Gervigreind í verkefnastjórnun: Ávinningur og framtíðarsýn

Fyrirlesari er Bertha María Óladóttir, Tölvunarfræðingur og MSc. í Forystu og verkefnastjórnun.

Bertha mun í erindinu fjalla um gervigreind og verkefnastjórnun en hún lauk á dögunum meistararitgerð sinni við Háskólann á Bifröst. Þar rannsakaði hún ávinning af notkun gervigreindar í verkefnastjórnun og mun hún fjalla um rannsóknina og helstu niðurstöður hennar. Bertha hefur á undanförnum árum starfað sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu FiveDegrees. 

Teams linkur á viðburð:

Tengjast fundinum núna

Leiðtogafærni sem skilar árangri

Hlekkur á fundinn

Stjónunarverðlaun Stjórnvísi 2026 verða veitt 9. Febrúar að því tilefni býður faghópur um leiðtogafærni hjá Stjórnvísi til fræðandi og hagnýts morgunfundar þar sem ljósi verður varpað á þær stjórnunar- og leiðtogaaðferðir sem hafa reynst farsælar í raunverulegum aðstæðum.
Við fengum til liðs við okkur tvo stjórnendur sem hlutu stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 og eiga það sameiginlegt að hafa skapað árangursríka, trausta og öfluga vinnustaðamenningu.
Fyrirlesarar
Á fundinum munum við fá innsýn í:

Hlökkum til að fá fræðast með ykkur og fá innblástur til að verða ennþá betri leiðtogar

Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2026

Í tilefni afhendingar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2026 þann 9.febrúar nk. býður Stjórnvísi til hátíðarmóttöku á Grand Hótel, Háteigi kl. 16.00 til 17:15. Hátíðinni er einnig streymt og er streymislinkur hér.

Forseti Íslands, Frú Halla Tómasdóttir , afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp.

Veitt verða verðlaun í þremur flokkum 

Dagskrá:
Setning hátíðar: Anna Kristín Kristinsdóttir, formaður stjórnar Stjórnvísi.

Salóme Guðmundsdóttir formaður dómnefndar gerir grein fyrir vali dómnefndar á stjórnendum ársins 2026

Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp.
Félagsfólk Stjórnvísi er sérstaklega hvatt til að fylgjast með hátíðinni ásamt öllu fag- og áhugafólki um stjórnun.

Dómnefnd 2026 skipa eftirtalin:

  • Salóme Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar, framkvæmdastjóri Ísorku og stjórnarformaður Kadeco.
  • Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.
  • Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
  • Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
  • Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs.
  • Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona.
  • Salóme Guðmundsdóttir, ráðgjafi og stjórnarkona.
  • Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 

Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi.

Nánari upplýsingar um Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi er að finna hér.

Með kærri kveðju,
Gunnhildur Arnardóttir
Framkvæmdastjóri Stjórnvísi

Dópamíntorg snjallvæðingarinnar

Hér er hlekkur á fundinn

"Digital Detox“ – þarft þú eða vinnustaðurinn þinn á minni skjánotkun að halda?

Gígja Sunneva Bjarnadóttir, MSc í heilsusálfræði og stafrænum inngripum, sem er heilsuráðgjafi hjá Greenfit mun fjalla um áhrif skjánotkunar á dópamín og athygli, ásamt því hvernig við getum nýtt hegðunarvísindi til að draga úr skjánotkun.

Helena Jónsdóttir, sálfræðingur og stofnandi Mental ráðgjafar, mun fjalla um hvernig snjallvæðing, stöðugt áreiti og truflanir birtast í daglegu vinnulífi og hvaða áhrif það hefur á streitu, viðveru, samskipti, endurheimt og afköst.
Í erindinu verður sjónum beint að tengslum stafræns álags við sálfélagslega áhættu og geðheilbrigði á vinnustað og rætt hvaða kerfisbundnu aðgerðir vinnustaðir og stjórnendur geta gripið til, umfram einstaklingsbundin ráð, til að styðja við velllíðan, jafnvægi og sjálfbært vinnuumhverfi.

 

Fundarstjóri er Ingibjörg Loftsdóttir, formaður faghóps um heilsueflandi vinnuumhverfi og varaformaður Stjórnvísi.  

Að missa klefann

Að missa klefann

Hvað geta stjórnendur gert til að tryggja hann?

Það er margt líkt með fótboltaliði og fyrirtæki. Á báðum stöðum þarf að velja leikmenn í liðið og þar með setja aðra til hliðar, það er þörf á hvatningu, halda þarf uppi aga, byggja upp góða liðsheild, erfiðar ákvarðanir eru teknar, gæta þarf að orðspori og þannig mætti halda áfram. Hvaða lærdóm geta fyrirtækin dregið af aðferðafræðinni í heimi fótboltans?

 

Fyrirlesari: Ólafur Helgi Kristjánsson er best þekktur fyrir störf sín sem þjálfari knattspyrnuliða í meistaraflokki karla, hér heima og í Danmörku og nú síðast sem aðstoðarþjálfari kvennalandliðsins í fótbolta. Hann er vel menntaður þjálfari með UEFA Pro Licence réttindi.

 

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Lýsis að Fiskislóð 5-9 en að auki verður honum streymt.

Linkur á streymi hér

Endurmörkun vörumerkis - Ferðalag Heima

Faghópur Stjórnvísi í Breytingastjórnun býður til fundar þar sem Pétur Rúnar Heimisson, markaðs- og samskiptastjóri Heima, fjallar um eitt umfangsmesta breytingaverkefni sem skráð félag getur ráðist í: heildarendurmörkun og endurskilgreiningu vörumerkis.
 
Pétur fer yfir vegferðina frá Regin yfir í Heima og rýnir í hvernig nýtt nafn, ný ásýnd og ný frásögn voru mótuð og framkvæmd – bæði út á við og innan félagsins. Þá verður einnig fjallað um hvernig Heimar hóf að starfa í auknum mæli í takt við kjarnastefnu félagsins og hvernig ákvarðanataka, forgangsröðun og rekstrarlegar áherslur voru stilltar af til að styðja við stefnuna í verki.
Erindið verður praktískt og lærdómsríkt: hvað reyndist vel, hverjar helstu áskoranirnar voru og hvaða atriði skipta mestu máli þegar taka á fólk og markað með í svona stórt ferðalag.
 
Fyrirlesari:
Pétur Rúnar Heimisson fer fyrir markaðsmálum, samskiptum og viðskiptavinaupplifun hjá Heimum en áður starfaði hann sem markaðsstjóri Borgarleikhússins og við markaðsmál hjá Nova.
Staðsetning:
Skrifstofa Heima, Hagasmári 1 (Smáralind), gengið inn í vesturenda suðurhliðar.
 

Frá ferlum til fólks: Hönnun nýs spítala

Hvernig verður nýr spítali hannaður með bæði ferla og fólk í huga?
Á viðburðinum skoðum við hvernig samspil starfsfólks, sjúklinga og verkferla getur mótað framtíðarlausnir sem nýtast öllum.

 

Fundurinn er í haldinn á fyrstu hæð í höfuðstöðvum Landsbankans í Reykjastræti 6. 

Boðið verður uppá kaffi og léttar veitingar!

Copilot í M365 - Hvað þurfa stjórnendur að gera áður en kveikt er á?

Smelltu hér til að tengjast fundinum.

Innleiðing á Microsoft 365 Copilot hefur vakið áhuga – en jafnframt ugg meðal stjórnenda. Óvissa getur skapast um aðgang starfsmanna að upplýsingum innan fyrirtækja og stofnana. Með tilkomu Copilot og annarra gagnadrifinna verkfæra þarf að huga sérstaklega vel að undirbúningi og aðgangsstýringum.

Er tryggt að trúnaðargögn einnar deildar séu ekki aðgengileg öðrum? Getur óviðkomandi starfsmaður óvart fengið aðgang að gögnum um viðskiptavini, samninga eða starfsfólk?

 

Faghópur Stjórnvísi um stefnumótun og árangursmælingar býður til fræðsluerindis þar sem farið verður yfir hvað stjórnendur fyrirtækja og stofnana þurfa að hafa í huga til að tryggja farsæla innleiðingu Copilot í M365 umhverfi.

 

Fyrirlesari er Benedikt Rúnarsson, öryggisstjóri hjá Wise. Hann hefur víðtæka reynslu af öryggismálum, aðgangsstýringum og upplýsingastjórnun í tengslum við M365 umhverfið. Áður en Benedikt gekk til liðs við Wise starfaði hann sem öryggis- og gæðastjóri hjá Mílu og býr yfir traustri þekkingu á upplýsingaöryggi og stafrænni innviðaþróun. Hann lauk sérnámi í ferilstjórnun á vegum Boston University og Duke University ásamt Lean námi hjá Háskólanum í Reykjavík.


Fundurinn hefst kl. 12 á Teams. Erindið tekur um 20-30 mínútur og í lokin gefst tími til spurninga.

Staða og framtíð CX á Íslandi – niðurstöður nýrrar könnunar og reynsla Samskipa

Kári Þór fer yfir niðurstöður glænýrrar könnunar sem skoðaði stöðu CX (customer experience) á Íslandi, þar sem yfir 150 sérfræðingar sem starfa við CX á Íslandi tóku þátt. Skýrslan dregur fram í sviðsljósið viðhorf sérfræðinga sem og stjórnenda, mikilvægi CX mála innan fyrirtækja og möguleg sóknartækifæri. Að auki kemur Kári inn á mikilvægi þess að huga að CX málum með markvissum og gagnadrifnum hætti, bæði til aðgreiningar við önnur fyrirtæki sem og til að ná forskoti á samkeppnismarkaði.

Ágústa Hrund, frá Samskipum, deilir með áheyrendum hvernig Samskip setja áherslu á ánægju og upplifun viðskiptavina í sínu starfi og hvernig það spilar hlutverk í Better Samskip hugmyndafræðinni innanhúss.

Fyrirlesarar:

Kári Þór Rúnarsson, stofnandi Brilliant.is

Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa

Viðburðurinn fer fram í húsakynnum Opna háskólans í HR, stofa M216 á 2. hæð. 

Plástrarnir eru búnir

Smelltu hér til að tengjast fundinum.

Hilja Guðmunds býður ykkur að kveðja burt árleg starfsmannasamtöl, "opnu hurðina”, krísustjórnun, “eina könnun á ári" og starfsmannafríðindin. Ekki af nostalgíu heldur af nauðsyn. Þegar mannauðsmál og rekstur snúast fyrst og fremst um viðbrögð þá erum við alltaf of sein. Erindið fjallar um færsluna frá krísustjórnun og táknrænum aðgerðum yfir í gagnadrifnar forvarnir, snemmtæk samtöl og kerfisbundna nálgun sem styður bæði fólk og rekstur.

Hilja Guðmunds er bláeygð, rétthent sveitastelpa og er einn eiganda hjá Mental ráðgjöf. Hilja er sérfræðingur þeirra í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hefur þjálfað og handleitt um 1000 stjórnendur í viðverustjórnun, samtals"takti" og stjórnun. 

World Futures Day 2026 Taktu þátt í samtali um framtíð mannkyns – 1. mars

Þann 1. mars verður haldinn World Futures Day í 13. sinn. Um er að ræða 24 tíma netsamtal þar sem fólk um allan heim ræðir mögulega framtíð mannkyns.

Viðburðurinn hefst kl. 12 á hádegi að nýsjálenskum tíma og lýkur 24 klukkustundum síðar á Hawaii.

Athugið þá er klukkan 23:00 að kveldi 28 febrúar hér heima 😊

Hægt er að taka þátt hvenær sem er á meðan á viðburðinum stendur.

Framtíðarfræðingar og aðrir hugsuðir ræða meðal annars:

  • Hvernig núverandi þróun gæti mótað framtíðina
  • Nýjar uppfinningar og tækniframfarir
  • Mismunandi framtíðarsviðsmyndir og áhrif þeirra

Samtalið er opið og óformlegt. Engin föst dagskrá er fyrir hendi og þátttakendur geta komið og farið að vild. Chatham House-reglan gildir, sem þýðir að ekki má rekja ummæli til einstaklinga.

Að viðburðinum standa The Millennium Project ásamt fimm alþjóðlegum félögum á sviði framtíðarfræða..

Í ár verður Vint Cerf, einn af frumkvöðlum internetsins, meðal þátttakenda.

Á fyrri árum hafa umræðurnar til dæmis snúist um:

  • Gervigreind
  • Loftslagsbreytingar
  • Framtíð vinnunnar
  • Lýðræði framtíðarinnar
  • Líf í geimnum

Hver veit hvaða spennandi hugmyndir verða ræddar í ár?

Athugið: Allir þurfa að skrá sig sérstaklega og ekki má deila fundartenglinum með öðrum.

https://us02web.zoom.us/meeting/register/y2IYg5T2SZiTojaXo_x94Q#/registration

Hefur vinnurými og hugbúnaður áhrif á hegðun líðan og frammistöðu starfsfólks?

Hildur Jóna og Magga Dóra munu leitast við að svara spurningunni; hvaða áhrif hefur vinnurými á hegðun, líðan og frammistöðu og hvaða hugbúnaður fellur undir vinnuverndarlöggjöf.

Hildur Jóna hjá HumanAtWork ehf. fjallar um hvernig vinnurými hafa áhrif á hegðun, líðan og frammistöðu starfsfólks. Erindið byggir á rannsóknum í umhverfissálfræði og fjallar meðal annars um áhrif opinna rýma, skipulags og aðstæðna í vinnuumhverfi. Markmiðið er að auka skilning á þörfum fólks í vinnu og hvernig hönnun vinnurýma getur stutt ólíkar þarfir og haft þannig áhrif á frammistöðu starfsfólks.
Magga Dóra hefur unnið við hugbúnaðargerð síðan fyrir aldamót. Hún er með bakgrunn í sálfræði og tölvunarfræði og hefur unnið fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum hérlendis sem erlendis. Hún er stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar og finnst að tæknin eigi að vera mennsk.

Vinnuumhverfi er að verða stafrænt að meira og minna leyti. Jafnvel starfsfólk sem situr ekki við tölvu allan daginn (iðnaðarmenn, skurðlæknar, kennarar) þarf að nota ýmiskonar hugbúnað til að halda utan um sín störf. Þrátt fyrir að gerðar séu ríkar kröfur til vinnuumhverfis fólks (hávaðastig, lýsingarstig, öryggi tækja og svo framvegis) er ekki gerð nein vinnuvistfræðileg krafa til hugbúnaðar. Þetta veldur því að mikið af fólki þarf að glíma við ónotendavænan hugbúnað sem beinlínis skapar vinnu og flækir störf. Þetta veldur streitu sem getur verið áhrifaþáttur fyrir kulnun. Hvað getum við gert?

Haldið í samstarfi við Vinnís.  

Hér er linkur á fundinn.

 https://teams.microsoft.com/meet/34729025176542?p=f0GqnP7dXsy6BNtdBe

Framtíðarsamfélag án aldursfordóma

Hefur þú mætt staðalímyndum um eldra fólk í sjónvarpsþáttum, fréttum, samfélagsmiðlum, kvikmyndum eða hönnun og tísku? Saman könnum við hvernig hægt er að umbreyta hugmyndum um „of ungt“ og „of gamalt“ í samtal um hæfni, þátttöku og möguleika. Veltum fyrir okkur hvernig tækni getur stutt við baráttuna gegn aldursfordómum og hverjir drifkraftar aldursfordóma eru í samfélaginu

Hér býðst einstakt tækifærir fyrir fólk á öllum aldri til að deila reynslu, læra hvert af öðru og efla framtíðarlæsi. Mótum í sameinignu Framtíðarsamfélag án aldursfordóma / Future Society without Ageism. Um er að ræða tvær vinnustofur milli: kl. 14:00-14:45 og kl. 15:00-15:45
Þátttaka ókeypis.

Vinnustofan fer fram á Framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins og er samstarfsverkefni Framtíðarseturs Íslands og þekkingarmiðstöðvarinnar Farsæl öldrun og er hluti af verkefninu Northern Futures Hub stýrðu af félagasamtökunum Folke í Tromsö með styrk frá Nordisk Atlantsamarbejde - NORA

Frekari upplýsingar:

Dögg Sigmasdóttir
dogg@openspaceslab.com

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?