Farið verður yfir viðburði vetrarins og kosið til stjórnar faghópsins og formennsku.
https://teams.microsoft.com/meet/330368377874986?p=k7lJwBBUYD12aai42c
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur |
| 27 |
28
|
29 | 30 |
01
|
02
|
03
|
|
04
|
05 | 06 |
07
|
08
|
09
|
10
|
| 11 |
12
|
13
|
14
|
15
|
16
|
17
|
|
18
|
19
|
20
|
21
|
22
|
23
|
24
|
|
25
|
26
|
27
|
28
|
29
|
30
|
31
|
Farið verður yfir viðburði vetrarins og kosið til stjórnar faghópsins og formennsku.
https://teams.microsoft.com/meet/330368377874986?p=k7lJwBBUYD12aai42c
Aðalfundur faghóps um fjölbreytileika og inngildingu verður haldinn mánudaginn 27. Apríl klukkan 12:00 til 12:30 í gegnum Teams.
Stjórn faghóps um fjölbreytileika og inngildingu sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins.
Faghópur um fjölbreytileika og inngildingu óskar eftir framboðum stjórnarfólks. Við hvetjum þá sem gætu haft áhuga á að sitja í stjórn faghópsins til að láta vita af sér með því að senda tölvupóst á monika@eykt.is
Fundardagskrá:
Skráning hér
Sameiginleg vorráðstefna fyrir félaga Ský, Stjórnvísi og Mannauðs. Fjölbreyttir fyrirlestrar úr mismunandi áttum viðskiptalífsins um framtíðina. Verð er 14.900.- krónur. Endum daginn á að stækka tengslanetið og skála fyrir framtíðinni og höldum svo út í vorið!


Þegar ég var unglingur var einn sími heima hjá okkur. Þú hringdir ekki í manneskju heldur í heimilisfangið. Tækið fór svo í vasann hjá hverjum og einum og svo varð hann að tölvu. Nú er hann að verða að einhverjum sem talar við þig, skilur þig, og svarar þér, jafnvel áður en þú biður um það.
Enginn veit nákvæmlega hvernig framtíðin verður. Það sem skiptir máli er ekki spáin, heldur hæfileikinn til að lesa aðstæður, aðlagast breytingunum á leiðinni og taka réttu skrefin hverju sinni. Í þessu erindi tala ég um hvað það þýðir að leiða þegar gervigreind, tækni og hröð umbreyting gera framtíðina ófyrirsjáanlegri en nokkurn tímann.

14:25 Kaffihlé



15:45 Skálum saman fyrir framtíðinni og tengjumst!
Léttar veitingar og tengslanetið stækkað í góðra vina hópi.
17:00 Partýið búið - haldið saman út í vorið!
Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar sendi tölvupóst á núverandi formann hópsins: hrafnhildur.birgisdottir@landsbankinn.is
Kæru Stjórnvísifélagar.
Óskað er eftir framboðum til stjórnar Stjórnvísi starfsárið 2026-2027(28) frestur til framboðs rennur út 27. apríl 2026. Kosið verður um 2 sæti í stjórn og formann Stjórnvísi, alls 3 sæti.
Eitt framboð hefur borist í embætti formanns fyrir starfsárið 2026-2027: Anna Kristín Kristinsdóttir, Engineering Manager Lead, JBT Marel. Anna Kristín er sitjandi formaður Stjórnvísi og hefur setið í stjórn sl. þrjú ár. Anna Kristín var einnig formaður faghóps um upplýsingaöryggi til nokkurra ára. Á aðalfundi er formaður kosinn sérstaklega til eins árs í senn og getur setið í 2 ár að hámarki.
Í stjórn eru 9 stjórnarmenn kosnir til eins eða tveggja ára í senn með möguleika á framlengingu án þess að kosið sé um þá og geta að hámarki setið í 4 ár. Eftirtalin framboð eru komin sem ekki þarf að kjósa um og munu skipa stjórn Stjórnvísi 2026-2027
1. Héðinn Jónsson, Chief Product Officer hjá Helix health. (2025-2027)
2. Viktor Freyr Hjörleifsson, mannauðssérfræðingur hjá Vegagerðinni. (2025-2027)
3. Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON (2025-2027)
4. Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2027)
5. Matthías Ásgeirsson, forstöðumaður fasteignasviðs hjá Bláa Lóninu. Stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun kosinn í stjórn (2024-2027)
6. Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2027)
Kosið verður um tvö sæti í stjórn Stjórnvísi. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Kosið verður í fagráð félagsins.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Kosnir verða tveir skoðunarmenn til 2ja ára og bjóða eftirtaldir sig fram:
Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027
Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:
Ársreikningurinn verður aðgengilegur á vefsíðu félagsins strax að loknum aðalfundi. Þeir sem óska eftir útprentuðum ársreikningi er bent á að óska eftir því sérstaklega við framkvæmdastjóra félagsins gunnhildur@
Miðvikudaginn 6.maí kl.18:00 verður stjórnarskiptafundur Stjórnvísi og er formönnum allra faghópa ásamt stjórn Stjórnvísi boðið.
Markmið fundarins sem er veglegri en allir aðrir stjórnarfundir er að þakka fyrir vel unnið starf, gleðjast og kynnast betur.
Það væri gott að fá staðfestingu sem fyrst hvort þið komist.
Fundurinn verður haldinn á veitingarstaðnum Fjallkonan þar sem við verðum algjörlega út af fyrir okkur, gleðjumst og borðum saman góðan mat.
Hlakka til að heyra frá ykkur og endilega látið vita á Fjallkonunni ef þið hafið sérþarfir varðandi mat og takið fram að þið séuð í hópnum Gunnhildur / Stjornvisi 6 maí.
Með kærri kveðju frá stjórn Stjórnvísi
Gunnhildur
Matseðill:
5 RÉTTA SEÐILL
FORDRYKKUR – glas af Piccini Prosecco
FORRÉTTIR
Nauta carpaccio
Græn Charmoula, þeyttur feta, parmesan flögur, granatepli
Lamb & og hveitikökur
Hægeldað lamb, vestfirskar hveitikökur, gulrótarmauk, pikklaður rauðlaukur, piparrótarsósa
Bleikja & lummur
Kjúklingabaunalummur, léttgrafin bleikja, piparrótarsósa, hrogn, yuzu-ylliblómadressing
AÐALRÉTTUR – veldu á milli
Nautalund
gulrætur, grillaður aspas, sellerírótar- mauk, bjór-hollandaise
Eða
Grillaður lax
Beykisveppir, hoisin sveppir, aspas, fregola, hvítlauks-sellerírótarmauk,
reykt aioli
EFTIRRÉTTUR
Þrista-súkkulaðiterta
Súkkulaði, Þristur, vanilluís, þeyttur rjómi
Til að vera leiðtogar í okkar lífi og leiða aðra þurfum við fyrst að dýpka eigin sjálfsvitund. Að þekkja okkar gildi og lifa í samræmi við þau daglega er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.
Á þessari vinnustofu veita Bryndís og Lára Kristín þátttakendum tækifæri til að kortleggja eigin kjarnagildi og íhuga hvernig þeir geta lifað meira í samræmi við þau. Kjarnagildi þjónandi leiðtoga verða kynnt og þar geta þátttakendur sótt innblástur til frekari vaxtar ef það höfðar til þeirra. Samhliða þessari vinnu kjörnum við okkur og tengjumst okkar ásetning í gegnum stuttar leiddar hugleiðslur.
Þessi vinnustofa er fyrir alla sem vilja fá innsýn í þjónandi forystu og leggja meiri áherslu á hvernig við getum lifað í takt við okkar eigin gildi í lífi og starfi.
ATH. Vinnustofan hefst á núvitundargöngu og leik í náttúrunni í Guðmundarlundi til að jarðtengja okkur fyrir vinnustofuna. Mætið því vel búin og tímanlega.
Hvað annað þarftu að taka með? Stílabók, penna og opinn hug.
Bryndís Skarphéðinsdóttir er með bakgrunn í alþjóðlegum lífsstíls-og heilsufræðum og fór í MSc nám í vinnusálfræði, eftir að hafa stundað hugleiðslu-og jóga nidra kennaranám á Indlandi. Síðustu ár hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, innan Norræna tengslanets um nám fullorðinna og í Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. Bryndís er útskrifaður markþjálfi frá VIRKJA og hugleiðslukennari frá Yoga Essence á Indlandi.
Lára Kristín Skúladóttir er sjálfstætt starfandi lóðs og leiðtogaþjálfi en starfaði áður sem stjórnunarráðgjafi, markþjálfi og Lean sérfræðingur hjá VÍS, í gæðamálum hjá Arion banka og sem stjórnunarráðgjafi hjá ParX. Hún er með MSc gráðu í alþjóðastjórnun og markaðsfræði frá Copenhagen Business School og er markþjálfi frá Evolvia og VIRKJA.