Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.  *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Viðburðurinn fer fram á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Samskipti í upplýsingaöryggiskrísu

Sameiginlegur viðburður faghópa um Almannatengsl, miðlun og samskipti og stjórnun upplýsingaöryggis. 

Nánari upplýsingar koma síðar. 

Framtíðarleiðtoginn

Þátttökufundur um færni og eiginleika leiðtoga framtíðarinnar 

Við fáum til liðs við okkur öfluga leiðtoga sem deila sinni persónulegu reynslu og framtíðarsýn á hvaða færniþættir verða mikilvægastir í framtíðinni í pallborðsumræðum og á vinnustofu þar sem allir þátttakendur munu leggja sitt af mörkum.

Þeir eru;

Ari Daníelsson starfar sem stjórnarformaður Skyggnis eignarhaldsfélags sem heldur utan um 15 rekstrarfélög í upplýsingatækni og stafrænum innviðum og er jafnframt starfandi stjórnarformaður Origo. Hann hefur yfir tveggja áratuga reynslu af stjórnun, fjárfestingum og umbreytingum innan upplýsingatækni og fjármálaþjónustu, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi.

Kristinn Hjálmarsson er framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries og stofnandi ráðgjafafyrirtækisins Nótera. Hann starfaði áður sem þróunarstjóri Opna háskólans hjá HR og hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, breytingastjórnun og þróun skipulags. Kristinn starfar með stjórnendum og stjórnum við að móta framtíðarsýn og hrinda henni í framkvæmd og hefur sérstakan áhuga á því hvernig forysta, lærdómur og tækni móta framtíð vinnunnar.

María Fjóla Harðardóttir hefur starfað sem stjórnandi/leiðtogi í heilbrigðisþjónustu í yfir 20 ár, nú síðast sem forstjóri Hrafnistuheimilanna þar sem starfa um 2000 starfsmenn á 7 starfsstöðum. María var fyrsta konan til að gegna embætti forstjóra í sögu Hrafnistu. Hún starfaði einnig sem stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu sem þjónustar yfir 50 fyrirtæki. Árið 2021 hlaut hún Viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir stjórnunarstörf sín.

Selma Svavarsdóttir er forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun og hefur fjölbreytta reynslu af stjórnun, rekstri og breytingum. Hún starfaði áður í fjármálageiranum og hefur síðan gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum hjá Landsvirkjun. Hún hefur leitt ólík teymi og breytingar í stórri og fjölbreyttri starfsemi og leiðir í dag nýsköpun hjá Landsvirkjun.

Á vinnustofunni heyrum við persónulegar reynslusögur frá fólki sem leiðir, skapar og starfar mitt í breytingum.

Sögurnar verða kveikja að sameiginlegri rannsókn þar sem við:

  • lesum í breytingarnar sem þegar eru að eiga sér stað og munu móta framtíðina
  • skoðum hvaða færniþætti þessar breytingar munu kalla á
  • ögrum viðteknum hugmyndum um forystufærni 
  • drögum fram þá færni sem líklegt er að skipti mestu máli
  • speglum eigin styrkleika og tækifæri til vaxtar

Markmið:

Að virkja framtíðarlæsi okkar og móta saman vegvísi með hugmyndum af forystufærni sem framtíðin mun mögulega kalla á. Markmiðið er að viðburðurinn veiti innblástur, skýrari sýn og meðvitund um hvað við getum byrjað á að efla hjá okkur sjálfum.




Kaffi og kafað á dýptina

Faghópar Stjórnvísi um gæðastjórnun og verkefnastjórnun ásamt Verkefnastjórnunarfélagi Íslands (VSF) bjóða til sameiginlegs Kaffis og kafað á dýptina – lifandi morgunfundar þar sem við ætlum að skoða snertifleti gæðastjórnunar og verkefnastjórnunar. Verkefna- og gæðastjórnun eiga margt sameiginlegt, umbætur verða að verkefnum, verkefni þurfa skýr markmið og eftirfylgni, áhættur þarf að greina og stýra og lærdómur skilar litlu ef hann kemst ekki aftur inn í starfsemina.

En hvernig gerum við þetta vel í praktík?

Við ætlum ekki að eyða morgninum í langa fyrirlestra heldur kafa beint í samtalið. Sett verða upp umræðuborð með mismunandi viðfangsefnum þar sem þátttakendur velja sér það sem þeir hafa mestan áhuga á að ræða.

Umræðuefni gætu meðal annars verið:

  • Umbótaverkefni – hvernig förum við frá góðri hugmynd yfir í raunverulegan og varanlegan árangur?
  • Áhættustjórnun – hvað geta verkefnastjórnun og gæðastjórnun lært hvor af annarri?
  • Lærdómur og þekking – hvernig tryggjum við að reynsla úr verkefnum nýtist í næsta verkefni og daglegum rekstri?
  • Ferlar og verkefni – hvar tekur annað við af hinu og hvernig tryggjum við gott samspil?
  • Mælingar og árangur – erum við að mæla það sem raunverulega skiptir máli?
  • Fólkið, breytingar og innleiðing – hvernig tryggjum við að umbætur og verkefni lifi áfram eftir að verkefninu lýkur?

Og kannski kemur besta umræðuefnið frá þátttakendum sjálfum!

Á hverju borði verður umræðustjórnandi sem heldur utan um samtalið, en áherslan er á reynslu, spurningar, áskoranir og hugmyndir þátttakenda. Gert verður ráð fyrir að fólk geti fært sig á milli borða og þannig kafað ofan í fleiri en eitt viðfangsefni.

Í lokin tökum við stutta sameiginlega samantekt og deilum helstu lærdómum og hugmyndum frá borðunum – svo allir fari heim með aðeins meira í farteskinu en þeir komu með.

☕ Og auðvitað verða kaffi og kleinur með þessu öllu saman.

Komdu með áskorun, reynslusögu eða bara forvitni. Markmiðið er að læra hvert af öðru, tengja saman fagheima og ræða það sem virkar – og það sem mætti virka betur.

Hlökkum til að kafa á dýptina með ykkur!

Staðsetning fundarins er Engjateigur 9, kjallari

Margfaldaðu afköstin með hjálp gervigreindar

Hvað ef þú gætir falið gervigreind verkefni, tengt hana við gögnin þín og látið hana aðstoða þig við vinnuna frá upphafi til enda?

Á þessum hagnýta og líflega fyrirlestri sýnir Stefán Atli Rúnarsson hvernig gervigreind er að þróast úr spjallmenni sem svarar spurningum yfir í stafrænan samstarfsmann sem getur unnið verkefni í mörgum skrefum.

Með lifandi sýnikennslu og dæmum úr daglegu starfi verður farið yfir hvernig má breyta tölvupóstum í forgangsraðað verkefnayfirlit og svör, vinna úr skjölum og töflum, túlka myndir og undirbúa fundi. Einnig verður sýnt hvernig tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur verkfæri geta gert gervigreind að enn öflugri aðstoðarmanni.

Þátttakendur fá innsýn í gervigreindarfulltrúa sem geta framkvæmt verkefni í vöfrum og hugbúnaði og sinnt eftirfylgni milli samtala. Jafnframt verður fjallað um skýr fyrirmæli, aðgang að gögnum og hvenær mannlegt mat og samþykki þurfa að koma til. Markmiðið er að hver þátttakandi fari heim með skýra hugmynd að einu endurteknu verkefni sem hægt er að byrja að einfalda með gervigreind strax næsta dag.

Fyrirlesturinn hentar stjórnendum, verkefnastjórum og öllum þeim sem vilja spara tíma, einfalda vinnuna og nýta gervigreind markvissar í sínu starfi.

Erindið er haldið í Innvoation House, Eiðistorgi á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 12. nóvember 2026, en einnig er í boði að mæta á streymi í gegnum fjarfund á Teams (sjá tengil hér neðst). Til að finna salinn er gengið inn á Eiðistorg við hliðina á Hagkaup, þaðan upp á 2.hæð. Beint á móti Bókasafni Seltjarnarness er opin hurð upp á 3.hæð og þar verður fundurinn.


Um fyrirlesarann
Stefán Atli Rúnarsson er fyrirlesari og ráðgjafi sem sérhæfir sig í hagnýtri notkun gervigreindar. Hann hefur kennt þúsundum Íslendinga að nýta gervigreind og haldið námskeið og fyrirlestra fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki og stofnanir. Stefán er menntaður viðskiptafræðingur með bakgrunn í markaðsmálum, tækni og miðlun. Hann leggur sérstaka áherslu á að gera gervigreind aðgengilega, skemmtilega og umfram allt gagnlega í daglegu starfi.

Nánari upplýsingar: https://chatgptnamskeid.is

Tengill á fjarfund/streymi:

https://teams.microsoft.com/meet/3571089139419502?p=ildKftOVRrIQTWG1MV

Taugafjölbreytileiki á vinnustað

Hlekkur inn á viðburðina

 

Taugafjölbreytileiki á vinnustað: Allir heilar leggja eitthvað til
Taugafjölbreytileiki er ekkert tískufyrirbæri. Hann er raunveruleiki á öllum vinnustöðum. Talið er að 15–20% fólks séu taugafjölbreytt eða skynsegin, til dæmis með ADHD, einhverfu eða lesblindu. Reynsla þeirra hefur áhrif á samskipti, sköpunargleði, líðan og samvinnu í teymum á hverjum einasta degi. Á þessum fyrirlestri skoðum við hvernig taugafjölbreytileiki birtist í vinnunni, hvers vegna svo margir fara óséðir og hvað stjórnendur, mannauðsfólk og samstarfsfólk geta gert til að allir heilar fái að blómstra. Þú færð með þér skýrar útskýringar og einföld, hagnýt verkfæri sem þú getur byrjað að nota strax. Fyrirlesturinn fer fram á ensku, en spurningar og umræður mega gjarnan vera á íslensku.

 

Neurodiversity at Work: Every Brain Brings Something Valuable
Neurodiversity isn’t a trend. It’s a reality in every workplace. An estimated 15–20% of people are neurodivergent, including those with ADHD, autism, and dyslexia, and their experiences shape team dynamics, communication, creativity, and wellbeing every single day. In this session, we’ll explore what neurodivergence actually looks like at work, why so many people go unrecognized, and what leaders, HR, and colleagues can do to create an environment where all brains can thrive. You’ll leave with clear explanations and simple, practical tools you can start using right away. The session will be held in English, with Q&A welcome in Icelandic.
 
Um Sönnu
Sanna Arthur er ICF-þjálfaður markþjálfi með sérhæfingu í taugafjölbreytileika. Hún er líka fræðari og stofnandi Speshal Coaching í Reykjavík. Sanna er á einhverfurófi og með ADHD. Eins og margar konur greindist hún seint. Í starfi sínu að inngildingu skynsegins fólks nýtir hún bæði eigin reynslu og faglega þekkingu. Með bakgrunn í verkefnastjórnun, teymisstjórnun og fjölmenningarlegum samskiptum aðstoðar hún fyrirtæki og stofnanir við að byggja upp vinnustaði þar sem allir heilar geta blómstrað. Nálgun hennar byggir á styrkleikum og vísindalegri þekkingu og hefur sálrænt öryggi að grunni. Hún býður upp á vinnustofur og markþjálfun á ensku, íslensku og þýsku.

 

About Sanna
Sanna Arthur is an ICF-trained neurodivergent coach, educator, and founder of Speshal Coaching in Reykjavík. With a background in project management, leadership, and multicultural communication, she helps organizations build workplaces where all kinds of brains can thrive. A late-diagnosed AuDHD woman, she brings both lived experience and professional expertise to her work on neuroinclusion. With a background in project management, leadership and multicultural communication, she helps organizations build workplaces where all kinds of brains can thrive. Her approach is strengths-based, science-informed and grounded in psychological safety. She offers workshops and coaching in English, Icelandic, and German.
 
 

Heilsa sem stefnumarkmið og forystumál

Hver er ábyrgð vinnustaðarins þegar kemur að heilsu starfsfólksins?

Hvað með að passa upp á:

  • Streitu
  • Vinnustaðamenningu
  • Sveigjanleika á vinnustað
  • Samskipti - hafa áhrif á svefn

Nánari upplýsingar þegar nær dregur. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?