Maí 2026

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
27 28 29 30 01
  • Frídagur
02
  •  
03
  •  
04 05 06 07 08 09
  •  
10
  •  
11 12
  •  
13
  •  
14
  •  
15
  •  
16
  •  
17
  •  
18
  •  
19
  •  
20
  •  
21 22
  •  
23
  •  
24
  •  
25
  •  
26 27
  •  
28
  •  
29
  •  
30
  •  
31
  •  

Aðalfundur faghóps um heilsueflandi vinnuumhverfi

Farið verður yfir viðburði vetrarins og kosið til stjórnar faghópsins og formennsku.

Hlekkur á fundinn

https://teams.microsoft.com/meet/330368377874986?p=k7lJwBBUYD12aai42c

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu

Hlekkur inn á viðburðina

Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu verður haldinn mánudaginn 27. Apríl klukkan 12:00 til 12:30 í gegnum Teams.

Stjórn faghóps um fjölbreytileika og inngildingu sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins.

Faghópur um fjölbreytileika og inngildingu óskar eftir framboðum stjórnarfólks. Við hvetjum þá sem gætu haft áhuga á að sitja í stjórn faghópsins til að láta vita af sér með því að senda tölvupóst á monika@eykt.is

Fundardagskrá:

  • Uppgjör á starfsári
  • Starfsárið framundan, markmið og fyrirkomulag
  • Önnur mál

Aðalfundur faghóps um verkefnastjórnun

Aðalfundur faghópsins Verkefnastjórnun, fyrir árið 2026, verður haldinn 28. apríl kl. 12.00-13:00.
Þetta verður fjarfundur en þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið gisli.rafn.gudmundsson@fsre.is

Við veljum athygli á því að það er laus ein staða í okkar níu manna stjórn. Auk þess auglýsum við eftir áhugasömum sem vilja taka að sér formennsku og varaformennsku. Stjórn faghóps um verkefnastjórnun sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á formann faghópsins á netfangið gisli.rafn.gudmundsson@fsre.is með upplýsingum um sig og ástæðum þess að viðkomandi gefur kost á sér í stjórn faghópsins. 

Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Verkefnstjórnun

  • Framsaga formanns - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

---

F.h. faghópsins
Gísli Rafn Guðmundsson

Lokaútkall: Vorráðastefna fagfélaganna - Mótum framtíðina saman!

Skráning hér

Sameiginleg vorráðstefna fyrir félaga Ský, Stjórnvísi og Mannauðs. Fjölbreyttir fyrirlestrar úr mismunandi áttum viðskiptalífsins um framtíðina. Verð er 14.900.- krónur. Endum daginn á að stækka tengslanetið og skála fyrir framtíðinni og höldum svo út í vorið!

13:00 Setning ráðstefnunnar
Jón Jónsson
LinkedIn logo Jón Jónsson stýrir ráðstefnunni
Edda Hermansdóttir
13:10 Apótekari framtíðarinnar
Heilbrigðisþjónusta þróast hratt og í apótekum landsins starfar ein aðgengilegasta heilbrigðisstétt landsins. Hvernig mun heilsuþjónusta í apótekum framtíðarinnar líta út, hvernig munum við tala um heilsu og hvaða ólíku hæfileika þarf að ná saman til að gera hóp framúrskarandi apótekara?
LinkedIn logo Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og heilsu
 
Sylvía Kristín Ólafsdóttir
13:35 Við erum öll að fljúga í þoku.
 

Þegar ég var unglingur var einn sími heima hjá okkur. Þú hringdir ekki í manneskju heldur í heimilisfangið. Tækið fór svo í vasann hjá hverjum og einum og svo varð hann að tölvu. Nú er hann að verða að einhverjum sem talar við þig, skilur þig, og svarar þér, jafnvel áður en þú biður um það.
Enginn veit nákvæmlega hvernig framtíðin verður. Það sem skiptir máli er ekki spáin, heldur hæfileikinn til að lesa aðstæður, aðlagast breytingunum á leiðinni og taka réttu skrefin hverju sinni. Í þessu erindi tala ég um hvað það þýðir að leiða þegar gervigreind, tækni og hröð umbreyting gera framtíðina ófyrirsjáanlegri en nokkurn tímann.


LinkedIn logo Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova
 

 

Tómas Ingason
14:00 Sterkari tengingar – sterkari framtíð
Erindið fjallar um hvernig Icelandair sem verður 90 ára á næsta ári hefur alla tíð byggt starfsemi sína á skýrri framtíðarsýn, nýsköpun og sterku viðskiptalíkani sem hefur skapað öflugar tengingar og hefur haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, hagkerfi og lífsgæði í landinu. Fjallað verður um vaxtartækifæri og tækniframfarir sem gera félaginu kleift að efla tengingar enn frekar á komandi árum og halda anda Íslands á lofti á heimsvísu.
LinkedIn logo Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair
 

14:25 Kaffihlé

 

Elín Sif KjartansdóttirPáll Rafnar Þorsteinsson
14:55 Tæknin, framtíðin og fullveldið
Í erindinu verður varpað ljósi á framtíðarsýn og yfirstandandi vinnu stjórnvalda í þá veru að greiða fyrir þróun og hagnýtingu gervigreindarlausna í íslensku samfélagi, stjórnsýslu og atvinnulífi en standa á sama tíma vörð um grundvallarréttindi borgaranna, siðferðileg og menningarleg gildi. Lykiláskorun á þeirri vegferð snýst um að tryggja áreiðanlegt forræði og stjórn yfir grunninnviðum tækninnar.
LinkedIn logo Elín Sif Kjartansdóttir, sérfræðingur hjá Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu
LinkedIn logo Páll Rafnar Þorsteinsson, sérfræðingur hjá Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu
 
Edda Hermansdóttir
15:20 Hvort viltu vera gleðigjafi eða fýlupúki?
Fyrirlesari lýsir ferðalagi sínu frá því að vera annálaður gleðigjafi í það að verða fýlupúki og leiðinni til baka.
LinkedIn logo Ragnhildur Vigfúsdóttir, markþjálfi

15:45 Skálum saman fyrir framtíðinni og tengjumst!
Léttar veitingar og tengslanetið stækkað í góðra vina hópi.

17:00 Partýið búið - haldið saman út í vorið!

Aðalfundur faghóps um breytingastjórnun

Aðalfundur faghóps um breytingastjórnun verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl 12:00-12:30. Við verðum með fjarfund og hvetjum áhugasama til þess að vera með. Einnig geta áhugasamir haft samband (brynjarrafn@live.com) vakni spurningar eða hafi þeir áhuga á að taka þátt í starfinu.

Farið verður yfir starfsárið og viðburði þess. Tengill á viðburð: 

Dagskrá:

Yfirferð á starfsári

Kosning til stjórnar og formensku

Önnur mál

Aðalfundur faghóps þjónustu- og markaðsstjórnun

Faghópur þjónustu- og markaðsstjórn boðar hér með til aðalfundar 4. maí kl. 16:30.

Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 27, jarðhæð, í húsakynnum KPMG.

Dagskrá fundar

  • Uppgjör starfsárs
  • Kosning stjórnar
  • Áherslur og verkefni næsta starfsárs
  • Önnur mál

Öll sem vilja taka þátt eru hjartanlega velkomin. Núverandi stjórn er skipuð, en við tökum ávallt vel á móti öflugu og drífandi fólki sem vill leggja starfinu lið. Þau sem hafa áhuga á að koma að starfinu, endilega sendið línu á maria.agustsdottir@outlook.com.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Aðalfundur Stjórnvísi 2026 verður haldinn 5. maí kl.16:00-17:00 á Kringlukránni /hliðarsal.

Kæru Stjórnvísifélagar.

Óskað er eftir framboðum til stjórnar Stjórnvísi starfsárið 2026-2027(28) frestur til framboðs rennur út 27. apríl 2026. Kosið verður um 2 sæti í stjórn og formann Stjórnvísi, alls 3 sæti.

Eitt framboð hefur borist í embætti formanns fyrir starfsárið 2026-2027: Anna Kristín Kristinsdóttir, Engineering Manager Lead, JBT Marel. Anna Kristín er sitjandi formaður Stjórnvísi og hefur setið í stjórn sl. þrjú ár. Anna Kristín var einnig formaður faghóps um upplýsingaöryggi til nokkurra ára. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn og getur setið í 2 ár að hámarki.

Í stjórn eru 9 stjórnarmenn kosnir til eins eða tveggja ára í senn með möguleika á framlengingu án þess að kosið sé um þá og geta að hámarki setið í 4 ár. Eftirtalin framboð eru komin sem ekki þarf að kjósa um og munu skipa stjórn Stjórnvísi 2026-2027

 

1. Héðinn Jónsson, Chief Product Officer hjá Helix health. (2025-2027)

2. Viktor Freyr Hjörleifsson, mannauðssérfræðingur hjá Vegagerðinni. (2025-2027)

3. Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON (2025-2027)

4. Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2027) 

5. Matthías Ásgeirsson, forstöðumaður fasteignasviðs hjá Bláa Lóninu. Stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun kosinn í stjórn (2024-2027)

6. Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2027)

 

Kosið verður um tvö sæti í stjórn Stjórnvísi. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:

 xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx

xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx

 

 

Kosið verður í fagráð félagsins.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)

Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)

 

Kosnir verða tveir skoðunarmenn til 2ja ára og bjóða eftirtaldir sig fram:

Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027

Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Kjör fundarstjóra og ritara.
  2. Skýrsla formanns.
  3. Skýrsla framkvæmdastjóra.
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
  5. Breytingar á lögum félagsins*
  6. Kjör formanns.
  7. Kjör stjórnarmanna til næstu ára
  8. Kjör fagráðs.
  9. Kjör skoðunarmanna reikninga.
  10. Önnur mál.

 

Ársreikningurinn verður aðgengilegur á vefsíðu félagsins strax að loknum aðalfundi. Þeir sem óska eftir útprentuðum ársreikningi er bent á að óska eftir því sérstaklega við framkvæmdastjóra félagsins gunnhildur@stjornvisi.is

Aðalfundur faghópsins Umbætur og ferlastjórnun

Fundardagskrá:
  • Uppgjör á starfsárinu
  • Kosning stjórnar
  • Kosning formanns
  • Önnur mál

     

Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar sendi tölvupóst á núverandi formann hópsins: hrafnhildur.birgisdottir@landsbankinn.is

Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni

Hlekkur á fundinn 

Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni
 
Fundardagskrá:
 
  • Uppgjör á starfsári
  • Kosning til stjórnar og formanns
  • Önnur mál
 
Stjórn faghópsins sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. Það er einstaklega gefandi og skemmtilegt að vera í stjórn. Þannig er hægt að hafa áhrif á dagskrá faghópsins og fá tækifæri til að kynnast bæði öðrum stjórnarmeðlimum og flottum fyrirlesurum.
 
Þeir sem vilja bjóða sig fram til stjórnar vinsamlegast sendið tölvupóst á formann faghópsins, thorhildur.thorkelsdottir@marel.com.

Stjórnarskiptafundur Stjórnvísi 6. maí kl.18:00 á Fjallkonunni (lokaður fundur)

Miðvikudaginn 6.maí kl.18:00 verður stjórnarskiptafundur Stjórnvísi og er formönnum allra faghópa ásamt stjórn Stjórnvísi boðið.

Markmið fundarins sem er veglegri en allir aðrir stjórnarfundir er að þakka fyrir vel unnið starf, gleðjast og kynnast betur.

Það væri gott að fá staðfestingu sem fyrst hvort þið komist.

Fundurinn verður haldinn á veitingarstaðnum Fjallkonan þar sem við verðum algjörlega út af fyrir okkur, gleðjumst og borðum saman góðan mat.

Hlakka til að heyra frá ykkur og endilega látið vita á Fjallkonunni ef þið hafið sérþarfir varðandi mat og takið fram að þið séuð í hópnum Gunnhildur / Stjornvisi 6 maí.


Með kærri kveðju frá stjórn Stjórnvísi

Gunnhildur

Matseðill:

5 RÉTTA SEÐILL

FORDRYKKUR – glas af Piccini Prosecco

FORRÉTTIR

Nauta carpaccio
Græn Charmoula, þeyttur feta, parmesan flögur, granatepli

Lamb & og hveitikökur
Hægeldað lamb, vestfirskar hveitikökur, gulrótarmauk, pikklaður rauðlaukur, piparrótarsósa

Bleikja & lummur
Kjúklingabaunalummur, léttgrafin bleikja, piparrótarsósa, hrogn, yuzu-ylliblómadressing

AÐALRÉTTUR – veldu á milli

Nautalund
gulrætur, grillaður aspas, sellerírótar- mauk, bjór-hollandaise

Eða

Grillaður lax
Beykisveppir, hoisin sveppir, aspas, fregola, hvítlauks-sellerírótarmauk,
reykt aioli

EFTIRRÉTTUR

Þrista-súkkulaðiterta
Súkkulaði, Þristur, vanilluís, þeyttur rjómi

Framtíðin í fjarskiptum - viðburður sem þú mátt alls ekki missa af!

KLAK, Stjórnvísi, Huawei, og Nova bjóða til viðburðar í Grósku þar sem hin stafræn framtíð verður tekin til skoðunar með áherslu á nýsköpun í fjarskiptum og hvaða hlutverk fjarskiptin munu koma til með að þjóna í stöðugri þróun gervigreindarinnar og snjallvæðingu umhverfisins í kringum okkur.

Dagskrá

08:30 – Húsið opnar

08:40 – Beatriz frá Huawei
Framtíðarsýn fjarskipta og gervigreindar
Farið verður yfir TechVision framtíðarsýn Huawei, þróun gervigreindar og hvernig fjarskiptainnviðir styðja við næstu kynslóð tæknilausna.

09:00 – Rafal / Nova
IoT og innviðir – staðan í dag og hvert við stefnum
Raunveruleg staða hlutanetsins (IoT) á Íslandi, hvernig IoT er að móta innviði eins og samgöngur, veitur og borgarumhverfi – og hvað er framundan.

09:15 – KLAK / Startup SuperNova
Nýsköpun í framkvæmd
Kynning á Startup SuperNova hraðlinum og hvernig hann styður við þróun og innleiðingu nýrra lausna á sviði stafrænnar nýsköpunar.

09:30 – Atlas
Stafrænt fullveldi Íslands
Hvers vegna stafrænt fullveldi skiptir sífellt meira máli og hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í átt að öruggari og sjálfbærari stafrænum rekstri.

09:45 – Spurningar og umræður

Aðalfundur faghóps um Aðstöðustjórnun.

Aðalfundur faghóps um Aðstöðustjórnun verður haldin þann 8. maí kl 12:00

Staðsetning: Tívoli bistro, Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík.

Farið verður yfir viðburði líðandi starfsárs og kosið til stjórnar faghóps og formennsku.

Öll sem hafa áhuga að mæta vinsamlegast hafið samband við formann hópsins Katrín Ólöf Egilsdóttir, katrin@managull.is

 

Innri vinna leiðtogans: Vinnustofa um kjarnagildi og þjónandi forystu

Til að vera leiðtogar í okkar lífi og leiða aðra þurfum við fyrst að dýpka eigin sjálfsvitund. Að þekkja okkar gildi og lifa í samræmi við þau daglega er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.

Á þessari vinnustofu veita Bryndís og Lára Kristín þátttakendum tækifæri til að kortleggja eigin kjarnagildi og íhuga hvernig þeir geta lifað meira í samræmi við þau. Kjarnagildi þjónandi leiðtoga verða kynnt og þar geta þátttakendur sótt innblástur til frekari vaxtar ef það höfðar til þeirra. Samhliða þessari vinnu kjörnum við okkur og tengjumst okkar ásetning í gegnum stuttar leiddar hugleiðslur. 

Þessi vinnustofa er fyrir alla sem vilja fá innsýn í þjónandi forystu og leggja meiri áherslu á hvernig við getum lifað í takt við okkar eigin gildi í lífi og starfi.

ATH. Vinnustofan hefst á núvitundargöngu og leik í náttúrunni í Guðmundarlundi til að jarðtengja okkur fyrir vinnustofuna. Mætið því vel búin og tímanlega.

Hvað annað þarftu að taka með? Stílabók, penna og opinn hug.

Bryndís Skarphéðinsdóttir er með bakgrunn í alþjóðlegum lífsstíls-og heilsufræðum og fór í MSc nám í vinnusálfræði, eftir að hafa stundað hugleiðslu-og jóga nidra kennaranám á Indlandi. Síðustu ár hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, innan Norræna tengslanets um nám fullorðinna og í Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Bryndís er útskrifaður markþjálfi frá VIRKJA og hugleiðslukennari frá Yoga Essence á Indlandi.

Lára Kristín Skúladóttir er sjálfstætt starfandi lóðs og leiðtogaþjálfi en starfaði áður sem stjórnunarráðgjafi, markþjálfi og Lean sérfræðingur hjá VÍS, í gæðamálum hjá Arion banka og sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX. Hún er með MSc gráðu í alþjóðastjórnun og markaðsfræði frá Copenhagen Business School og er markþjálfi frá Evolvia og VIRKJA.

Aðalfundur Öryggishóps Stjórnvísi

Aðalfundur faghópsins Öryggishóps Stjórnvísi verður haldinn þann 21 maí nk. Þetta er staðarfundur og þeir sem hafa áhuga á að mæta vinsamlegast sendið tölvupóst á formann (fjola.gudjonsdottir@kaldvik.is).
Vakin er athygli á því að ein staða laus í stjórn félagsins.
Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á formann faghópsins með upplýsingum um sig og ástæðum þess að viðkomandi gefur kost á sér í stjórn faghópsins. 

Dagskrá: 

  • Framsaga formanns - yfirlit yfir starfsemi ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar
  • Ákvörðun um fyrsta fund 2026-2027

Activity based work.

Kristinn Jóhannesson sviðsstjóri framkvæmda og tæknisviðs Háskóla Íslands, segir okkur frá skipulagningu húsnæðis Hótel Sögu fyrir Menntavísindasvið m.t.t verkefnamiðaðrar vinnu. En þau fengu til liðs við sig Tim de Vos-Donkers frá Hollandi til aðstoðar.

 

Tim de Vos-Donkers is a senior consultant at Veldhoen company, Netherlands he is a specialist in activity based work. 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?