hefur nýlega opnað upplýsingavef fyrir CAF. Hallgrímur H. Gröndal mun fjalla um CAF reynslu hjá Ríkiskaupum.

Hver er staða stjórnendaþjálfunar á Íslandi?

Endurmenntun Háskóla Íslands og Stjórnvísi boða til morgunverðarfundar 30. nóvember 2012 kl. 8.30 - 10.00.

Landslag stjórnunar á Íslandi hefur breyst mikið undanfarin ár og stjórnendur standa frammi fyrir nýjum og erfiðum áskorunum. Á fundinum verður fjallað um stjórnendaþjálfun á Íslandi á nokkuð breiðum grundvelli og munu þrír fræðslustjórar stórra fyrirtækja deila reynslu sinni af skipulagningu stjórnendaþjálfunar.
Hvað er það sem íslenskir stjórnendur sækjast eftir, er þessi hópur frábrugðinn öðrum hópum í atvinnulífinu þegar kemur að fræðslu og þjálfun og hvert er stjórnendaþjálfun á Íslandi að þróast, hvaða aðferðir eru mest notaðar o.s.frv. Á fundinum munu framsögumenn varpa ljósi á svör við þessum og fleiri spurningum.

Framsögumenn

  1. Kristín Jónsdóttir Njarðvík, endurmenntunarstjóri opnar fundinn.

  2. Hildur Arnars Ólafsdóttir fræðslustjóri Actavis - „Ups and downs“ í stjórnendaþjálfun.
    Hildur segir frá því sem hefur gengið vel í stjórnendaþjálfun og hvað ekki undanfarin ár. Hún mun einnig segja frá því sem er framundan hjá „nýju“ fyrirtæki og mikilvægi stjórnendaþjálfunar í því samhengi.

  3. Elísabet Helgadóttir fræðslustjóri Íslandsbanka. - Stjórnendaþjálfun hjá Íslandsbanka.
    Elísabet leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
    Hvaða hæfni þarf stjórnandi að búa yfir til að ná árangri?
    Hvernig stillum við þjálfun upp í samræmi við hæfniskröfur Íslandsbanka?
    Hvernig styðjum við stjórnendur?
    Hvernig mælum við árangur?

  4. Harpa Björg Guðfinnsdóttir leiðtogi fræðslumála Alcan. - Leiðin að slysalausum vinnustað.
    Harpa segir frá stjórnendaþjálfun á vegum móðurfélagsins, Rio Tinto, þar sem áhersla var m.a. á að kenna stjórnendum að grípa inn í aðstæður sem ekki teljast fullkomlega öruggar og leiðbeina starfsmönnum að gera hlutina á sem öruggastan hátt.

Fundarstaður
Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
http://endurmenntun.is/UmEndurmenntun/Hagnytarupplysingar/Stadsetning/

Hlutverk og verkefni skattrannsóknarstjóra ríkisins

Skattrannsóknarstjóri ríkisins býður Stjórnvísifélögum í heimsókn þann 4.desember nk. Á fundinum verður farið yfir hlutverk og verkefni skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 7 .
Hámarksfjöldi á fundinn er 20 manns.

Verið hjartanlega velkomin,
með kærri kveðju frá stjórn faghóps um fjármál fyrirtækja.

Tónlistarsköpun - Verðmætasköpun öðrum til eftirbreytni?

Nýsköpunarhádegi Klaks, þriðjudaginn 4. des. kl. 12:00 - Tónlistarsköpun - Verðmætasköpun öðrum til eftirbreytni?
Nýsköpunarhádegi Klaks er “think tank” um nýsköpun sem er samstarfsverkefni Landsbankans, Samtaka iðnaðarins, Stjórnvísi, Viðskiptablaðsins, RUV og Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins.

Þema 4. desember 2012: Tónlistarsköpun - Verðmætasköpun öðrum til eftirbreytni?

Frummælendur:
Jakob Frímann Magnússon - Stuðmaður og tónlistarmógúll
Grímur Atlason - framkvæmdastjóri Airwaves

Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis til þess að auðga nýsköpunaranda lykilaðila í íslensku atvinnulífi og allra landsmanna.

Ábendingar og kvartanir: Auðlind til umbóta - Árangursrík þjálfun

Tvö erindi eru á dagskrá um ábendingar og kvartanir.

„Ábendingar og kvartanir frá viðskiptavinum: Auðlind til umbóta“

Góður ferill fyrir úrvinnslu ábendinga og kvartana frá viðskiptavinum getur verið undirstaða umbóta, nýsköpunar og arðsemi. Þrátt fyrir að mörg fyrirtæki skrái hjá sér ábendingar og kvartanir, eru fá fyrirtæki sem ná, með árangursríkum hætti, að nýta sér ábendingar og kvartanir til úrbóta og vöruþróunar.

Guðrún Álfheiður Thorarensen og Hallbera Eiríksdóttir, nýútskrifaðir verkfræðingar frá Chalmers í Gautaborg, kynna niðurstöður úr mastersverkefni sínu og reyna að svara hvernig best skuli standa að málum og hverjar séu helstu hindranirnar þegar kemur að því að nýta ábendingar og kvartanir frá viðskiptavinum til árangurs.

„Ábendingar og kvartanir: Árangursrík þjálfun hjá Orkuveitu Reykjavíkur“

Sigrún Viktorsdóttir, forstöðumaður þjónustuvers og Kristjana Kjartansdóttir, gæðastjóri fjalla um þjálfun í tengslum við ábendingar og kvartanir sem skilað hefur góðum árangri hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?