Prufuviðburður til að prófa póstsendingar
Prufa
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur |
|
27
|
28
|
29 |
30
|
31
|
01
|
02
|
| 03 |
04
|
05
|
06
|
07
|
08
|
09
|
|
10
|
11
|
12 | 13 |
14
|
15
|
16
|
|
17
|
18 | 19 |
20
|
21
|
22
|
23
|
|
24
|
25 | 26 | 27 |
28
|
29
|
30
|
Prufa
Fyrsti viðburður næsta vetrar verður haldinn miðvikudaginn 29. ágúst í Landsbankanum að Thorvaldssenstræti (gamla Landsímahúsinu). Erindi hefjast 8:45 en léttur morgunmatur er í boði frá kl. 8:30.
Fjallað verður um nýsköpun í fjármálum og bankastarfsemi s.s. netbókhald, greiðslumiðlun, netbankar og fleira. En mikil og hröð framþróun er á þessum markaði með aukinn tækni.
Dagskrá:
8: 30: Léttur morgunverður og spjall
8:45-10:
Halldór Valgeirsson, sérfræðingur frá Capacent: Frá gögnum til góðra ákvarðana
Anton Karl Jakobsson, kortasérfræðingur Landsbankans: Straumar og stefnur í kortum og greiðslumiðlun
Þórður Heiðar Þórarinsson fjármálastjóri og eigandi Handpoint: Tekið á móti kortagreiðslum á spjaldtölvum og snjallsímum
Hermann Þ. Snorrason, viðskiptalausnir Landsbankanum: Aðgengi að gögnum þýðir aðgengi að tækifærum
10-:10:30: Spurningar og spjall.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Kynning á haustdagskrá Stjórnvísi í Nauthól 3.september kl.15:30-17:10
Stjórn Stjórnvísi og stjórnir allra faghópa Stjórnvísi munu kynna hvað er framundan hjá þeim í vetur. Einnig mun fara fram stutt kynning á uppfærðri heimasíðu félagsins. Fundurinn er öllum opinn og félagar hvattir til að koma og kynna sér spennandi dagskrá vetrarins.
Dagskrá:
kl.15:30 Jón G. Hauksson, formaður stjórnar Stjórnvísi
kl.15:35 isProject kynnir uppfærða heimasíðu félagsins
kl.15:40 CAF/EFQM Sjálfsmatslíkan
kl.15:45 Fjármál fyrirtækja
kl.15:50 Gæðastjórnun
kl.15:55 Heilbrigðissvið
kl.16:00 ISO-hópur
kl.16:05 Lean-Straumlínustjórnun
kl.16:10 Mannauðsstjórnun
kaffihlé
kl.16:20 Markþjálfun
kl.16:25 Nýsköpun
kl.16:30 Samfélagsábyrgð fyrirtækja
kl.16:35 Sköpunargleði
kl.16:40 Stefnumótun og Balanced Scorecard
kl.16:45 Umhverfi-og öryggi
kl.16:50 Upplýsingaöryggi
kl.16:55Verkefnastjórnun
kl.17:00Viðskiptagreind
kl.17:05 Þjónustu og markaðsstjórnun
WOW air - markaðsherferð sem gekk upp!
Fundurinn verður haldinn í Ofanleiti 2, 2.hæð.
Faghópur um samfélagsábyrgð hefur verið stofnaður hjá Stjórnvísi. Markmið með starfi hópsins er að miðla þekkingu og reynslu á sviði samfélagsábyrgðar fyrirtækja. Einnig að kynna stefnumótun á þessu sviði, helstu verkfæri sem eru notuð, rannsóknir ofl. Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í Íslandsbanka, 13. september kl. 8.30 til 10.00. Á fundinum verður fjallað um skýrslugerð. Annarsvegar mun Guðný Helga Herbertsdóttir fjalla um skýrslu Íslandsbanka um Global Compact og hinsvegar mun Finnur Sveinsson fjalla um GRI skýrslu Landsbankans.Í stjórn faghópsins sitja Regína Ásvaldsdóttir framkvæmdastjóri Festu, Ketill Berg Magnússon viðskiptasiðfræðingur, Finnur Sveinsson sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum, Guðný Helga Herbertsdóttir upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og Magnús Þór Gylfason forstöðumaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.
Grunnatriði Lean
Fyrsti viðburður Lean faghópsins í vetur verður hin árlega kynning á grunnatriðum Lean (straumlínustjórnun/umbótavinnu). Fjallað verður á mannamáli um hvað umbótavinna er, hvort satt sé að fyrirtæki geti náð eins miklum árangri með þessum aðferðum og sögur ganga af og fléttað verður inn nokkrum dæmum um hvernig fyrirtæki hérlendis eru að nýta sér umbótavinnuna.
Allir sem eru að velta fyrir sér hvað umbótavinna er eða eru aðeins byrjaðir að skoða þessar aðferðir eru sérstaklega hvattir til að koma. Aðrir sem eru lengra komnir í fræðunum eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir líka.
Boðið verður upp á kaffi og súkkulaði
Fyrirlesari: Þórunn M. Óðinsdóttir, stjórnunarráðgjafi
Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7, kl. 12.00-13.00
Nýsköpunarhádegi Klaks byrja þriðjudaginn 18. september næstkomandi. Tuttugu sex Nýsköpunarhádegi voru haldin síðasta vetur þar sem 60 frummælendur mættu og töluðu um framtíð Íslands.
Nýsköpunarhádegi Klaks er frábært tækifæri til þess að sækja sér þekkingu, taka þátt í umræðum og skemmta sér konunglega.
Nýsköpunarhádegi Klaks er í samstarfi við Nýsköpunarhóp Stjórnvísi, Landsbankann, Samtök iðnaðarins og fleiri aðila.
Þema 18. september: Nýsköpunarhagkerfið - hvað er nú það?
Frummælendur verða kanónur úr íslensku atvinnulífi.
Fundarstjóri: Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks
Allir velkomnir... kaffi og meðlæti
Ráðstefna á vegum Stjórnvísi, RB og MBA náms Háskóla Íslands
Á ráðstefnunni, sem verður haldin þriðjudaginn 18. september í Hörpu frá kl 13:00 til 16:30 verður fjallað um framþróun fjármálamarkaðar með sérstaka áherslu á hagræðingartækifæri, tækniþróun og samkeppnisumhverfið.
Jafnframt verður farið yfir hvað er að gerast í samnýtingu upplýsingaþjónustu í Danmörku
Fyrirlesarar verða:
David Furlonger, Vice president and Gartner Fellow
Gylfi Magnússon, Dósent við HÍ og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra
Páll Gunnar Pálsson, Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Morgens Steffensen, Framkvæmdarstjóri viðskiptatengsla, samskipta og mannauðsmála hjá JN Data
Ráðstefnustjóri er Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsar verslunar og stjórnarformaður Stjórnvísi
Verð á ráðstefnuna er kr 14.800
Þú getur skráð þig á ráðstefnuna hér
Sköpunargleði er grundvöllur nýsköpunar og nýsköpun er oft á tíðum grundvöllur samkeppnisforskots. Ýmsar leiðir er hægt að fara til að ýta undir þetta og hafa rannsóknir gefið til kynna að til dæmis starfsumhverfið hefur áhrif á sköpunargleði fólks.
Fyrsti haustfundur faghópsins um Sköpunargleði verður haldinn hjá TM Software. Þau hafa boðið okkur í heimsókn þann 19. september klukkan 8:15 þar sem þau munu segja frá þeim breytingum sem gerðar hafa verið á starfsumhverfi þeirra til þess að ýta undir sköpun, má þar nefna ofurhetjur, ýmsa liti og leikherbergi :)
Klukkan 8:15 er boðið upp á léttan morgunverð og svo hefst kynningin klukkan 8:30 og lýkur 9:45.
Nýsköpunarhádegi Klaks þriðjudaginn 25. september kl. 12:00
Fyrsta Nýsköpunarhádegi Klaks var haldið 18. september sl. og var húsfyllir. Steinþór bankastjóri Landsbankans og Svana Helen formaður SI opnuðu umræður um Nýsköpunarhagkerfið. Niðurstaðan var að lykillinn er verðmætasköpun og að nýsköpun er "tæki" sem öll fyrirtæki þurfa að nota. Það þarf hugarfarsbreytingu á Íslandi til þess að skapa aukin verðmæti og einblína ekki á náttúruauðlindir heldur nýta okkur þekkingu og tækni nýsköpunarhagkerfisins.
Þriðjudaginn 25. september snýst umræðan um tækifæri í jarðvarma. Við fáum helstu sérfræðinga landsins til þess að hita upp fyrir skemmtilegar umræður.
Þema: Jarðvarmi - er hann "hot" or "not"?
Frummælendur eru lykilaðilar úr jarðvarmageiranum:
Fundarstjóri: Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks
Nýsköpunarhádegi Klaks er samstarfsverkefni Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, RUV, Viðskiptablaðsins, Stjórnvísi og Samtaka iðnaðarins.
Fundurinn er öllum opinn. Boðið er upp á kaffi og meðlæti. Athugið að fundurinn er tekinn upp af RUV og ljósmyndari Viðskiptablaðsins verður á staðnum (svo mætið í spariskónum).
Ýmir Vigfússon deilir með okkur reynslu sinni og þekkingu á tölvuinnbrotum.
Hann hefur kennt fræðin í háskólanum í Reykjavík undanfarin misseri og segir okkur frá hakkarakeppni sem hefur verið haldin á vegum háskólans. Tilgangurinn er að auka meðvitund um mikilvægi tölvuöryggis. Atriði sem að öll fyrirtæki og stofnanir þurfa að vera meðvituð um!
Fyrirlesturinn er í stofu: V102
Vilmar Pétursson hjá Capacent kynnir frammistöðumatskerfi sem er sérsniðið að þörfum fyrirtækja og hefur verið að taka við af hinum hefðbundnu starfsmannasamtölum.
Harpa Víðisdóttir mannauðsstjóri segir frá innleiðingarferlinu hjá trygginingafélaginu Verði og hvaða lærdóm má draga af ferlinu.
Stefnumörkun fyrir Ísland 2020: Stefnumótun og áætlanagerð ráðuneyta
ATH. NÝR FUNDARTÍMI OG STAÐUR:
Fimmtudag kl. 8:30 á Skúlagötu 4
Ríkisstjórnin setti sér það verkefni í samstarfsyfirlýsingu árið 2009 að vinna að 20/20 Sóknaráætlun fyrir Ísland. Niðurstöður úr greiningarvinnu og gagnasöfnun 20/20 Sóknaráætlunar urðu í framhaldi grunnurinn að stefnumarkandi framtíðarsýninni, Ísland 2020.
Eitt af verkefnum Íslands 2020 er að einfalda, fækka og samþætta helstu stefnur og áætlanir sem ráðuneyti og stofnanir hafa sett fram á síðastliðnum árum. Grundvöllur þeirrar vinnu var greining á 11 stefnum og áætlunum með það að leiðarljósi að vinna heildstæðar tillögur að breyttu skipulagi fyrir stefnumótun og áætlanagerð innan stjórnsýslunnar.
Í fyrirlestrinum verður farið yfir stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan breytts Stjórnarráðs. Gerð verður grein fyrir framgangi samhæfingar þeirra, tengslum við fjárlagagerð og farmtíðarsýn.
Sjá nánar >>> http://skemman.is/stream/get/1946/12294/30683/1/a.2012.8.1.7.pdf
Fyrirlesari er Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarfræðingur, forsætisráðuneytinu.
Skúlagata 4, 1. hæð
Fimmtudaginn 27. september 2012
8:30 - 10:00
Nýsköpunarhádegi Klaks er vettvangur fyrir samræður um framtíð Íslands, nýsköpun, atvinnusköpun og verðmætasköpun. Hádegið er samstarfsverkefni Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Landsbankans, RUV, Viðskiptablaðsins, Stjórnvísi og Samtaka iðnaðarins.
Þema 2. október: Áhugaverðir sprotar - af hverju eru sprotar áhugaverðir?
Frummælendur:
Fundarstjóri: Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks
Allir eru velkomnir til þess að taka þátt í samræðunum. Kaffi og kex í boði hússins. Fundurinn er tekinn upp.
Staður: Stofa 201, 2. hæð - Ofanleiti 2
Sturla Jóhann Hreinsson starfsmannastjóri Landsvirkjunar kynnir fyrir Stjórnvísifélögum hvernig straumlínustjórnun hefur nýst til umbóta á sviðinu. Farið verður yfir það hver hvatinn var fyrir verkefninu, hvernig öðlast á betri yfirsýn varðandi núverandi ferli á starfsmannasviði og mögulegar úrbætur á viðkomandi ferlum. Einnig verður fjallað um framtíðarsýn varðandi helstu lykilferla starfsmannamála, byggt á gildum og stefnu Landsvirkjunar.