Fundi frestað: Markmiðasetning - Hugurinn ber þig hálfa leið

Arnaldur Birgir, framkvæmdastjóri Boot Camp. Hugurinn ber þig hálfa leið ... eða jafnvel alla leið. Reynslusaga íþróttamanns, undirbúningur, áskoranir og fleira.
Unnur Valborg markþjálfi mun fjalla um fræðilega nálgun á markmiðasetningu.
Fundurinn verður haldinn þann 25.apríl kl.08:30 í Síðumúla 33, 3.hæð
Allir velkomnir

Stjórnun auðkenna og aðgangs hjá Stjórnarráðinu

Guðmundur Kjærnested hjá Stjórnarráðinu deilir með okkur reynslusögum af stjórnun auðkenna og aðgangs í flóknu og síbreytilegu umhverfi og þeim aðferðum og verkfærum sem hafa verið notuð.

Spennandi fyrirlestur úr atvinnulífinu um málefni sem snertir alla öryggismeðvitaða vinnustaði.

Hreyfiseðlar - árangur og framtíðarhorfur

Héðinn Jónsson mun fjalla um tilraunaverkefni sem hann hefur yfirumsjón með og felur í sér hreyfingu sem meðferðarform. Hreyfiseðlar eru að ryðja sér til rúms hér á landi og hafa komið í stað hefðbundinna lyfseðla í sumum tilfellum. Fimm heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu taka nú þátt í tilraunaverkefni þar sem læknar skrifa upp á hreyfingu fyrir sjúklinga.

Héðinn mun fjalla um tilurð verkefnisins, árangur og framtíðarhorfur um notkun hreyfingar sem meðferðarforms.

Öryggi á ferðamannastöðum á Íslandi - uppbygging og framtíðarsýn

Hvernig tryggjum við öryggi ferðamanna á ferðamannastöðum Íslandi?

Sveinn Rúnar Traustason, umhverfisstjóri hjá Ferðamálastofu mun fjalla um öryggisstefnu fyrir íslenska ferðamannastaði til ársins 2015 og framtíðarsýn þessara mála.

Ívar Finnbogason, fjallaleiðsögumaður hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum mun fjalla um hvernig staðið er að þjálfun leiðsögumanna hjá fyrirtækinu.

Gott tækifæri til að fræðast um öryggismálin og hvað við getum gert til að gera Ísland að öruggu ferðamannalandi!

Aðalfundur Stjórnvísi 10.maí 2012 - framboð til stjórnar og lagabreytingar

Aðalfundur Stjórnvísi 2012 - verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík V102 sem er á jarhæð. Þegar komið er inn í Sólina verða leiðbeiningar um hvar salurinn er.

Aðalfundur Stjórnvísi 2012 verður haldinn fimmtudaginn 10. maí kl. 15:30 til 17:30 í Háskólanum í Reykjavík. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum verður áhugaverð dagskrá þar sem gestum gefst tækifæri á að kynnast "dragtar-og jakkafatajóga" og hvers vegna æ fleiri fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum eru að nýta sér Lean til aukins árangurs.

Dagskrá aðalfundar

Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Kjör fundarstjóra og ritara.
  2. Skýrsla formanns.
  3. Skýrsla framkvæmdastjóra.
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
  5. Breytingar á lögum félagsins.
  6. Kjör formanns.
  7. Kjör þriggja stjórnarmanna til næstu tveggja ára.
  8. Kjör tveggja varamanna í stjórn til næstu tveggja ára.
  9. Kjör fagráðs.
  10. Kjör skoðunarmanna reikninga.
  11. Önnur mál.

liður 5. breytingar á lögum félagsins
Lögð verður fram tillaga um breytingum á 5.gr. í lögum félagsins sem hljóðar svo í dag:

  1. gr.
    Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal halda fyrir lok maímánaðar, ár hvert. Til aðal- og aukafunda skal stjórnin auglýsa með þriggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal stuttlega geta þeirra mála sem tekin verða fyrir á fundinum. Fundurinn er lögmætur sé löglega til hans boðað. Hverjum fundi stýrir fundarstjóri. Hann rannsakar í fundarbyrjun hvort löglega hafi verið til fundarins boðað. Atkvæðarétt hafa fullgildir félagsmenn.
    Framboð til formanns eða stjórnarsetu skulu auglýst minnst tveim vikum fyrir aðalfund. Starfsár félagsins er milli aðalfunda, en reikningsár er almanaksárið.
    Þessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi:
    • Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
    • Reikningsskil
    • Lagabreytingar
    • Kosning stjórnar
    • Kosning fagráðs
    • Kosning skoðunarmanna

Eftir breytingu:

  1. gr.
    Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og skal halda fyrir lok maímánaðar, ár hvert. Til aðal- og aukafunda skal stjórnin auglýsa með þriggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal stuttlega geta þeirra mála sem tekin verða fyrir á fundinum. Fundurinn er lögmætur sé löglega til hans boðað.
    Hverjum fundi stýrir fundarstjóri. Hann rannsakar í fundarbyrjun hvort löglega hafi verið til fundarins boðað. Atkvæðarétt hafa fullgildir félagsmenn.
    Framboð til formanns eða stjórnarsetu skulu auglýst minnst tveim vikum fyrir aðalfund.

Framboð til formanns eða stjórnarsetu skulu hafa borist viku fyrir aðalfund.

Starfsár félagsins er milli aðalfunda, en reikningsár er almanaksárið.
Þessi mál skulu tekin fyrir á aðalfundi:
• Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
• Reikningsskil
• Lagabreytingar
• Kosning stjórnar
• Kosning fagráðs
• Kosning skoðunarmanna

Allir félagsmenn eiga kost á að bjóða sig fram til formanns og í stjórn.

Þeir, sem áhuga hafa á að bjóða sig fram, eru vinsamlega beðnir um að tilkynna það í pósti til stjornvisi@stjornvisi.is

Að loknum aðalfundarstörfum mun Ingibjörg Stefánsdóttir söng og leikkona sem rekur Yoga Shala í Reykjavík kynna fyrir okkur jakkafatajóga. Jakkafatajóga felur í sér líkamlegar æfingar sem hentugt er að gera í jakkafötum - eða hvers konar fötum öðrum sem við erum í á vinnustaðnum. Markmiðið er að liðka og styrkja líkamann og virkja orkustöðvar hans. Ingibjörg hefur sótt nám sitt til Indlands og Bandaríkjanna og er ötull talsmaður góðrar hreyfingar og heilbrigðis.

Þórunn M. Óðinsdóttir stjórnunarráðgjafi verður með fyrirlestur: ,,Hvers vegna velja æ fleiri fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum að nýta sér Lean til aukins árangurs?

Á kynningunni mun Þórunn M. Óðinsdóttir stjórnunarráðgjafi ræða af hverju stjórnendur æ fleiri fyrirtækja velja hugmynda og/eða aðferðafræði Lean til að bæta þjónustu sína við viðskiptavini og ná um leið auknum fjárhagslegum ávinningi. Til útskýringar verður fjallað stuttlega á mannamáli um Lean og dæmi verða tekin um hvernig fyrirtæki hér á landi eru að nýta sér umbótavinnuna til aukins árangurs.

Þórunn er sjálfstætt starfandi stjórnunarráðgjafi sem hefur unnið með, þjálfað og innleitt Lean hugmynda - og aðferðafræðina innan stærri sem smærri fyrirtækja síðustu fjögur árin. Hún hefur setið í stjórn Lean faghópsins í Stjórnvísi frá stofnun hans árið 2008 og stýrt honum frá 2010. Kynningin hentar öllum sem áhuga hafa á málefninu, bæði byrjendur sem og lengra komna.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn.

Stjórnin.

Sköpunargleði og listin að lifa

Berghildur Erla Bernharðsdóttir fjallar um sköpunargleðina og listina að lifa.

Í fyrirlestrinum er farið í aðferðir til að byggja upp sjálfstraust og velgengni. Fyrirlesturinn byggist á rannsókn á sex vinsælustu sjálfshjálparbókum hér á landi og erlendis þar sem kannað var hvort þær ættu eitthvað sameiginlegt. Í ljós kom að ákveðnir þættir komu alls staðar fyrir og voru rauður þráður í öllum bókunum en þetta voru þættir sem höfundar bentu á sem mikilvæga til að njóta velgengni og eiga hamingjurík líf. Meðal þátta sem höfundur komst að er hvernig hugsanir okkar geta haft áhrif á líf okkar og sköpunargleði.

Í fyrirlestrinum eru sameiginlegu þættir sjálfshjálparbókanna kynntir og líkindi þeirra við hugræna atferlismeðferð (HAM). Sagt er frá aðferðum til að tileinka sér jákvæðara hugarfar og ná betri árangri í lífi og starfi.

Að fyrirlestrinum loknum verður brugðið á leik með léttum æfingum sem örva sköpunargleðina.

Berghildur Erla Bernharðsdóttir er með MA- í blaða og fréttamennsku. Hún hefur starfað á vegum Þekkingarmiðlunar og fyrir Capacent sem fyrirlesari. Síðustu ár hefur hún starfað við almannatengsl og kynningarstörf, hún starfaði um árabil við fréttamennsku og dagskrárgerð. Þá var um ritstjóri Uppeldis á árunum 2001-2005.

Tilgangur og framkvæmd hafta á fjármagnshreyfingar

Faghópur um fjármál fyrirtækja boðar til fundar í Seðlabanka Íslands. Umræðuefnið er: Tilgangur og framkvæmd hafta á fjármagnshreyfingar.
Fyrirlesarar verða þau Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Freyr Hermannsson yfirmaður í fjárstýringu bankans og Ingibjörg Guðbjartsdóttir framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits bankans
Áhugaverður fundur sem allt fjármálafólk og stjórnendur ættu að láta sig varða.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Allir velkomnir,
stjórnin

Kaffi og kleinur. Aðalfundur

Boðað er til aðalfundar ISO hópsins.
Á fundinum eru venjubundin aðalfundastörf á dagskrá en einnig verður starfsemi næsta árs mótuð.
Stjórn ISO hópsins hvetur alla áhugasama til að mæta.
Fundurinn verður haldinn í Blóðbankanum, Snorrabraut 60.

Hver er staða íslenskra fyrirtækja varðandi viðskiptatengslastjórnun (KAM)?

Á þessum áhugaverða fundi munu þær Helga Jóhanna Oddsdóttir og Ólína Laxdal, viðskiptafræðingur og sjálfstætt starfandi ráðgjafi segja frá hvernig þær hafa þróað ráðgjöf í aðferðafræði viðskiptatengslastjórnunar (KAM - Key Account Management).
Upphafið má rekja til rannsóknar á stöðu viðskiptatengslastjórnunar hjá íslenskum fyrirtækjum sem Ólína Laxdal vann í vetur. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að mikil þörf væri fyrir ráðgjöf og þjálfun í markvissri beitingu viðskiptatengslastjórnunar á Íslandi.
Helstu niðurstöður bentu til þess að flest fyrirtæki hafi yfir að ráða CRM kerfum eða séu að innleiða þau hjá sér.
Aðferðafræðin og menning fyrirtækjanna er hins vegar mun skemmra á veg komin en í nágrannlöndum okkar.

Rannsóknir í mannauðsstjórnun

Svala Guðmundsdóttir, aðjúnkt við Viðskiptafræðideild segir frá niðurstöðum doktorsrannsóknar sinnar á menningarlegri aðlögun norræna starfsmanna í Bandaríkjunum. Svala kannaði sambandið milli félags- og menningarlegrar aðlögunar, menningargreindar, starfsánægju og fyrri reynslu. Niðurstöður rannsóknarinnar er meðal annars hægt að nýta við val og þjálfun starfsmanna til starfa erlendis.

Helga Rún Runólfsdóttir, ráðgjafi hjá Intellecta segir frá rannsókn sinni um atvinnuhæfni. Atvinnuhæfni skiptir máli fyrir einstaklinga sem vilja bæta og/eða viðhalda stöðu sinni og hæfni á vinnumarkaði, hvort sem þeir eru í vinnu og eða í leit að vinnu. Atvinnuhæfni snýst um færni, getu og vilja einstaklinga til að nýta hæfileika sína á þann hátt sem er líklegur til að skila árangri miðað við forsendur og þær aðstæður sem þeir búa við. Atvinnuhæfni veltur einnig á því hvaða hæfileika, viðhorf og þekkingu einstaklingur hefur og hvernig hann nýtir þessa þætti og kynnir þá fyrir vinnuveitanda.

Umhverfisvottun bygginga á Íslandi

Helga J. Bjarnadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs EFLU, heldur fyrirlestur sem nefnist:

Hvaða áhrif hefur BREEAM vottunarferlið haft á endurgerð Höfðabakka 9 ?

Farið verður í gegnum vottunarferlið og síðan verður húsnæðið skoðað.

Fundurinn verður haldinn hjá EFLU verkfræðistofu að Höfðabakka 9.

Vísindaferð í Nóa-Siríus og örstuttur aðalfundur Lean faghópsins

Vísindaferð í Nóa-Siríus og örstuttur aðalfundur Lean faghópsins

Þá er komið að síðasta viðburði Lean faghópsins í vetur sem er vísindaferð í Nóa-Siríus. Fyrirtækið hefur nýtt sér hugmynda og aðferðafræði Lean síðustu misserin og hefur náð með þeim verulega góðum árangri. Athyglisvert er að sjá hvernig stjórnendum hefur tekist að innleiða umbótavinnuna í öllu fyrirtækinu, jafnt á sölu og markaðssviðinu, fjármálasviðinu og framleiðslusviðinu og breyta þannig menningu fyrirtækisins. Helstu breytingar verða raktar, farið verður yfir hvað gekk vel, hvað hefði mátt fara betur og síðast en ekki síst sagt frá þeim eftirsóknaverða árangri sem náðst hefur með þessum aðferðum.
Það er Rúnar Ingibjartsson gæðastjóri sem tekur á móti hópnum, kaffiveitingar verða í boði og hver veit nema einnig verði boðið upp á súkkulaði með kaffinu. Allir sem hafa áhuga á því hvernig rótgrónu fyrirtæki hefur tekist að nýta sér umbótavinnuna jafnt í skrifstofuhlutanum og í framleiðslunni eru hvattir til að mæta.

Í upphafi vísindaferðar verður haldinn örstuttur aðalfundur Lean faghópsins (hámark 10 mín) með eftirfarandi dagskrá: 1) Skýrsla formanns, 2) Kynning á stjórn faghópsins 3) Önnur mál.

Eitt laust sæti er í stjórn faghópsins og eru áhugasamir beðnir um að láta Þórunni (sem fer fyrir Lean faghópnum) vita í síðasta lagi 22. maí á netfangið thorunn@intra.is eða í síma 774-4664. Til að fundurinn gangi sem best fyrir sig verður ekki tekið við framboðum á fundinum sjálfum.

Verkefnastjórnun: Rodney Turner - New Trends in Project Management

  1. maí, 2012
    Faghópur um verkefnastjórnun vekur athygi á viðburði í HR á morgun, föstudag

Verkefnastjórnun

Rodney Turner - New Trends in Project Management

Í tengslum við árlega útskrifarráðstefnu MPM-námsins á Íslandi, Vor í íslenskri verkefnastjórnun 2012, gefst áhugasömum að koma á fund með einum þekktasta fræðimanni samtímans á sviði verkefnastjórnunar, prófessor Rodney Turner.
Vinnustofan er í formi fyrirlestra og tilfellagreininga (case-studies).

Prófessor Rodney Turner er aðjúnkt í verkefnastjórnun við Kemmy School of Management, prófessor á sviði verkefnastjórnunar við Lille Graduate School of Management og við Erasmus University í Rotterdam. Rodney, eftir að hafa lokið námi við Oxford University, varði nokkrum árum hjá Imperial Chemical Industries (ICI) þar sem hann sinnti verkfræðilegri hönnun, byggingu og viðhaldi í olíu- og efnaiðnaða. Hann starfaði sem ráðgjafi í verkefnastjórnun hjá Coopers & Lybrand áður hann hélt til starfa hjá Henley Management College árið 1989. Rodney starfar enn sem ráðgjafi á sviði verkefnastjórnunar, hann heldur fyrirlestra víða um heim, og hefur skrifað fjölda bóka og tímaritsgreina um verkefnastjórnun. Rodney er ritstjóri hins virta International Journal of Project Management og hefur verið lykilmaður bresku verkefnastjónarunarfélaginu og Alþjóðasamtökum verkefnastjórnunarfélaga um langa hríð.

Staður: Háskólinn í Reykjavík, Venus 101.
Stund: 25. maí 2012 kl. 10.00-12.00.
Aðgangur er öllum opinn og kostar ekkert að taka þátt.

Gæðamál eru skemmtileg! Vorfagnaður og aðalfundur gæðastjórnunarhóps Stjórnvísi

Gæðamál eru skemmtileg!
Vorfagnaður og aðalfundur gæðastjórnunarhóps Stjórnvísis.
Nú fögnum við hækkandi sól með skemmtilegum vorfundi sem haldinn verður hjá Vífilfelli á Stuðlahálsi 1, fimmtudaginn 24. maí 2012 kl. 16:30 - 18.
Við hefjum fundinn á aðalfundarstörfum og í framhaldi hlustum við á fyrirlestur gæðastjóra og ráðgjafa sem hafa mikla reynslu af gæðastjórnun.
Pétur Helgason gæðastjóri hjá Vífilfelli og Valgerður Ásta Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Rannsóknarþjónustunni Sýni segja okkur á lifandi og skemmtilegan hátt frá átaksverkefni í gæðamálum hjá Vífilfelli, hvernig þau hafa gert gæðastarfið skemmtilegt og áhugavert og þannig vakið áhuga og samstöðu í fyrirtækinu.
Hvetjum alla til að mæta, sýna sig og sjá aðra, þiggja léttar veitingar og hlusta á áhugaverðan fyrirlestur.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?