Stjórnarfundur viðskiptaferla (BPM) – Upphaf starfsársins (lokaður viðburður)

Stjórn mun hittast að þessu sinni á Mathúsi Garðabæjar til að hefja undirbúning starfsársins sem framundan er. Á dagskrá fundarins verður markviss og skapandi umræða um þær áskoranir og tækifæri sem bíða, með sérstaka áherslu á viðskiptaferla og stefnumiðaða sýn í starfi stjórnar.

Helstu umræðuefni fundarins verða:

  • Yfirlit og rýni á starfsárið sem framundan er

  • Umræða um helstu áskoranir og tækifæri í ljósi viðskiptaferla

  • Hugmyndavinna og skipulagning viðburða á vegum stjórnar

  • Endurmat og staðfesting á tilgangi hópsins

Fundurinn verður vettvangur fyrir samráð, samstillingu og sköpun, þar sem stjórnarmenn sameinast um skýra sýn og markmið fyrir komandi ár.

Húsið opnar 08:30 heitt kaffi og bakkelsi: Störtum með sprengikrafti í Lava Show - Kick off fundur Stjórnvísi - Excelskjal til útfyllingar:

Kæru stjórnendur í faghópum Stjórnvísi.
Smellið hér til að fylla út í skjal á vefnum drög að dagskrá. (sýnishorn fylgir með)

Við ætlum að starta árinu af krafti í Lava Show föstudaginn 29.ágúst, húsið opnar kl.08:30 og dagskrá hefst kl.09:00. Að loknum fundi er öllum þeim sem áhuga hafa boðið á sýninguna kl.10:00 eitthvað sem enginn ætti að missa af.  Þema starfsársins er "Framsýn forysta". 

Tilgangur fundarins er að starta nýju starfsári af krafti. Farið verður yfir ýmis atriði sem létta stjórnendum faghópa starfið í vetur, búinn verður til vettvangur fyrir faghópana til að sameinast um viðburði, rýnt verður í helstu áskoranir faghópastarfsins en umfram allt fá innblástur til þess að gera komandi starfsár enn öflugra en þau síðustu. Einnig hlýðum við á einstaklega áhugavert erindi hjá Röggu stofnanda Lava Show. 

Stjórnir faghópa eru hvattar til að hittast í ágúst, borða saman hádegisverð í boði félagsins og huga að dagskrá starfsársins.  Einnig er í ágúst oft best að bóka fyrirlesara.  Stjórn vekur athygli á að stjórnum faghópa gefst tækifæri a.m.k. tvisvar á starfsárinu að hittast í hádegisverði hvar sem er í boði félagsins, hægt er að setja í reikning á Nauthól, Vox og á Kringlukránni.  Mikilvægt er að kvitta undir reikninginn og skrifa nafn faghópsins. Ef aðrir staðir verða fyrir valinu er afrit af reikningi sent á Stjórnvísi og reikningurinn greiddur samdægurs.

Stefnt er að því að senda út drög að dagskrá haustsins til félaga mánudaginn 1.september.

 

Lava Show er líklegasta heimsins skemmtilegasti jarðfræðitími.  

Lava Show er eina sýningin í heimi þar sem bráðið hraun flæðir innandyra á öruggan hátt. Á sýningum Lava Show eru eldgos endursköpuð með því að hita hraun upp í 1.100°C. Glóandi hraunið er látið flæða í sýningarsali þar sem áhorfendur upplifa fegurð og hita hraunsins. Þetta er ótrúleg upplifun sem hrífur öll skynfæri! 

  • Sameinar fræðslu í jarðfræði og gullfallegt sjónarspil 
  • Fjölskyldufyrirtæki sem nýtir græna orku til að bræða hraun.
  • Við höfðum til fólks á öllum aldri sem er fróðleiksfúst og vill upplifa eitthvað nýtt og spennandi
  • Sýningarsalir í Vík og í Reykjavík  

Margverðlaun sýning 

  • Nýsköpunuarverðlaun ferðaþjónustunnar 2021
  • 2025 Experience Awards 
  • Tripadvisor Best of the Best 2024 

 

Með kærri kveðju,

Stjórn Stjórnvísi

Framsýn forysta: Brjótum blað í færni til framtíðar

Join the meeting now

Stjórnvísi og FranklinCovey boða til vinnustofu þar þar sem framtíð vinnustaða og vinnumenningar verður í brennidepli – með áherslu á mannleg gildi á tímum örra tæknibreytinga, gervigreindar og umróts á alþjóðasviðinu.

Hvernig geta vinnustaðar brugðist við breyttum kröfum framtíðarinnar og tryggt að starfsfólkið rækti þá færniþætti sem skipta sköpum?

Vinnustofan verður á Teams fimmtudaginn 4. september frá kl.08:30 -10:00.

Fundarstjóri er Sigurður Ólafsson framkvæmdastjóri Gott og gilt og stjórnarmaður í faghópi um mannauðsstjórnun.

 

Praktísk atriði fyrir stjórnir faghópa Stjórnvísi. (ætlaður öllu stjórnarfólki í stjórnum faghópa)

Join the meeting now

Á þessum skemmtilega, stutta og áhugaverða Teamsfundi ætlum við að fara yfir praktísk atriði fyrir stjórnendur faghópa Stjórnvísi.  Megin markmiðið er að samræma vinnubrögð allra stjórna faghópa Stjórnvísi og efla  fyrir næsta starfsár.   

Sýnt verður hvernig stofna á viðburði, setja inn fundi á Facebook, Teams, hvernig senda á út fréttir, mælaborð o.fl. 

Allir nýir í stjórnum faghópa eru hvattir til að mæta á fundinn. 

Dagskrá: 
1. Ingibjörg Loftsdóttir varaformaður stjórnar Stjórnvísi setur fundinn og fer yfir praktísk atriði sem gott er að hafa í huga fyrir stjórnir faghópa.  Einnig hvernig virkja megi alla í stjórn til þátttöku.

2. Lilja Gunnarsdóttir í stjórn Stjórnvísi sýnir hvernig stofna á viðburð, setja inn Teams link og upptöku inn á Facebook ásamt því að senda á Stjórnvísi.  

3. Gunnhildur Arnaradóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi fer yfir mælaborð o.fl. áhugavert. 

 

Test

https://teams.microsoft.com/l/meetup-join/19%3ameeting_YjUzMWJhZGYtN2ZhMC00NzJkLWE5NTgtYWJjOTk0YTUzZDhi%40thread.v2/0?context=%7b%22Tid%22%3a%223db825e4-4612-4be8-a05f-3a00b6184832%22%2c%22Oid%22%3a%22c25d71fb-2447-4c4e-b409-006ca4d4818e%22%7d

Fyrirtæki sem eru að gera góða hluti í heilsueflingu starfsfólks

Slóð á fjarfund finnst með því að smella hér.

Á þessum fyrsta viðburði vetrarins á vegum faghóps um heilsueflandi vinnuumhverfi fáum við heimsókn frá fyrirtækinu Skólamat. 

Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á ferskum og hollum mat fyrir börn í leik- og grunnskólum og var stofnað í janúar 2007. Hjá Skólamat starfa um 220 starfsmenn á um 100 starfsstöðvum á suðvesturhorni landsins. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í fimm ár eða lengur hjá fyrirtækinu. Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Áhersla er lögð á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Fanný Axelsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs-og markaðssviðs og Margrét Sæmundsdóttr mannauðsstjóri ætla að segja okkur nánar frá heilseflingu starfsfólks hjá Skólamat.

Auk þess að heyra frá Fanný þá ætlar Valgeir Ólason sem er í stjórn faghópsins um heilsueflandi vinnuumhverfi að fara yfir drög að dagskrá vetrarins en faghópurinn er þessa dagana að fínpússa marga spennandi viðburði og hlakkar til starfsins í vetur. 

Fundarstjóri verður Valgeir Ólason.

 

 

Hvaða áhrif hefur NIS2 á íslensk fyrirtæki og stofnanir?

NIS2 er Evróputilskipun um net- og upplýsingaöryggi (Network and Information Systems Directive) sem tók gildi í Evrópu í október 2024 og kemur til með að vera innleidd í íslensk lög.  Tilskipunin mun ná yfir fleiri fyrirtæki á Íslandi en fyrri tilskipun og ábyrgð stjórnenda á netöryggi verður gerð skýrari.

Nanitor mun bjóða til morgunverðarfundar þar sem fjallað verður um tilskipunina og áhrif hennar á stjórnir og stjórnendur fyrirtækja.

Dagskrá viðburðarins:

  • Hildur Sif Haraldsdóttir, yfirlögfræðingur Advania flytur erindi um áhrif NIS2 á íslensk fyrirtæki
  • Heimir Fannar Gunnlaugsson forstjóri Nanitor: Frá óvissu til yfirsýnar á 24 klst með Nanito

Viðburðurinn er haldinn í móttökurými á 2. hæð í Grósku hugmyndahúsi, Bjargargötu 1. Húsið opnar klukkan 8.30.

Hvað er upplýsingaöryggi og hvers vegna þurfum við að vernda upplýsingar?

 

Af hverju er mikilvægt að vernda upplýsingar? Hvað felst í upplýsingaöryggi og hvaða áhrif hefur það á daglegt starf? Hvernig hjálpa staðlar eins og ISO 27001 og reglugerðir á borð við NIS2 og DORA til að draga úr áhættu og tryggja öryggi í stafrænum heimi?

Fyrsta kynning faghóps Stjórnvísi um stjórnun upplýsingaöryggis skoðar grunnspurninguna "Hvað er upplýsingaöryggi og hvers vegna þurfum við að vernda upplýsingar?" Til að svara þessu fáum við Benedikt Rúnarsson, Öryggisstjóra Wise. Benedikt býr yfir mikilli reynslu af stjórnun upplýsingaöryggis sem verður áhugavert fyrir öll að heyra nánar um. 

"Framsýn forysta" Haustráðstefna Stjórnvísi 25.september 2025

Nú er um að gera að bóka sig á Haustráðstefnu Stjórnvísi sem ber yfirskriftina "Framsýn forysta" sem er þema félagsins starfsárið 2025-2026.

Boðið verður upp á meiriháttar flott morgunverðarhlaðborð að hætti Grand Hótel.  Aðgangur er frír og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 
Smelltu hér til að horfa á ráðstefnuna í beinu streymi. Ráðstefnunni er einnig streymt á visir.is og vb.is 

08:30    Húsið opnar: Létt morgunhressing

09:00    Setning ráðstefnu: Anna Kristín Kristinsdóttir Engineering Manager Lead, JBT Marel og formaður stjórnar Stjórnvísi

09:05    Ráðstefnustjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóri 

09:10    Arinspjall:  Forseti Íslands Frú Halla Tómasdóttir verður gestur í arinspjalli hjá Þórönnu Jónsdóttur framkvæmdastjóra og stjórnendaráðgjafa.               

09:35    Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ

09:55    Stutt hlé: Tengslamyndun og spjall

10:10    Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq Minerals

10:30    Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets. 

10:50    Samantekt flytur Ingibjörg Loftsdóttir framkvæmdastjóri ráðgjafastofunnar Svalar og varaformaður Stjórnvísi.

11:00    Ráðstefnuslit

Stjórnarfundur Stjórnvísi - (lokaður fundur)

Stjórnarfundir Stjórnvísi eru haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl.11:00-12:00. Í stjórn félagsins eru 9 aðilar og eru fundir til skiptis á Teams og á vinnustöðum stjórnarfólks. Þema starfsársins er „FRAMSÝN FORYSTA“. Á fyrsta vinnufundi stjórnar sem haldinn var í júní 2025 gerði stjórn með sér samskiptasáttmála þar sem m.a. var rætt um að:

  1. Mæta undirbúin á stjórnarfundi 2. Mæta tímalega 3. Taka ábyrgð á verkefnum 4. Hafa uppbyggilega gagnrýni 5. Samskipti séu opin og eðlileg 6. Vera á staðnum 7. Allt stjórnarfólk sé virkt í starfi stjórnar 8. Stjórn ákveði sameiginlega hvar og hvernig samskipti eiga sér stað; tölvupóstur sé hinn formlegi vettvangur utan funda, en að fundir og spjall eigi sér stað á Microsoft Teams.

Stjórn er komin með drög að áhersluverkefnum starfsársins 2025-2026 sem eru fjögur. Þau verða útfærð nánar og sett á þau mælikvarða til að fylgjast með framvindu:

  1. Faghópar
    • Undirverkefni
    • Ábyrgðaraðilar
  2. Heimasíða
    • Undirverkefni
    • Ábyrgðaraðilar
  3. Myndbönd
    • Undirverkefni
    • Ábyrgðaraðilar
  4. Sóknarfæri
    • Undirverkefni
    • Ábyrgðaraðilar

 

Unnið verður í þessum áhersluverkefnum og fundað um þau sérstaklega milli fastra stjórnarfunda. Öll áhersluverkefni vísa til meginmarkmiða Stjórnvísi, eiga sér undirverkefni og mælikvarða. (sjá neðar í texta). Formaður og/eða framkvæmdastjóri félagsins stýrir stjórnarfundum þar sem áhersluverkefni stjórnar eru rædd ásamt öðrum verkefnum. Stjórn hefur aðgengi að sameiginlegu svæði í skýinu. Fundargerðir stjórnar eru öllum opnar hér.

 

Á aðalfundi haldinn 7. maí 2025 voru kosin í stjórn félagsins:

Stjórn Stjórnvísi 2025-2026.
Anna Kristín Kristinsdóttir, Engineering Manager Lead, JBT Marel, formaður (2025-2026)
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar kosin í stjórn (2022-2026)
Héðinn Jónsson, Chief Product Officer hjá Helix health. (2025-2027)
Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2026)
Lilja Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi markþjálfi og teymisþjálfi kosin í stjórn (2022-2026)
Matthías Ásgeirsson, Bláa Lónið, stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun kosinn í stjórn (2024-2026)
Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2026)
Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON (2025-2027)
Viktor Freyr Hjörleifsson, mannauðssérfræðingur hjá Vegagerðinni. (2025-2027)

Kosin voru í fagráð félagsins.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Margrét Tryggvadóttir, skemmtanastjóri NOVA (2024-2026)
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri Norðuráls (2024-2026)
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO (2024-2026)

Kosnir voru tveir skoðunarmenn til 2ja ára á síðasta aðalfundi:

Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)

Eftirfarandi eru fyrstu tillögur/drög að mælikvörðum stjórnar 2025-2026

 

Mælikvarðar fyrir áhersluverkefni stjórnar 2025-2026

oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is

ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna

  1. Faghópar
      • Aukning á virkni faghópa oo
      • Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
      • Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
      • Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. ooo

 

  1. Myndbönd
    1. Talning á fjölda félaga sem horfa á myndbönd á innri vef Stjórnvísi (verði sett inn í mælaborð)
    2. Fjöldi myndbanda sem er settur inn á (verði sett inn í mælaborð)
    3. Áhorf á Facebook

 

  1. Sóknarfæri
  1. Fjölgun fyrirtækja oo
        1. Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
        2. Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
  1. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
  2. Fjölgun virkra félaga oo
  3. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
  4. Fjölgun viðburða oo
  5. Fjölgun félaga á fundum oo
  6. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
  7. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
  8. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
  9. Fjölgun nýrra háskólanema oo
  10. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
  11. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo

Hvernig vinna LEAN og HSE saman?

Í framleiðslu JBT Marel er töluvert unnið með LEAN fræði í framleiðslunni. Lilja Birgisdóttir (HSE/ÖHU Manager) hjá JBT Marel mun fræða okkur um hvernig HSE (ÖHU) og LEAN vinna saman, kosti þess og galla.

Boðið verður upp á morgunhressingu fyrir kynninguna kl. 08:30.  Eftir kynningu verður gestum boðið upp á fræðslu og útsýningshring á svölunum þar sem hægt verður að horfa yfir framleiðsluna.

Kynningin verður tekin upp en við vonumst til að sjá sem flesta á staðnum.

Hér er linkur á kynninguna. Join the meeting now

 

Alþjóðleg stjórnun gervigreindar - Val möguleikar

Streymi á vegum London Futurest.

Að hvaða leyti ættum við að stýra þróun nýrra kynslóða gervigreinda?

Sjá nánar: https://www.meetup.com/london-futurists/events/310438190/

Í þessu streymi verða meðal annars eftirfarandi atriði rædd:

  • Singapore-sáttmálinn
  • Aðgerðaáætlun Bandaríkjanna um gervigreind
  • Umræður á Alþjóðlegu gervigreindarráðstefnunni í Shanghai
  • Nýjar útgáfur af gervigreindarlíkönum
  • Gervigreindarlíkön sem ná nýjum viðmiðum í getu

Framtíðarsetur Íslands í samvinnu við London Futurest.

Fagráðsfundur Stjórnvísi

Fundur stjórnar með fagráði Stjórnvísi verður haldinn mánudaginn 6. október nk. á Vox kl.11:40-12:50.

Vinsamlegast látið vita sem fyrst hvort þessi tími hentar, annars finnum við nýjan tíma sem hentar öllum.

Ég er búin að panta borð og verðum við í endanum á salnum þar sem er gott næði.

Frábært að mæta snemma því þá er engin röð.

 

Fyrirkomulag fundarins verður þannig að formaður Stjórnvísi Anna Kristín Kristinsdóttir heldur örstutta kynningu á starfseminni í vetur og síðan væri aldeilis gott að fá frá hverju og einu ykkar uppbyggilega gagnrýni og hugmyndir t.d. varðandi Íslensku ánægjuvogina, Stjórnunarverðlaunin, Sjálfbærniásinn og afhendingu viðurkenninga til fyrirmyndarfyrirtækja í góðum stjórnarháttum.

Meginmarkmiðið með fundinum er að fá frá ykkur fagleg ráð varðandi hvað má gera betur og hvað er vel gert.

Þess má geta að virkir faghópar Stjórnvísi eru í dag 20 og starfa í stjórnum þessara faghópa yfir 150 manns.

Meðfylgjandi er fundargerð frá starfsdegi stjórnar sem haldinn var 3.júní og 13.júní sl.

Á þessum fundum voru valin áhersluverkefni stjórnar fyrir veturinn 2025-2026.

Í fundargerð má sjá dagskrá komandi starfsárs og stóru viðburðina: Íslensku ánægjuvogina, Haustráðstefnu, Stjónunarverðlaunin og Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

 

Læt fylgja áhugaverða linka á heimasíðu félagsins www.stjornvisi.is

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/hlutverk-stjornvisi

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/stjornir-faghopa/verklagsreglur-faghopa

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/stjornir-faghopa/sidareglur

https://www.stjornvisi.is/is/jafnrettisstefna-stjornvisi-og-vidbragdsaaetlun-gegn-einelti-areitni-og-ofbeldi

 

Fagráð Stjórnvísi 2025-2026

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Margrét Tryggvadóttir, skemmtanastjóri NOVA (2024-2026)
Sigríður Harðardóttir, mannauðsstjóri Norðuráls (2024-2026)
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO (2024-2026)

 

Anna Kristín Kristinsdóttir, formaður stjórnar Stjórnvísi verður fulltrúi stjórnar á þessum fundi.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi

 

 

 

Fundargerð frá starfsdegi stjórnar

Staðsetning: Alvotech

3.júní 2025 kl. 11:00 – 13:45

og á Teams

13.júní 2025 kl.10:00-11:00 á Teams

 

Þátttakendur 3.júní 2025:

Anna Kristín Kristinsdóttir, Auður Daníelsdóttir, Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Matthías Ásgeirsson, Snorri Páll Sigurðsson, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.

 

Þátttakendur 13.júní 2025:

Anna Kristín Kristinsdóttir, Auður Daníelsdóttir, Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Snorri Páll Sigurðsson, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.

 

Anna Kristín Kristinsdóttir <anna.kristinsdottir@marel.com>; matthias.asgeirsson@bluelagoon.is; Gunnhildur Arnardóttir <gunnhildur@stjornvisi.is>; iloftsdottir@gmail.com; liljagu@gmail.com; audur@orkan.is; snorri.sigurdsson@alvotech.com; tinnaj@on.is; hedinnj@gmail.com; Viktor.f.hjorleifsson@vegagerdin.is

 

 

 

  1. Yfirferð á framtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum. Anna Kristín fór yfir framtíðarsýn, stefnu, gildi, meginmarkmið lög og siðareglur.
  • Mikilvægt er að skerpa með reglubundnum hætti á hlutverki og stefnu Stjórnvísi til að tryggja að talandinn inngildi alla þá hópa samfélagsins sem félagið á erindi við; sú vinna fari fram á fyrsta fundi stjórnar í haust.
    · Búið er að yfirfara lög félagsins og siðareglur í takti við ofangreint. Lög félagsins voru síðast uppfærð á aðalfundi 7.maí 2025 og eru aðgengileg á vefsíðu félagsins ásamt siðareglum sem eru yfirfarnar árlega.
  1. Uppfæra hönnun, letur, liti og kynningargardínur (banner-ups) Stjórnvísi; Verkefnið er í vinnslu hjá Rakel Guðnadóttur hönnuði · Fara verður í kjölfarið í endurnýjað markaðsátak þar sem faghóparnir verða í aðalhlutverki. Í framhaldi kynntu stjórnarmenn sig með því að segja örstutt frá sér. Einnig urðu umræður um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum og á Teams.
  2. Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur á áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg stjórnarfólki í Sharepoint. Stjórn var hvött af framkvæmdastjóra félagsins til að fara inn á Sharepoint reglulega.
  3. Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“.
  4. Þema ársins 2025-2026 ákveðið og útfærsla. Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „Framsýn forysta“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust.
  5. Varaformaður Stjórnvísi og ritari verða kosin á fyrsta stjórnarfundi í haust.
  6. Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.

 

    • Ágúst Marel
    • September Grand Hótel (í beinu framhaldi af haustráðstefnu)
    • Október ON
    • Nóvember Teams
    • Desember Kvöldfundur – staðsetning ákveðin síðar
    • Janúar Teams
    • Febrúar Vegagerðin
    • Mars Teams
    • Apríl Orkan
    • Maí Teams

 

 

  1. Kynning á reglubundnum verkefnum stjórnar

 

Tímasetning var ákveðin á helstu viðburðum Stjórnvísi og þeir settir inn á dagatal félagsins.

Ágúst 2025: Fyrirmyndarfyrirtæki ársins viðurkenningarathöfn (Nauthóll 22.ágúst hádegisverður – lokaður viðburður)
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Gunnar Borgþórsson, Viðskiptaráð Íslands, Kauphöllin og SA.

Ágúst fimmtudagurinn 29.ágúst 2025: Kick off fundur
Hvar
:Lava Show
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur, stjórn Stjórnvísi.

September 2025
Þann 2. september verður haustdagskrá Stjórnvísi send út á alla aðila
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur

September 2025
Haustráðstefna Stjórnvísi – 25. september 2025 staðfest kl.09:00-11:00. Grand Hótel Háteig Framsýn forysta
Ábyrgðaraðilar:
Gunnhildur, stjórn
Búið að staðfesta streymi og sal.

Fundarstjóri verður: Egill Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóri . Búið er að staðfesta Willum Þór Þórsson forseta ÍSÍ með erindi og hafa samband við fleiri aðila.

 

Október 2025
Fundur með fagráði verður 7.október á VOX.
Ábyrgðaraðilar:
Gunnhildur og Anna Kristín


Janúar 2026
11. janúar. Nýársfagnaður

Ábyrgðaraðili: Gunnhildur og Anna Kristín.

Hvar: Marel

Janúar 2026
Íslenska ánægjuvogin 2025 afhent 22 janúar 2026 kl.15:00 – 18:00
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur og Prósent.
Hvar: Grand Hótel, Háteigi.
Búið að staðfesta streymi og sal.


Febrúar mánudagur 9.febrúar 2026
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 Grand Hótel kl.16:00
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur, Anna Kristín
Tímabil: Haldin 9.febrúar 2026
Búið að staðfesta streymi og sal.
Þema: Framsýn forysta

 

Apríl/maí 2026
Aðalfundir faghópa
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur

Maí 2026
Aðalfundur Stjórnvísi verður haldinn 6.maí
Ábyrgðaraðili:
Gunnhildur

Maí 2026
Stjórnarskiptafundur: haldinn 6.maí
Ábyrgðaraðili:
Gunnhildur

Ágúst 2026
Fyrirmyndarfyrirtæki 2026.
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Gunnar

 

  1. Áhersluverkefni starfsársins verða fjögur: (sjá mælikvarða neðar í fundargerð).

Anna kynnti áhersluverkefni síðustu ára. Í framhaldi ákvað nýkjörin stjórn Stjórnvísi áhersluverkefni komandi starfsárs. Á fyrsta fundi í haust verða fundnir mælikvarðar á þessi fjögur áhersluverkefni og undirverkefni hvers og eins.

2025-2026 (fjögur áhersluverkefni – í hverju felast þau)

  • Faghópar
  • Heimasíða
  • Myndbönd
  • Sóknarfæri

 

2025-2026 – mælikvarðar (tillaga)

oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is

ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna

2025-2026

  • Faghópar
      • Aukning á virkni faghópa oo
      • Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
      • Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
      • Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
      • Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. ooo

 

  • Myndbönd af fundum aðgengileg á innri vef Stjórnvísi
    • Talning á fjölda félaga sem horfa á myndbönd (verði sett inn í mælaborð)
    • Fjöldi funda sem er settur inn á LearnCove (verði sett inn í mælaborð)
    • Áhorf á fundi inn á LearnCove (verði sett inn í mælaborð)

 

  • Heimasíða
    • Endurhanna heimasíðuna með t.t. einfaldlega
    • Heimsóknir á heimasíðu oo
    • Innskráning af heimasíðu oo

 

 

  • Ásýnd, efling og vöxtur
  1. Fjölgun fyrirtækja oo
        1. Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
        2. Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
  1. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
  2. Fjölgun virkra félaga oo
  3. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
  4. Fjölgun viðburða oo
  5. Fjölgun félaga á fundum oo
  6. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
  7. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
  8. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
  9. Fjölgun nýrra háskólanema oo
  10. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
  11. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
  12. Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
  13. Stjórnvísi þróist í takt við við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins ooo
  14. Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
  15. Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika, sé styðjandi og virkur ooo
  16. Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
  17. Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
  18. Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
  19. Fjölgun erlendra fyrirlesara
  20. Hækkun á NPS skori oo
  21. Félagar/stjórnendur faghópa upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
  22. Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu oo

Fyrri áhersluverkefni:

2016-2017

  • Fagna 30 ára afmæli.
  • Innviðir félagsins og heimasíða og stjórnun
  • Markaðsmál og sýnileiki
  • Tengslamyndun, viðburðir og samstarf

2017-2018

  • Varðveita sögu félagsins
  • Markaðsmál og vefur
  • Stuðningur við stjórnir faghópa
  • Mælingar og starfsemi félagsins

2018-2019

  • Markaðsmál
  • Stuðningur við stjórnir faghópa
  • Heimasíða
  • Mælaborð

2019-2020

  • Stefnumótun 2020-2025
  • Sölu of markaðsmál
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa

2020-2021

  • Markaðsmál og sýnileiki
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa
    2. Samstarf við aðra um jafningjafræðslu

2021-2022

  • Markaðsmál og sýnileiki
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa
    2. Útrás

2022-2023

  • Ásýnd og vöxtur
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa
    2. Útrás

2023-2024

    1. Ásýnd og vöxtur: Stefán – Baldur – Laufey – Anna Kristín
    2. Stuðningur við stjórnir faghópa: Snorri Páll – Lilja - Ingibjörg
    3. Útrás/tengsl: Laufey – Anna Kristín - Auður
    4. Stöðugar umbætur: Baldur – Anna Kristín – Lilja - Haraldur

2024-2025

  • Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa (Anna K. Ingibjörg, Auður)
  • Innleiðing á LearnCove hjá faghópum (Snorri Páll, Lilja, Matthías)
  • Ásýnd, efling og vöxtur (Stefán, Haraldur, Laufey)

 

2025-2026

  • Faghópar
  • Heimasíða
  • Myndbönd
  • Sóknarfæri

 

 

 

 

 

________________________________________________________________________________

Microsoft Teams Need help?

Join the meeting now

Meeting ID: 388 251 419 875 3

Passcode: 47MJ6Ps7

 

For organizers: Meeting options

________________________________________________________________________________

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?