Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði

Hlekkur á fundinn
Faghópur Stjórnvísi - Gæðastjórnun og ISO staðlar, kynnir spennandi viðburð "Byggjum fyrir fólk- Umhverfissálfræði, skipulag og lífsgæði"


Hvernig getum við skapað bæi, nærumhverfi og húsnæði sem styðja við vellíðan og daglegt líf? Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, fjallar um hvernig þekking á samspili fólks og umhverfis getur aukið gæði í hönnun og skipulagi. Með dæmum úr starfi Envalys verður sýnt hvernig skýrar forsendur, samráð og gagnvirk þrívíddarlíkön geta stutt upplýstar ákvarðanir frá upphafi verkefna. Jafnframt verður rætt hvernig verja megi lífsgæði gagnvart kröfum um einföldun og sparnað og tengja mannlegar þarfir við sjálfbærni og markvissa gæðastjórnun.

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams, (hlekkur kemur hér inn um sólahring fyrir fund).

---

Páll Jakob Líndal er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort um er að ræða náttúru eða byggt umhverfi. Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum er snúa að verndun byggingararfsins, auk þess að vinna að sálfræðilegum rannsóknum og hefur um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.

Páll á og rekur ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækið ENVALYS ásamt Herði Má Hafsteinssyni tölvunarfræðingi og Hannesi Högna Vilhjálmssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavik, þar sem áhersla er lögð á að innleiða umhverfissálfræði og þrívíddar- og sýndarveruleikatækni inn í skipulags- og hönnunarverkefni. 

Þá er Páll forstöðumaður viðbótarnáms á meistarastigi í umhverfissálfræði við Háskólann í Reykjavík, kennir umhverfissálfræði við Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, auk þess að vera pistlahöfundir, fyrirlesari og markþjálfi.

Umbúðalaust Ísland? – Nýjar reglur, áhrif og áskoranir

Hlekkur á fundinn
Faghópur Stjórnvísi um sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi býður til málstofu um reglugerð ESB 2025/40 um umbúðir og umbúðaúrgang, svokallaða PPWR, sem kom til framkvæmda í ESB 12. ágúst 2026.

Hvaða breytingar felur reglugerðin í sér og hvaða áhrif getur hún haft á íslensk fyrirtæki og neytendur? Fulltrúar ólíkra hagaðila flytja stutt innlegg um stöðu umbúðamála, sýn á nýju reglurnar og helstu áskoranir fram undan. Að erindunum loknum fara fram sameiginlegar umræður og spurningar frá þátttakendum.

Frummælendur verða:

  • Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Danól.
  • Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni.

Freyr Eyjólfsson, verkefnisstjóri hjá SORPU, verður fundarstjóri og stýrir umræðum.

 

Viðburðurinn fer fram sem fjarfundur á Teams. 

Dagskrá

  • 10:00–10:05 – Setning og kynning á viðfangsefni
    Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri.
  • 10:05–10:15 – Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun
    Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur á sviði loftslags og hringrásarhagkerfis.
  • 10:15–10:25 – Erindi frá Danól
    Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri.
  • 10:25–10:35 – Erindi frá Krónunni
    Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri sjálfbærnimála.
  • 10:35–11:00 – Sameiginlegar umræður og spurningar.

Microsoft Teams meeting

Join: https://teams.microsoft.com/meet/357911267992207?p=DPDx0CDjIsOaJquQiJ

Meeting ID: 357 911 267 992 207

Passcode: gF2XV6RA

Stefnumótun Stjórnvísi 2026-2031 (lokaður viðburður)

Stjórn Stjórnvísi ásamt fulltrúum frá öllum faghópum Stjórnvísi er boðið að taka þátt í vinnustofu um stefnumótun Stjórnvísi til næstu fimm ára. Vinnustofan fer fram hjá Marel, Austurhrauni 9, 210 Garðabæ í fundarherberginu Lóni. Vinnustofan hefst stundvíslega klukkan 13 og eru allir beðnir um að vera komnir fyrir þann tíma.

Á vinnustofunni verður unnið að nýrri framtíðarsýn, hlutverki og fókus stoðum félagsins fyrir tímabilið 2026-2031. Niðurstöður hennar munu leggja grunn að nýrri stefnu félagsins.

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga góðan dag saman.

Kær kveðja,Anna Kristín

Formaður stjórnar Stjórnvísi

Gervigreind í framkvæmd: Hvar liggur raunverulega virðið?

Við höfum fengið góðan fyrirlesara til að fjalla um hagnýtingu AI, Gísla Ragnar Guðmundsson hjá Almannarómi og leiðir New Nordics AI á Íslandi.
Á málstofunni verður farið yfir þróun gervigreindar síðustu mánuði, með áherslu á hvernig tæknin er að færast frá tilraunum yfir í raunverulega hagnýtingu. Fjallað verður um þróun erlendis, netöryggi og hvar helstu tækifærin til verðmætasköpunar liggja. Einnig verður stuttlega sagt frá starfi New Nordics AI og Almannaróms.

Vefslóðin á fundinn er hér

Stytting vinnuvikunnar og hvernig við náum að tækla verkefnin?

Smellið hér til að tengjast Teams

Stytting vinnuvikunnar var hluti af víðtækum breytingum á vinnumarkaði hjá hinu opinbera og síðar á almennum vinnumarkaði og kom almennt til framkvæmda á árunum 2020-2021. Hvernig hefur tekist til og erum við að ná að tækla öll verkefnin?

Við heyrum frá fulltrúum tveggja stórra vinnustaða um hvernig verkefnið hefur tekist. 


María Ösp Ómarsdóttir hefur verið leikskólastýra hjá Hjallastefnunni frá árinu 2015
.
Hún er ein stofnenda Opna leikskóla Memmm og situr í stjórn félagsins. Hún er auk þess 5 barna móðir og sjómannskona.
Heiti erindis Maríu Aspar: Árbær er Sjálfbær: Raunverulegar umbætur í viðverustjórnun og valdefling mannauðs í leikskólanum Árbæ. Hvernig framkvæmd og skipulag styttingu vinnuvikunnar í leikskóla getur verið lykillinn að jafnara álagi og færri veikindadögum, sem leiðir til aukinnar skuldbindingar starfsfólks til vinnustaðarins og betri starfsanda.

 

Guðmundur Þór Sigurðsson er deildarstjóri Fasteigna- og umhverfisþjónustu Landspítalans.
Guðmundur ber ábyrgð á fjölbreyttri stoðþjónustu sem styður við daglegan rekstur stærsta vinnustaðar landsins, m.a. fasteignaþjónustu, umhverfisþjónustu, öryggisþjónustu, þjónustuveri og símvörslu. Starfsemin nær yfir fjölda bygginga, ólíkar starfsstöðvar og þjónustu sem þarf að virka allan sólarhringinn — líka þegar flestir eru farnir heim.
Heiti erindis Guðmundar: Þegar vinnuvikan styttist en verkefnin ekki - áskoranir styttingar vinnuvikunnar í sólarhrings- og stoðþjónustu. 


Fundarstjóri er Ingibjörg Loftsdóttir, formaður faghópsins og varaformaður Stjórnvísi.

Fagráðsfundur Stjórnvísi (lokaður viðburður)

Fundur stjórnar með fagráði Stjórnvísi verður haldinn þriðjudaginn13. október nk. á Vox kl.11:40-12:50.É 

Fyrirkomulag fundarins verður þannig að formaður Stjórnvísi Anna Kristín Kristinsdóttir heldur örstutta kynningu á starfseminni í vetur og síðan væri aldeilis gott að fá frá hverju og einu ykkar uppbyggilega gagnrýni og hugmyndir t.d. varðandi Íslensku ánægjuvogina, Stjórnunarverðlaunin, Sjálfbærniásinn og afhendingu viðurkenninga til fyrirmyndarfyrirtækja í góðum stjórnarháttum.

Meginmarkmiðið með fundinum er að fá frá ykkur fagleg ráð varðandi hvað má gera betur og hvað er vel gert.

Þess má geta að virkir faghópar Stjórnvísi eru í dag 22 og starfa í stjórnum þessara faghópa 180 manns.

Meðfylgjandi er fundargerð frá starfsdegi stjórnar sem haldinn var 28.maí sl. og 18.júní sl.

Á þessum fundum voru valin áhersluverkefni stjórnar fyrir veturinn 2026-2027.

Í fundargerð má sjá dagskrá komandi starfsárs og stóru viðburðina: Íslensku ánægjuvogina, Haustráðstefnu, Stjónunarverðlaunin og Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

 

Læt fylgja áhugaverða linka á heimasíðu félagsins www.stjornvisi.is

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/hlutverk-stjornvisi

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/stjornir-faghopa/verklagsreglur-faghopa

https://www.stjornvisi.is/is/um-stjornvisi/stjornir-faghopa/sidareglur

https://www.stjornvisi.is/is/jafnrettisstefna-stjornvisi-og-vidbragdsaaetlun-gegn-einelti-areitni-og-ofbeldi

 

Fagráð Stjórnvísi 2026-2027

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar (2026-2028)
Stefán Hrafn Hagalín, framkvæmdastjóri Þrettánellefu (2026-2028)
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans (2026-2028)

Anna Kristín Kristinsdóttir, formaður stjórnar Stjórnvísi verður fulltrúi stjórnar á þessum fundi.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi

 

Fundargerð frá starfsdegi stjórnar

Staðsetning: Marel

28.maí 2026 kl. 10:00 – 13:00

Framhaldsfundur:

18.júní 2026 kl.10:00 – 12:00

Staðsetning: Teams

Þátttakendur 28.maí 2026:

Ásdís Sigurðardóttir, Anna Kristín Kristinsdóttir,Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Matthías Ásgeirsson, Snorri Páll Sigurðsson, Sveinn Kjarval, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.

Þátttakendur 18.júní 2026:

Ásdís Sigurðardóttir, Anna Kristín Kristinsdóttir,Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Snorri Páll Sigurðsson, Sveinn Kjarval, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.

 

asdis@drangar.is;anna.kristinsdottir@marel.com;matthias.asgeirsson@bluelagoon.is; iloftsdottir@gmail.com; snorri.sigurdsson@alvotech.com; tinnaj@on.is; hedinnj@gmail.com; Viktor.f.hjorleifsson@vegagerdin.is;Sveinn.Kjarval@marel.com

 

  1. Yfirferð á framtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum. Anna Kristín Kristinsdóttir formaður stjórnar fór yfir samskiptareglur. Við ætlum að eiga opin, heiðarleg og uppbyggileg samskipti sem stuðla að trausti, virðingu og góðu samstarfi. Einnig var farið yfir framtíðarsýn, stefnu, gildi, meginmarkmið lög og siðareglur. Stefnumótun Stjórnvísi fyrir næstu 5 ár 2026-2031 verður unnin á þessu ári. Í þeirri vinnu verður boðið fulltrúa frá hverjum faghópi.
  • Mikilvægt er að skerpa með reglubundnum hætti á hlutverki og stefnu Stjórnvísi til að tryggja að talandinn inngildi alla þá hópa samfélagsins sem félagið á erindi við; sú vinna fari fram á fyrsta fundi stjórnar í haust.
    · Búið er að yfirfara lög félagsins og siðareglur í takti við ofangreint. Lög félagsins voru síðast uppfærð á aðalfundi 7.maí 2025 og eru aðgengileg á vefsíðu félagsins ásamt siðareglum sem eru yfirfarnar árlega.
  1. Uppfæra hönnun á heimasíðu, letur, liti og kynningargardínur (banner-ups) Stjórnvísi; Verkefnið er í vinnslu hjá Rakel Guðnadóttur hönnuði · Fara verður í kjölfarið í endurnýjað markaðsátak þar sem faghóparnir verða í aðalhlutverki. Í framhaldi kynntu stjórnarmenn sig með því að segja örstutt frá sér. Einnig urðu umræður um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum og á Teams.
  2. Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur á áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg stjórnarfólki í Sharepoint. Stjórn var hvött af framkvæmdastjóra félagsins til að fara inn á Sharepoint reglulega.
  3. Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“.
  4. Þema ársins 2026-2027 ákveðið og útfærsla. Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust.
  5. Varaformaður Stjórnvísi og ritari verða kosin á fyrsta stjórnarfundi í haust.
  6. Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.

 

    • Ágúst Orkan 13.ágúst 11:00-12:00
    • September Grand Hótel (í beinu framhaldi af haustráðstefnu)
    • Október Teams
    • Nóvember ON
    • Desember Kvöldfundur – staðsetning ákveðin síðar
    • Janúar Teams
    • Febrúar Helix
    • Mars Teams
    • Apríl Distica
    • Maí Teams

 

  1. Kynning á reglubundnum verkefnum stjórnar

Tímasetning var ákveðin á helstu viðburðum Stjórnvísi og þeir settir inn á dagatal félagsins.

Ágúst 2026: Fyrirmyndarfyrirtæki ársins viðurkenningarathöfn (Nauthóll 20.ágúst kl.12:00 hádegisverður – lokaður viðburður)
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Hreiðar Sigurðsson, Viðskiptaráð Íslands, Kauphöllin og SA. (Búið að funda með öllum aðilum, fá fyrirlesara, fundarstjóra, ljósmyndara og sal)

Ágúst fimmtudagurinn 27.ágúst 2026: Kick off fundur
Hvar
: Hvalasafnið
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur, stjórn Stjórnvísi.

September 2026
Þann 3. september verður haustdagskrá Stjórnvísi send út á alla aðila
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur

September 2026
Haustráðstefna Stjórnvísi – 23. September (miðvikudagur) 2026 staðfest kl.09:00-12:00. Grand Hótel Háteig Nýtt þema Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram.“


Ábyrgðaraðilar:
Gunnhildur, stjórn
Búið að staðfesta streymi og sal.

 

Október 2026
Fundur með fagráði verður 7.október á VOX (miðvikudagur)
Ábyrgðaraðilar:
Gunnhildur og Anna Kristín


Janúar 2026
12. janúar. Nýársfagnaður
– (þriðjudagur)

Ábyrgðaraðili: Gunnhildur og Anna Kristín.

Hvar: Marel

 

Janúar 2027
Íslenska ánægjuvogin 2026 afhent 21 janúar 2026 kl.15:00 – 16:30
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur og Prósent.
Hvar: Grand Hótel, Háteigi.
Búið að staðfesta streymi og sal.

Febrúar mánudagur 8.febrúar 2027
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 Grand Hótel kl.16:00
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur, Anna Kristín
Tímabil: Haldin 8.febrúar 2027
Búið að staðfesta streymi og sal.
Þema: Framsýn forysta

Apríl/maí 2027
Aðalfundir faghópa
Ábyrgðaraðili: Gunnhildur

Maí 2027
Aðalfundur Stjórnvísi verður haldinn 6.maí
Ábyrgðaraðili:
Gunnhildur

Maí 2027
Stjórnarskiptafundur: haldinn 6.maí
Ábyrgðaraðili:
Gunnhildur

Ágúst 2027
Fyrirmyndarfyrirtæki 2027.
Ábyrgðaraðilar: Gunnhildur, Jón Hreiðar Sigurðsson

  1. Áhersluverkefni starfsársins verða fjögur: (sjá mælikvarða neðar í fundargerð).

Anna kynnti áhersluverkefni síðustu ára. Í framhaldi ákvað nýkjörin stjórn Stjórnvísi áhersluverkefni komandi starfsárs. Á fyrsta fundi í haust verða fundnir mælikvarðar á þessi áhersluverkefni og undirverkefni hvers og eins.

2026-2027 (fjögur áhersluverkefni – í hverju felast þau)

  • Afmælisnefnd – Stjórnvísi 40 ára
  • Faghópar
  • Heimasíða
  • Sóknarfæri

 

2026-2027 – mælikvarðar (tillaga)

oo= rauntíma mælaborð á síðu Stjórnvísi www.stjornvisi.is

ooo= mælt árlega í viðhorfskönnun til félagsmanna

  1. september 26 kl. 09:00-12:00

Hvað viljum við gera á þessu starfsári? Taka stöðuna í byrjun hvers fundar áhersluverkefnin)

Áhersluverkefni:

  1. Afmælisár Stjórnvísi (Svenni, Ingibjörg)
    1. Sagan sögð
  2. Heimasíða (Anna Kristín og Tinna)
    1. Endurhanna heimasíðuna með t.t. einfaldleika
    2. Heimsóknir á heimasíðu oo
    3. Innskráning af heimasíðu oo

 

  1. Stuðningur við stjórnir faghópa (Héðinn, Snorri)
  1. Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
  2. Aukning á virkni faghópa oo
  3. Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
  4. Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
  5. Yfirfara leiðbeiningar til faghópa. Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. Ooo
  6. Festa reglulegar kannanir

  1. Sóknarfæri (Ásdís, Viktor, Matthías )
    1. Háskólar
  1. Fjölgun fyrirtækja oo
        1. Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
        2. Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
  1. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
  2. Fjölgun virkra félaga oo
  3. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
  4. Fjölgun viðburða oo
  5. Fjölgun félaga á fundum oo
  6. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
  7. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
  8. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
  9. Fjölgun nýrra háskólanema oo
  10. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
  11. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
  12. Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
  13. Stjórnvísi þróist í takt við við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins ooo
  14. Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
  15. Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika, sé styðjandi og virkur ooo
  16. Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
  17. Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
  18. Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
  19. Fjölgun erlendra fyrirlesara
  20. Hækkun á NPS skori oo
  21. Félagar/stjórnendur faghópa upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
  22. Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu oo

 

Fyrri áhersluverkefni:

2016-2017

  • Fagna 30 ára afmæli.
  • Innviðir félagsins og heimasíða og stjórnun
  • Markaðsmál og sýnileiki
  • Tengslamyndun, viðburðir og samstarf

2017-2018

  • Varðveita sögu félagsins
  • Markaðsmál og vefur
  • Stuðningur við stjórnir faghópa
  • Mælingar og starfsemi félagsins

2018-2019

  • Markaðsmál
  • Stuðningur við stjórnir faghópa
  • Heimasíða
  • Mælaborð

2019-2020

  • Stefnumótun 2020-2025
  • Sölu of markaðsmál
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa

2020-2021

  • Markaðsmál og sýnileiki
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa
    2. Samstarf við aðra um jafningjafræðslu

2021-2022

  • Markaðsmál og sýnileiki
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa
    2. Útrás

2022-2023

  • Ásýnd og vöxtur
    1. Stuðningur við stjórnir faghópa
    2. Útrás

2023-2024

    1. Ásýnd og vöxtur: Stefán – Baldur – Laufey – Anna Kristín
    2. Stuðningur við stjórnir faghópa: Snorri Páll – Lilja - Ingibjörg
    3. Útrás/tengsl: Laufey – Anna Kristín - Auður
    4. Stöðugar umbætur: Baldur – Anna Kristín – Lilja – Haraldur

2024-2025

  • Uppfæra sniðmát og leiðbeiningar fyrir stjórnir faghópa (Anna K. Ingibjörg, Auður)
  • Innleiðing á LearnCove hjá faghópum (Snorri Páll, Lilja, Matthías)
  • Ásýnd, efling og vöxtur (Stefán, Haraldur, Laufey)

 

2025-2026

  • Faghópar
  • Heimasíða
  • Myndbönd
  • Sóknarfæri

 

2026-2027

  • Afmælisár Stjórnvísi
  • Heimasíða
  • Sóknarfæri
  • Stuðningur við stjórnir faghópa

Stjórnvísi er eigandi Íslensku ánægjuvogarinnar og veitir árlega Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi í þremur flokkum stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði. Valið er í höndum félagsfólks Stjórnvísi. Stjórnvísi í samstarfi við Prósent veitir árlega Sjálfbærniskýrslu ársins og sér einnig um rekstur verkefnisins Fyrirmyndarfyrirtæki í samstarfi við Nasdaq, SA og VÍ.

Stjórnvísi er skráð vörumerki hjá Hugverkastofu til 30.september 2035.

Á aðalfundi haldinn 5. maí 2026 voru kosin í stjórn félagsins:

Stjórn Stjórnvísi 2026-2027.
Anna Kristín Kristinsdóttir,
Engineering Manager Lead, JBT Marel, formaður (2026-2027)
Ásdís Sigurðardóttir gæða- og öryggisstjóri Dranga og dótturfélaga (2026-2028)
Héðinn Jónsson, Chief Product Officer hjá Helix health. (2025-2027)
Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2027)
Matthías Ásgeirsson, Bláa Lónið, stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun kosinn í stjórn (2024-2027)
Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2027)
Sveinn Kjarval Internal Event Manager JBT Marel(2026-2028).Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON (2025-2027)
Viktor Freyr Hjörleifsson, mannauðssérfræðingur hjá Vegagerðinni. (2025-2027)

Kosið var í fagráð félagsins.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar (2026-2028)
Stefán Hrafn Hagalín, framkvæmdastjóri Þrettánellefu (2026-2028)
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans (2026-2028)

 

Kosnir voru tveir skoðunarmenn til 2ja ára á síðasta aðalfundi:

Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)

Samband eignastýringar og aðstöðustjórnunar (e. facility asset management - Dr Brian Atkin)

Teams hlekkur til þess að tengjast fundi

Aðstöðustjórnun og eignastýring hafa lengi þróast í aðskildum fögum — með ólíkum aðferðum og forgangsröðun — þrátt fyrir að bera í reynd sameiginlega ábyrgð: að tryggja að hið byggða umhverfi virki á öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan hátt. Þessi aðgreining hefur skapað sóun, óhagkvæmni og glötuð tækifæri fyrir eigendur og rekstraraðila fasteigna.

Í nýrri bók sinni, Facility Asset Management - Performance, Risk & Value, kynna höfundarnir Duncan Waddell og Brian Atkin hugtakið Facility Asset Management (FAM) — samþætta nálgun sem sameinar bestu starfshætti aðstöðustjórnunar og eignastýringar til að hámarka virði, lágmarka áhættu og styðja stefnumótandi ákvarðanatöku.

Brian Atkin er einn virtasti sérfræðingur heims á þessu sviði. Á fundinum fer hann yfir helstu niðurstöður bókarinnar og svarar meðal annars þessum spurningum:

  • Hvers vegna er samþætting aðstöðustjórnunar og eignastýringar orðin nauðsynleg?
  • Hvernig geta gögn og tækni breytt mannvirkjum úr viðbragðsdrifnu umhverfi í fyrirbyggjandi og virðisskapandi kerfi?
  • Hvernig geta leiðtogar í aðstöðustjórnun skapað raunverulegt virði fyrir sínar skipulagsheildir?

Fundurinn er kjörinn fyrir stjórnendur og sérfræðinga í aðstöðustjórnun, eignastýringu, rekstri fasteigna og sjálfbærni sem vilja heyra beint frá einum helsta hugsuði greinarinnar hvernig þessi nálgun getur nýst í íslensku samhengi - og fá um leið tækifæri að spyrja Brian spurninga.

Heilbrigð vinnustaðamenning og dæmi um hagnýtingu þekkingar

 

Smelltu hér til að tengjast fundinum

Hver eru grundvallaratriði vinnustaðamenningar? Hvernig getum við hagnýtt þekkinguna?

Vinnustaðamenning byggir á sál-félagslegum þáttum í vinnuumhverfinu þar sem forysta gegnir mikilvægu hlutverki sem og virk þátttaka og ábyrgð alls starfsfólks. Vinnustaðamenning hefur afgerandi áhrif á vellíðan, ánægju og árangur. Víða eru vísbendingar um að bæta þurfi vinnustaðamenninguna. Þekking um heilbrigða vinnustaðamenningu hefur vaxið og styrkst með rannsóknum undanfarna fjóra áratugi en margt bendir til þess að brýnt sé að hagnýta þessa þekkingu enn betur. Í erindinu verður fjallað um grundvallaratriði heilbrigðrar vinnustaðamenningar og kynnt dæmi um hagnýtingu þekkingarinnar á vinnustöðum hér á landi.

Sigrún Gunnarsdóttir er hjúkrunarfræðingur, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá Vinnueftirliti ríkisins.

 

Heilbrigð vinnustaðamenning og dæmi um hagnýtingu þekkingar

 

 

Kulnun Íslendinga á vinnumarkaði – hvað segja sjö ára gögn okkur?

Prósent hefur mælt kulnun meðal Íslendinga á vinnumarkaði árlega frá árinu 2020 og kynnir nú nýjustu niðurstöður ársins 2026.

Í fyrirlestrinum verður þróun kulnunar á íslenskum vinnumarkaði skoðuð yfir sjö ára tímabil, frá 2020–2026. Hvaða breytingar hafa orðið á þessum tíma? Hvaða hópar skera sig úr? Og hvaða starfstengdu og aðrir þættir tengjast streitu og álagi?

Rannsóknin byggir á um 900 svörum einstaklinga á vinnumarkaði um allt land og niðurstöður eru meðal annars greindar eftir starfsgrein, starfsaldri, kyni, aldri og menntun.

Fyrirlesari:
Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, kynnir helstu niðurstöður og það sem helst vekur athygli í sjö ára þróuninni.

Skráning:
Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 14. október. Skráðir þátttakendur fá Teams-fundarboð sent í kjölfarið.

👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://prosent.is/fyrirlestur-um-kulnun-islendinga-a-vinnumarkadi-2026/

Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagmennska og ferlar

Morgunfundur Kjarks ráðgjafar og Stjórnvísi 
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
 

Hvar er hægt að spara og hvað má reksturinn ekki missa?

Þegar kostnaður hækkar og óvissa eykst þurfa stjórnendur að taka erfiðar ákvarðanir. Þrýstingur á hagræðingu getur verið mikill og tíminn til stefnu stuttur. En ákvarðanir sem lækka kostnað í dag geta orðið dýrar á morgun ef þær koma niður á þjónustu og gæðum eða leiða til þess að lykilþekking og traust starfsfólks tapast.

Kjarkur ráðgjöf og Stjórnvísi bjóða til morgunfundar um hvernig hægt er að bregðast við af yfirvegun, greina tækifæri til umbóta og leiða breytingar með fagmennsku og virðingu fyrir fólki.

Á fundinum tengjum við saman mennsku, fagmennsku og ferla og fjöllum um mikilvægi þess að huga að þessu þrennu þegar þrengir að rekstrinum.

Hvað þarf að greina áður en gripið er til niðurskurðar?

Harpa Þrastardóttir fjallar um hvernig greining á ferlum, kostnaði og áhættu hjálpar stjórnendum að sjá hvað skapar virði, hvar sóun liggur og hvað má einfalda eða hætta að gera. Hvernig má endurskipuleggja vinnuna, skýra ábyrgð og varðveita nauðsynlega getu og gæði? Og hvernig vitum við hvort aðgerðirnar skila raunverulegum árangri?

Hvernig leiðum við fólk í gegnum breytingar?

Berglind Björk Hreinsdóttir fjallar um mannlega þáttinn í breytingum, óvissu og ólík viðbrögð starfsfólks. Þar kemur meðal annars inn missir og sorg sem geta fylgt því að missa starf eða kveðja samstarfsfólk.

Áherslan er á samskiptastjórnun og skýra upplýsingagjöf, hvernig stjórnendur taka krefjandi samtöl af virðingu og styðja bæði við þau sem missa starfið og þau sem halda áfram. Hvernig styrkjum við traust, viðhöldum áhuga og hjálpum fólki að finna fótfestu við breyttar aðstæður?

Staður og stund

  1. október 2026
    Esja, fundarsalur Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30

Kl. 8.30 – Húsið opnar. Kaffi og léttar morgunveitingar.
Kl. 9.00–10.00 – Tvö erindi, spurningar og umræður.
Kl. 10.00–10.30 – Kaffispjall og tengslamyndun.

 

Rýni stjórnenda. Bestu leiðir til árangurs.

Hlekkur á fundinn
Hvað þarf til að rýni stjórnenda skili skýrum niðurstöðum og umbótum? Hvernig fáum við

stjórnendur til að taka virkan þátt og fylgja ákvörðunum eftir?

Faghópur Stjórnvísi um gæðastjórnun og ISO staðla býður til viðburðar um rýni stjórnenda. Við
tengjum kröfur ISO 9001 við reynslu úr rekstri og skoðum hvernig rýnin getur orðið gagnlegur hluti
af stjórnun fyrirtækis.

Gná Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Versa Vottunar og reynslumikill úttektarstjóri, fjallar um
hvernig árangursríkast er að halda rýni stjórnenda. Rýnin á að gera æðstu stjórnendum kleift að
stíga skref til baka og skoða skipulagsheildina og stjórnunarkerfi hennar úr fjarlægð, meta hversu
vel hún starfar og ákvarða hvar þarf að breyta eða bæta.


Einar Bjarnason, gæða- og verkefnastjóri Límtré Vírnets, segir frá þróun rýninnar hjá fyrirtækinu
og lærdómnum á leiðinni. Hvernig hefur skilningur stjórnenda aukist? Hvað hefur þurft að laga og
hvernig hafa ábendingar úr úttektum hjálpað til?
Einar sýnir raunveruleg dæmi úr undirbúningi, greiningum og samantekt niðurstaðna. Hann ræðir hvernig gögnin tengjast ákvörðunum, ábyrgð og eftirfylgni. Reynslusaga um innleiðingu með nokkrum löngum krókaleiðum, þar sem eyðublaðið var
stundum betur undirbúið en fundarmenn!


Viðburðurinn er ætlaður gæðastjórum, stjórnendum og öðru áhugafólki um gæðastjórnun, bæði
þeim sem eru að hefja innleiðingu og þeim sem vilja þróa rýnina áfram.

Fundurinn verður tekinn upp

Á netinu: Aðferðafræði Atvinnustefnu, framkvæmd og árangursmat

Hlekkur á viðburð

Faghópur Stjórnvísi um „stefnumótun og árangursmat“ býður til viðburðar í samstarfi við forsætisráðuneyti þar sem Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, fjallar um mótun atvinnustefnu Íslands, eftirfylgni og mat á árangri í framkvæmd.

Dagskrá:

Davíð Lúðvíksson, Rekstrarverkfræðingur, um faghópinn og mikilvægi stefnu og árangursmælinga í uppbyggingu atvinnulífs.

Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, fjallar um mótun atvinnustefnu Íslands, eftirfylgni og mat á árangri í framkvæmd. Þá fer Sveinbjörn yfir fyrstu samantekt á stöðu innleiðingar atvinnustefnunnar.

Að erindinu loknu verður opnað fyrir spurningar og samtal þátttakenda undir stjórn fundarstjóra. Bjarki/Rósbjörg

Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að skiptast á reynslu og mynda tengsl aðila sem koma að stefnumótunarstarfi, eftirfylgni og árangursmati áhersluverkefna.

 

https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/atvinnustefna-islands/

Notkun gervigreindar við fræðslu

Faghópur Stjórnvísi um fræðslu í fyrirtækjum og stofnunum, í samstarfi við faghóp um gervigreind, býður til viðburðar þar sem inntakið er notkun gervigreindar við fræðslu.
 
Hólmfríður frá Reykjavíkurborg byrjar á að fara yfir og sýna hvernig hún styðst við gervigreind við gerð skriflegrar fræðslu, fræðslumyndbanda, texta á fræðslumyndböndum og þýðingu á þeim. Því næst segir Róbert frá Citizens frá því hvernig hægt er að nota spunagreind til að búa til allskyns annað stafrænt kennsluefni á einfaldan hátt.  *Athugið að innihald erindisins hefur breyst frá því það var upphaflega auglýst*
 
Markmið fundarins er að varpa ljósi á hvaða leiðir eru í boði til að búa til efni með hjálp gervigreindar og vonandi enda fundinum með góðum umræðum um fleiri möguleika, þar sem fólk í fræðslumálum getur skipst á reynslu og myndað tengsl við aðra sem sinna fræðslu í fyrirtækjum.
 
Viðburðurinn fer fram á Teams.

 

Hlekkur á Teamsviðburð

Samskipti í upplýsingaöryggiskrísu

Sameiginlegur viðburður faghópa um Almannatengsl, miðlun og samskipti og stjórnun upplýsingaöryggis. 

Nánari upplýsingar koma síðar. 

Framtíðarleiðtoginn

Þátttökufundur um færni og eiginleika leiðtoga framtíðarinnar 

Við fáum til liðs við okkur öfluga leiðtoga sem deila sinni persónulegu reynslu og framtíðarsýn á hvaða færniþættir verða mikilvægastir í framtíðinni í pallborðsumræðum og á vinnustofu þar sem allir þátttakendur munu leggja sitt af mörkum.

Þeir eru;

Ari Daníelsson starfar sem stjórnarformaður Skyggnis eignarhaldsfélags sem heldur utan um 15 rekstrarfélög í upplýsingatækni og stafrænum innviðum og er jafnframt starfandi stjórnarformaður Origo. Hann hefur yfir tveggja áratuga reynslu af stjórnun, fjárfestingum og umbreytingum innan upplýsingatækni og fjármálaþjónustu, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi.

Kristinn Hjálmarsson er framkvæmdastjóri Icelandic Sustainable Fisheries og stofnandi ráðgjafafyrirtækisins Nótera. Hann starfaði áður sem þróunarstjóri Opna háskólans hjá HR og hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, breytingastjórnun og þróun skipulags. Kristinn starfar með stjórnendum og stjórnum við að móta framtíðarsýn og hrinda henni í framkvæmd og hefur sérstakan áhuga á því hvernig forysta, lærdómur og tækni móta framtíð vinnunnar.

María Fjóla Harðardóttir hefur starfað sem stjórnandi/leiðtogi í heilbrigðisþjónustu í yfir 20 ár, nú síðast sem forstjóri Hrafnistuheimilanna þar sem starfa um 2000 starfsmenn á 7 starfsstöðum. María var fyrsta konan til að gegna embætti forstjóra í sögu Hrafnistu. Hún starfaði einnig sem stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu sem þjónustar yfir 50 fyrirtæki. Árið 2021 hlaut hún Viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir stjórnunarstörf sín.

Selma Svavarsdóttir er forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun og hefur fjölbreytta reynslu af stjórnun, rekstri og breytingum. Hún starfaði áður í fjármálageiranum og hefur síðan gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum hjá Landsvirkjun. Hún hefur leitt ólík teymi og breytingar í stórri og fjölbreyttri starfsemi og leiðir í dag nýsköpun hjá Landsvirkjun.

Á vinnustofunni heyrum við persónulegar reynslusögur frá fólki sem leiðir, skapar og starfar mitt í breytingum.

Sögurnar verða kveikja að sameiginlegri rannsókn þar sem við:

  • lesum í breytingarnar sem þegar eru að eiga sér stað og munu móta framtíðina
  • skoðum hvaða færniþætti þessar breytingar munu kalla á
  • ögrum viðteknum hugmyndum um forystufærni 
  • drögum fram þá færni sem líklegt er að skipti mestu máli
  • speglum eigin styrkleika og tækifæri til vaxtar

Markmið:

Að virkja framtíðarlæsi okkar og móta saman vegvísi með hugmyndum af forystufærni sem framtíðin mun mögulega kalla á. Markmiðið er að viðburðurinn veiti innblástur, skýrari sýn og meðvitund um hvað við getum byrjað á að efla hjá okkur sjálfum.




Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?