Nýsköpunarhádegi Klaks: Jarðvarmi - er hann "hot" or "not"?
Nýsköpunarhádegi Klaks þriðjudaginn 25. september kl. 12:00
Fyrsta Nýsköpunarhádegi Klaks var haldið 18. september sl. og var húsfyllir. Steinþór bankastjóri Landsbankans og Svana Helen formaður SI opnuðu umræður um Nýsköpunarhagkerfið. Niðurstaðan var að lykillinn er verðmætasköpun og að nýsköpun er "tæki" sem öll fyrirtæki þurfa að nota. Það þarf hugarfarsbreytingu á Íslandi til þess að skapa aukin verðmæti og einblína ekki á náttúruauðlindir heldur nýta okkur þekkingu og tækni nýsköpunarhagkerfisins.
Þriðjudaginn 25. september snýst umræðan um tækifæri í jarðvarma. Við fáum helstu sérfræðinga landsins til þess að hita upp fyrir skemmtilegar umræður.
Þema: Jarðvarmi - er hann "hot" or "not"?
Frummælendur eru lykilaðilar úr jarðvarmageiranum:
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir - verkefnastjóri Jarðvarmaklasans
- Hjörtur Þór Steindórsson - sérfræðingur í endurnýjanlegri orku hjá Íslandsbanka
- Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir - verkfræðingur
Fundarstjóri: Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks
Nýsköpunarhádegi Klaks er samstarfsverkefni Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, RUV, Viðskiptablaðsins, Stjórnvísi og Samtaka iðnaðarins.
Fundurinn er öllum opinn. Boðið er upp á kaffi og meðlæti. Athugið að fundurinn er tekinn upp af RUV og ljósmyndari Viðskiptablaðsins verður á staðnum (svo mætið í spariskónum).