Hefjum 40 ára afmælisár Stjórnvísi í Hvalasafninu - Kick off fundur - Excelskjal til útfyllingar - Húsið opnar 08:30 heitt kaffi og bakkelsi:

Kæru stjórnendur í faghópum Stjórnvísi.
Smellið hér til að fylla út í skjal á vefnum drög að dagskrá. (sýnishorn fylgir með)

Við ætlum að hefja 40 ára afmælisár Stjórvnísi  í Hvalasafninu fimmtudaginn 27.ágúst. Húsið opnar kl.08:30 og dagskrá hefst kl.09:00. Að fundi loknum gefst þátttakendum kostur á að skoða safnið og fræðast um stærstu spendýr jarðar í einstöku umhverfi. 

Valið á Hvalasafninu sem vettvangi fyrsta fundar starfsársins tengist vel afmælisþema Stjórnvísi "Manneskjan í miðju umbreytinga - 40 ára og áfram".   Hvalir hafa um aldir aðlagast breyttum aðstæðum, ferðast um víðáttumikil höf og lifað í öflugum samfélagögum þar sem samvinna, samskipti og leiðsögn skipta sköpum. Á sama hátt byggir starf Stjórnvísi á fólkinu sjálfu- þekkingu þess, reynslu og hæfni til að leiða breytingar og skapa verðmælti í síbreytilegu umhhverfi.

Tilgangur fundarins er að hefja nýtt starfsári af metnaði og samstöðu.

Farið verður yfir þau verkfæri og stuðning sem auðvelda stjórnum faghópa starfið framundan, skaðaður vettangur til að samræma hugmyndir og samstarf milli faghópa og rætt um helstu tækifæri og áskoranir starfsársins. Umfram allt er markmiðið að veita innblástur og styrkja tengsl þeirra sem leiða hið öfluga fagstarf Stjórnvísi. 

Stjórnir faghópa eru hvattar til að hittast í ágúst, njóta saman hádegisverðar í boði félagsins og  hefja undirbúning að dagskrá komandi starfsárs. Ágúst er jafnframt kjörinn tími til að tryggja þátttöku fyrirlesara og leggja grunn að öflugri viðburðarö' vetrarins. 

Stjórn vekur athygli á að stjórnum faghópa gefst tækifæri a.m.k. tvisvar á starfsárinu að hittast í hádegisverði hvar sem er í boði félagsins, hægt er að setja í reikning á Nauthól, Vox og á Kringlukránni. Mikilvægt er að kvitta undir reikninginn og skrifa nafn faghópsins. Ef aðrir staðir verða fyrir valinu er afrit af reikningi sent á Stjórnvísi og reikningurinn greiddur samdægurs.

Stefnt er að því að senda út fyrstu drög að dagskrá  til félaga í byrjun september. 

Öld ímyndunaraflsins – frábær viðburður með Berg Ebba

Bergur Ebbi fjallar um bók sína Öld ímyndunaraflsins. Um bókina segir í tilkynningu útgefanda: "Öld ímyndunaraflsins er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag - geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar um af eldmóði, skynsemi og þekkingu"

Eigum góða morgunstund með Berg Ebba 8 september nk. Vefslóðin á fundinn er hér

Öryggi í hönnun = öryggi í rekstri

Smelltu hér til að tengjast fundinum.
Lengi býr að fyrstu gerð

Ákvarðanir sem teknar eru á hönnunarstigi geta haft mikil áhrif á öryggi bygginga – bæði á framkvæmdatíma og síðar við notkun, rekstur og viðhald.

Í þessum fyrirlestri fjallar Böðvar Tómasson, byggingar- og brunaverkfræðingur, um samspil hönnunar og öryggismála og hvað fyrirtæki og stofnanir þurfa að hafa í huga þegar ráðist er í breytingar eða nýframkvæmdir. Hvernig er hægt að greina og fyrirbyggja áhættu strax á hönnunarstigi mannvirkja?  Farið verður yfir aðferðarfræði ,,öryggis í hönnun,, og hvernig aðkoma sérfræðinga í gæða- og öryggismálum getur orðið. Einnig verður fjallað um viðeigandi lagaumgjörð og þær hindranir sem kunna að koma upp í ferlinu.

Böðvar Tómasson er byggingar- og brunaverkfræðingur og framkvæmdastjóri ÖRUGG verkfræðistofu. Hann hefur yfir 20 ára reynslu á sviði brunaöryggis, áhættustjórnunar, öryggisverkfræði og verkefnastjórnunar.

Böðvar er jafnframt doktorsnemi við Háskóla Íslands, þar sem rannsóknir hans snúa að samfélagsöryggi, áhættustjórnun og þjóðaröryggi. Hann tekur þátt í alþjóðlegu staðlastarfi ISO á sviði áhættustjórnunar, öryggis og viðnámsþols og hefur komið að þróun íslenskrar byggingarreglugerðar með áherslu á árangursmiðaða brunahönnun.

Árangursrík fræðsla

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum býður til viðburðar hjá Ásum þar sem Eva Karen Þórðardóttir, fræðslustjóri Ása, fjallar um árangursríka fræðslu og það sem hefur reynst vel í fræðslustarfi fyrirtækisins.

Að erindinu loknu verður opnað fyrir spurningar og samtal þátttakenda. Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að skiptast á reynslu og mynda tengsl við aðra sem sinna fræðslu og starfsþróun.

Hægt verður að mæta í húsnæði Ása að Ármúla 25 eða fylgjast með viðburðinum á Teams.

Hlekkur: Viðburður á Teams

"Manneskjan í miðju umbreytinga " Haustráðstefna Stjórnvísi 23. september 2026

Nú er um að gera að bóka sig á Haustráðstefnu Stjórnvísi sem ber yfirskriftina "Manneskjan í miðju umbreytinga" sem er þema félagsins á 40 ára afmælisstarfsárinu 2026-2027.

Boðið verður upp á meiriháttar flott morgunverðarhlaðborð að hætti Grand Hótel. Aðgangur er frír og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Smelltu hér til að horfa á ráðstefnuna í beinu streymi. Ráðstefnunni er einnig streymt á visir.is og vb.is

08:40 Húsið opnar: Létt morgunhressing

09:00 Setning ráðstefnu: Anna Kristín Kristinsdóttir Director Software Engineering hjá JBT Marel og formaður stjórnar Stjórnvísi

09:05 Ráðstefnustjóri:  Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur, uppistandari, rithöfundur og pistlahöfundur

09:10 Jón G. Hauksson, ritstjóri Grafarvogur.net og heiðursfélagi Stjórnvísi.

09:25 Pallborðsumræður:  Róbert Bjarnason, stofnandi Citizens Foundation sérfræðingur í gervigreind stýrir umræðum.  Gestir verða Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid, Arna Harðardóttir forstjóri Helix Health.

09:55 Stutt hlé: Tengslamyndun og spjall

10:10 Oddur Ólafsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Horseday. 

10: 30 Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Franklin Covey á Íslandi og heiðursfélagi Stjórnvísi. 

10:50 Samantekt flytur Ingibjörg Loftsdóttir framkvæmdastjóri ráðgjafastofunnar Svalar og varaformaður Stjórnvísi.

11:00 Ráðstefnuslit

Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði

Faghópur Stjórnvísi - Gæðastjórnun og ISO staðlar, kynnir spennandi viðburð "Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði"

Hvernig getum við skapað bæi, nærumhverfi og húsnæði sem styðja við vellíðan og daglegt líf? Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, fjallar um hvernig þekking á samspili fólks og umhverfis getur aukið gæði í hönnun og skipulagi. Með dæmum úr starfi Envalys verður sýnt hvernig skýrar forsendur, samráð og gagnvirk þrívíddarlíkön geta stutt upplýstar ákvarðanir frá upphafi verkefna. Jafnframt verður rætt hvernig verja megi lífsgæði gagnvart kröfum um einföldun og sparnað og tengja mannlegar þarfir við sjálfbærni og markvissa gæðastjórnun.

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams, (hlekkur kemur hér inn um sólahring fyrir fund).

---

Páll Jakob Líndal er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort um er að ræða náttúru eða byggt umhverfi. Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum er snúa að verndun byggingararfsins, auk þess að vinna að sálfræðilegum rannsóknum og hefur um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.

Páll á og rekur ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækið ENVALYS ásamt Herði Má Hafsteinssyni tölvunarfræðingi og Hannesi Högna Vilhjálmssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavik, þar sem áhersla er lögð á að innleiða umhverfissálfræði og þrívíddar- og sýndarveruleikatækni inn í skipulags- og hönnunarverkefni. 

Þá er Páll forstöðumaður viðbótarnáms á meistarastigi í umhverfissálfræði við Háskólann í Reykjavík, kennir umhverfissálfræði við Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, auk þess að vera pistlahöfundir, fyrirlesari og markþjálfi.

Umbúðalaust Ísland? – Nýjar reglur, áhrif og áskoranir

Faghópur Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi býður til málstofu um reglugerð ESB 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang, svokallaða PPWR, sem kom til framkvæmda í ESB 12. ágúst 2026.

Hvaða breytingar felur reglugerðin í sér og hvaða áhrif getur hún haft á íslensk fyrirtæki og neytendur? Fulltrúar ólíkra hagaðila flytja stutt innlegg um stöðu umbúðamála, sýn á nýju reglurnar og helstu áskoranir fram undan. Að erindunum loknum fara fram sameiginlegar umræður og spurningar frá þátttakendum.

Frummælendur verða:

  • Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Danól.
  • Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni.

Freyr Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá SORPU, verður fundarstjóri og stýrir umræðum.

 

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams. Hlekkur verður birtur um sólarhring fyrir fund.

Dagskrá

  • 10:00–10:05 – Setning og kynning á viðfangsefni
    Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri.
  • 10:05–10:15 – Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun
    Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis.
  • 10:15–10:25 – Erindi frá Danól
    Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri.
  • 10:25–10:35 – Erindi frá Krónunni
    Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála.
  • 10:35–11:00 – Sameiginlegar umræður og spurningar.

Gervigreind í framkvæmd: Hvar liggur raunverulega virðið?

Við höfum fengið góðan fyrirlesara til að fjalla um hagnýtingu AI, Gísla Ragnar Guðmundsson hjá Almannarómi og leiðir New Nordics AI á Íslandi.
Á málstofunni verður farið yfir þróun gervigreindar síðustu mánuði, með áherslu á hvernig tæknin er að færast frá tilraunum yfir í raunverulega hagnýtingu. Fjallað verður um þróun erlendis, netöryggi og hvar helstu tækifærin til verðmætasköpunar liggja. Einnig verður stuttlega sagt frá starfi New Nordics AI og Almannaróms.

Vefslóðin á fundinn er hér

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?